Icesave-ælan

Við Helga Þórðardóttir erum meðal þeirra sem hafa starfað undir merkjum Samstöðu þjóðar gegn Icesave undanfarnar vikur. Eitt af því sem við höfum lagt til baráttunnar gegn því að þessi nýi Icesave-samningur verði lagður á þjóðina er þátttaka í ritun bréfs til forseta Evrópusambandsins og stuðningur við bréf Gunnars Tómasonar til framkvæmdarstjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og forseta Framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins.

Erindunum sem var komið á framfæri í þessum bréfum hefur lítt eða ekkert verið sinnt. Það sem er enn sorglegra er að íslenskir ráðmenn svo og nær öll fjölmiðlastéttin hafa tæpast virt brýn erindi þessara bréfa viðlits. Við Helga lögðumst því í það að skrifa greinar til að draga frekari athygli að innihaldinu. Allt kom fyrir ekki.

Greinarnar urðu alls fjórar. Morgunblaðið birti eina þeirra (ég birti hana líka hér) en Fréttablaðið sniðgekk tvær og pressan.is þá fjórðu. Ein þessara greina birtist á svipan.is í morgun, önnur á kjosum.is nú undir kvöld en sú fjórða birtist hér. Það er sú sem pressan.is sniðgekk en eins og fyrirsögnin og innihaldið bera leggjum við út af þessum orðum  Tryggva Þórs Herbertssonar. En hér er greinin:

                               ><>   ><>   ><>  ><>

Æla er magainnihald sem líkaminn hefur ákveðið að losa sig við vegna þess að það er líkamanum skaðlegt. Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður, hefur líkt Icesave við ælu en ætlar samt að kyngja henni. Gunnar Tómasson, hagfræðingur, telur aftur á móti að hún sé best komin í dallinum.

Gunnar skrifaði bréf til framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, Dominiques Strauss-Khan og forseta Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, José Manuels Barrosos. Við vorum ellefu sem skrifuðum undir þetta bréf.  Þar bendir Gunnar Tómasson á að Icesave-ælan gæti reynst þjóðinni hættuleg.

Í bréfinu kemur fram að horfur Íslands séu verri en menn gerðu ráð fyrir við gerð hinna svokölluðu Brussels-viðmiða í nóvember 2008. Þar var gert ráð fyrir að taka ætti tillit til efnahagsaðstæðna Íslands við gerð Icesave-samninganna.

Nú hefur komið fram að á næstu árum verða tekjur landsins minni og skuldir hærri en gert var ráð fyrir. Gunnar Tómasson bendir á að í núverandi Icesave-samningi er ekki tekið mið af þessu staðreyndum. Álit sitt byggir hann á nýútkominni skýrslu AGS. Hann vann þar árum saman og skilur því manna best tungutak þeirrar stofnunar.

Gunnar bendir á þá staðreynd að skuldir Íslands eru það miklar að ekki er hægt að standa við Icesave-samninginn. Hann bendir  reyndar á að skuldirnar gætu vel verið ósjálfbærar og það án Icesave. Þess vegna telur Gunnar Tómasson að Icesave-ælan sé best komin í dallinum og ekki sé á það hættandi að kyngja henni. Timburmennirnir eftir fylliríið fyrir 2008 eru Tryggva Þór hins vegar svo þungbærir að honum virðist Icesave-ælan jafnvel svalandi.

Að ætla okkur hinum að kyngja ælunni með honum er engan veginn við hæfi!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Sammála :)

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 9.4.2011 kl. 00:59

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þær stórmerku fréttir heyrast kortéri fyrir kosningar að Sigurjón Árnason ætli ekki að kyngja.

 

Ekki Jón Stóri heldur.

 

Rétt eins og Sigmundur.

 

Vigdís ætlar þó að kyngja af veikum mætti.

 

Þessar ótrúlegu fréttir af afstöðu fólks berast nú unnvörpum í örvæntingarfullri tilraun Já-sveitarinnar til að hafa áhrif á úrslitin og það merkilega er að Feisbúkkararnir eru að kyngja þessum áróðri.

Ég hef annars frétt að Steingrímur Njálsson ætli að segja já. Það hlýtur að fá einhvern til að hugsa ha! haaaa!

Jón Steinar Ragnarsson, 9.4.2011 kl. 01:07

3 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Þetta eru viðbjóðslegar myndir!

Ég segi ekki NEI vegna þess að ég vilji firra þá ábyrgð sem bera hana. Þvert á móti! 

Rakel Sigurgeirsdóttir, 9.4.2011 kl. 01:13

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Frést hefur að Móðir Theresa hafi birst í kanelsnúð á Grænhöfðaeyjum og mælt með jái. Það ætti að styrkja menn í trúnni að Kleptókrasían á Íslandi gangi á guðs vegum.

Jón Steinar Ragnarsson, 9.4.2011 kl. 01:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband