Stolt mamma

Ég er voðalega stolt mamma enda á ég tvær mjög vel heppnaðar dætur. Það er lán sem ég er ákaflega þakklát fyrir. Ég hef áður skrifað langt og ítarleg blogg sem snertir yngri dóttur mína. Ég má auðvitað ekki gera upp á milli dætra minna þannig að ég ætla að leyfa mér að vekja athygli á afrekum eldri dóttur minnar hérna líkaGrin

Eldri dóttir mín var nefnilega að útskrifast frá Háskólanum á Bifröst sl. laugardag. Hún var að ljúka BA-námi af yngstu skorinni þar. Sú heitir HHS en þessi skammstöfun stendur fyrir heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði. Dóttir mín var meðal þeirra fyrstu sem veðjuðu á þetta nám haustið 2005 og var að útskrifast núna þremur árum seinna.

Telma Eir

Hún er búin að vera rosalega dugleg. Hún lauk kúrsunum fyrir ári síðan, keypti sér íbúð með kærastanum sínum og byrjaði að vinna. Á sama tíma og hún hefur verið að vinna sig upp hjá fyrirtækinu þar sem hún vinnur hefur hún verið að skrifa BA-ritgerð um kosningarþátttöku ungs fólks á Íslandi. Það er ekkert af ástæðulausu sem ég er stolt af þessari elskuGrin


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Viðar Freyr Guðmundsson

Alltaf ánægjulegt þegar börnin eru farinn að skila inn skatttekjum til ríkisins

Til hamingju með daginn! sorrý að ég komst ekki í veisluna.

Viðar Freyr Guðmundsson, 8.9.2008 kl. 23:38

2 Smámynd: Tinna Eik Rakelardóttir

Temminn er svo dúllinn Gaman að eiga stóra systur sem maður getur verið svona ofboðslega stoltur af

Tinna Eik Rakelardóttir, 9.9.2008 kl. 00:28

3 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Takk Viðar Já, það hefði verið gaman að fá þig í veisluna en þú varst löglega afsakaður

Rakel Sigurgeirsdóttir, 9.9.2008 kl. 17:58

4 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Takk fyrir hamingjuóskirnar Þórdís mín:-) Þarf endilega að fara að heyra af því hvernig þér miðar með stóra verkefnið þitt

Rakel Sigurgeirsdóttir, 20.9.2008 kl. 15:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband