Mér finnst það svo skrýtið...

Síðasliðið vor voru samþykkt ný lög um framhaldsskólann. Það hefur verið ótrúlega lítil umræða um þessi nýju lög í fjölmiðlum og úti í samfélaginu yfirleitt. Það ber að taka það fram að það var ekki aðeins gerð breyting á lögunum sem varða framhaldsskólann heldur öll skólastigin. Það vekur mér furðu hvað lítið hefur verið fjallað um þær breytingar sem þessi nýju lög hafa í för með sér.

Það eru eflaust á þessu nokkrar skýringar en engin góð. Sú sorglegasta er sú að það virðist enginn vita neitt. Það er reyndar ekki skrýtið því þeir (eða sá/sú) sem sköpuðu þau virðast ekki alveg gera sér grein fyrir innihaldinu eða umgjörðinni sjálfir. Það versta við þetta er að í meginatriðum er þetta alveg satt!

Ég get ekki fullyrt hvort að þeir fulltrúar sem menntamálaráðherra hefur sent út í framhaldsskólana fram að þessu, til að upplýsa kennara þeirra fyrst um frumvarpið og núna lögin, hafi ekki mátt segja, eða hafi ekki vitað, allt. Það hlýtur þó að teljast furðuleg vinnubrögð að senda tengiliði eða fulltrúa inn í skólana sem geta ekki svarað eðlilegum spurningum kennara um breytingarnar sem lögin munu hafa í för með sér á vinnuumhverfi þeirra og nemenda skólans.

Ef þau í Menntamálaráðuneytinu geta eða vilja ekki svarað þeim spurningum, sem brenna á kennurum og hagsmunasamtökum þeirra, varðandi nýju lögin þá er hæpið að þeir svari öðrum. Það er samt skrýtið að fjölmiðlar skuli ekki fjalla einmitt um það. Þögnina og/eða leynimakkið í kring um nýju menntalögin að hálfu ráðuneytisins. Ég myndi halda að það hvernig menntun er háttað í landinu varði alla þjóðina. Ekki bara kennara... Það er þess vegna skrýtið að almenningur í landinu uni þessari þögn og um leið óvissu um það hvenig menntun barna og unglinga á Íslandi verður háttað í framtíðinni.

Mér finnst það t.d. mjög athyglisvert að Alþingi hefur afsalað sér völdunum sem það hafði í þessum efnum til Menntamálaráðuneytisins. Mér finnst líka mjög athyglisvert að á sama tíma og fulltrúar ráðuneytisins reyna að setja nýju lögin um framhaldsskólann í glanspappír fyrir okkur hin með stöfunum: „skólarnir munu öðlast svo mikið frjálsræði“ þá sitja starfsmenn ráðuneytisins sveittir við að setja saman 23 reglugerðir til að ramma inn lögin...

pappírsfjalliðJá mér finnst það virkilega skrýtið að fréttamenn og fjölmiðlarnir yfirleitt skuli hlífa menntamálaráðherra og öðrum starfsmönnum ráðuneytisins við að skýra það út fyrir þjóðinni hvað þeir eru að búa til? Til hvers? Fyrir hverja? Hvers vegna? Hvað þetta kostar? Hvað muni ávinnast? Hverju var hent út? Hvað tekið upp í staðinn? Hvaða faglegu forsendur liggi að baki? Með hvaða menntunarfræðingum og -ráðgjöfum þetta var unnið? o.s.frv. o.s.frv.

Ég hélt fyrst að tilgangurinn með nýju lögunum væri sá að spara en mér sýnist að nú þegar sé búinn að fara þvílíkur peningur í þetta hringl ráðuneytisins með framhaldsskólann að ég skil ekki að það skuli ekki vera búið að loka á frekara bruðl í sambandi við hann a.m.k. Í lok síðustu aldar var eytt ótrúlega litlum tíma en miklum peningum til að búa til nýja námsskrá fyrir framhaldsskólastigið. Þegar hún kom út í upphafi þessarar aldar kom í ljós að innihald hennar var nokkurn vegin það sama og þeirrar á undan. Það var þó búið að hræra þannig til í innihaldi áfanganna að gömlu kennslubækurnar voru langflestar úreltar. Þess vegna þurfti að eyða meiri pening í að búa til nýjar þannig að þær pössuðu við þá sem urðu til út úr tilfærslu- og sambræðsluverkefninu... 

Nánast um leið og bókakassarnir með nýju námsskránni voru farnir af stað út í skólana var byrjað að undirbúa miklu stærra og kostnaðarsamara verkefni. Nú skyldi stokka allt íslenska menntakerfið upp. Nýju menntalögin eru útkoman og auðvitað varð „nýja“ námsskráin fyrir framhaldsskólann, sem hefur ekki einu sinni náð 10 ára aldri, úrelt um leið og þessi lög tóku gildi. Í raun veit enginn hvernig nýja námskráin á að vera. Fyrst þarf að fást botn í það hvar gólfið á að vera og hvar þakið samkvæmt nýju framhaldsskólalögunum. Á meðan það er ekki ljóst er tæpast hægt að fara að smíða veggina... Síðustu fregnir herma þó að reglugerðarfarganið verði tilbúið upp úr næstu áramótum.

Eins og allir geta ímyndað sér þá er ákaflega þægilegt að vinna við þessar aðstæður eða hitt þá heldur. Kennarar eru líka flestir alveg gáttaðir. Nemendur sennilega margir hverjir líka ef þeir eru þá almennilega meðvitaðir um það hvað er að gerast. Það eru þó nokkrir í hópi kennara sem prísa sig sæla yfir því að þeir eru að komast á eftirlaunaaldur. Senilega eru líka margir í núverandi nemendahópi framhaldsskólanna sem finnst að nýju lögin komi þeim ekki við þar sem þeir útskrifast samkvæmt gamla kerfinu. Einhverjir eru líka í losti eins og ég.

Þeir eru reyndar þó nokkrir sem reyna að halda í þá trú að í nýju lögunum felist miklar úrbætur. En það er staðreynd að heildarmyndina hefur enginn nema kannski menntamálaráðherra. Er það ekki skrýtið í ljósi þess að lögin hafa þegar tekið gildi!?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tinna Eik Rakelardóttir

Já ég verð að segja enn og aftur að ég er alveg sammála þér...ég prísa mig sæla að hafa útskrifast úr framhaldsskóla samkvæmt gamla kerfinu þar sem ég treysti engan vegin þessu nýja kerfi! Finnst ég ekki geta treyst einhverju sem er unnið svona hörðum höndum að að halda leyndu.

Mér finnst enginn svara almennilega þeim spurningum sem vakna í sambandi við þessa nýju námsskrá og mér finnst alltof margir bara vera glaðir að heyra að það sé að koma ný námsskrá sem taki til allra skólanna. En mér finnst alltof fáir skoða ofan í saumana á þessum nýju lögum og sjá hve skrýtið allt er í kringum þau og hve illa er staðið að þeim.

Mér finnst samt sem áður vera kominn tími til að skoða alvarlega menntakerfið á Íslandi þar sem það er alveg meingallað. Þá finnst mér að það ætti að fara niður í leikskólana og uppí háskólana líka og tengja þetta allt almennilega saman og fá með í lið ásamt kennurum og ráðuneytismönnum og uppeldis og menntunarfræðingum nokkra nemendur af mismunandi stigum skólanna til að koma sinni skoðun að um hvað mætti fara betur á mismunandi stigum námsins

Tinna Eik Rakelardóttir, 26.9.2008 kl. 00:56

2 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Takk fyrir þetta innlegg, Tinna mín

Rakel Sigurgeirsdóttir, 26.9.2008 kl. 12:22

3 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Já, Þórdís mín Ekki hef ég heldur gefið mér tíma til að kafa ofan í nýju menntalögin sem eiga við leikskólann. Hins vegar hef ég kynnt mér lögin um framhaldsskólalögin nokkuð ýtarlega og að einhverju leyti lögin um grunnskólalögin. Það sem mér finnst undarlegast er hvað allt hefur verið hljótt í sambandi við gildistöku þessara nýju laga. Þar eru boðaðar miklar breytingar. T.d. eru nokkrir áfangar úr framhaldsskólanum færðir frá framhaldsskólanum og niður í grunnskólan. M.a. öll danskan og eitthvað af stærðfræðinni og enskunni.

Mér finnst kannski ekki skrýtið þó fjölmiðlarnir séu ekki að sökkva sér ofan í þessi lög nákvæmlega þessa daganna en það mætti nú samt alveg skoða peningahliðina í kringum allt þetta brambolt. Það eru t.d. fimm nefndir starfandi á vegum Menntamálaráðuneytisins núna. Ég veit ekki hvað þær eru búnar að vera starfandi lengi. Það hefur ríkt mikil leynd yfir tilveru þeirra og störfum a.m.k. hingað til.

Ég hef þó traustar heimildir fyrir tilveru þeirra og því sem ég er að segja um þær hér. Núorðið koma nefndarmenn saman einu sinni í viku (held að ég fari örugglega rétt með) til að funda og taka ákvarðanir í sambandi við ýmis atriði sem snerta þessi nýju lög. Það skal tekið fram að kennarar eru ekki fjölmennur hópur í þessum nefndum en það þarf ábyggilega að borga nefndarmönnum laun því þeir koma ekki allir úr ráðuneytinu. Það eru reyndar ráðuneytismenn sem eru yfir þeim en aðrir koma héðan og þaðan.

Rakel Sigurgeirsdóttir, 6.10.2008 kl. 03:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband