Átt þú í vandræðum með að gera upp hug þinn?

Ef svo er gæti framsetning þessa myndbands e.t.v. hjálpað þér:


mbl.is Kjörsókn nálgast 10%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nei á ég ekki erfitt með að gera upp hug minn, hef reyndar verið lengi þeirrar skoðunar að segja NEi og allt sem hingað til hefur komið fram bæði frá Neisinnum og jásinnum styrkir mig endalaust í þeim ásetningi að það sé rétt ákvörðun.  Takk innilega Rakel mín fyrir alla þína baráttu.  Eftir helgi þarf svo að hefja á ný baráttuna fyrir því að mynda nýja utanþingsstjórn.  Sennilega þurfum við að skora á forsetann að setja þetta fólk af, því ekki sjá þau sóma sinn í að gera það ótilneytt.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.4.2011 kl. 21:15

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ótilneydd átti það að vera.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.4.2011 kl. 21:16

3 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Það er a.m.k. ljóst að það verður að losa okkur við þessa stjórnmálastétt sem hefur komið sér þannig fyrir að hún vinnur gegn almenningi til að þjóna eignastéttinni. Það er gott að vita af þér í þeirri baráttu!

Rakel Sigurgeirsdóttir, 8.4.2011 kl. 21:28

4 Smámynd: Libertad

Er ekki til ensk útgáfa af þessari teiknimynd á YouTube? Og hollenzk?

Libertad, 8.4.2011 kl. 21:51

5 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Bretar og hollendingar eiga eitt tromp uppi í erminn til að ná sér niðri á okkur fyrir að segja nei. Það er að greiða götu okkar inn í Evrópusambandið.  Hefðu þeir haldið því á lofti færi þetta væntanlega á annan veg.

Annars er vert að rifja upp að í upphafi þá voru það þeir sem hótuðu að draga okkur fyrir dómstóla. Hvað breyttist er ráðgáta...eða kannski ekki. Fara þeir í mál við okkur núna? Ég held trauðla, nema að þeir séu svo vilausir að vilja knýja á um að þeirra eigin ríkissjóðir taki fulla ábyrgð á innistæðum í þeirra ríkjum. Við núverandi horfur í efnahagsmálum Breta (skuldir 430% af GDP) þá væri það einfaldlega sjálfsmorð.

Jón Steinar Ragnarsson, 8.4.2011 kl. 22:38

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Má ekki segja að þetta sé pattstaða hjá bretum og hollendingum.  Um leið og þeir myndu vinna, myndu þeir í raun og veru tapa meiru?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.4.2011 kl. 22:43

7 Smámynd: Lúðvík Júlíusson

og þeir Bretar sem voru í vafa um að Icesave væri ekki traust voru hughreistir...

Ekki of stór biti fyrir Ísland

„Bankarnir eru svo traustir að svona laga er ólíklegt til að gerast nokkru sinni. Og ef eitthvað þvíumlíkt gerist yrði ekki um að ræða alla upphæðina, því þannig er það aldrei, en jafnvel þó yrði þetta ekki of stór biti fyrir Ísland, sem er skuldlaust, til að gleypa, ef það myndi vilja gleypa hann.“

Væri ekki hægt að koma þessu í þessa teiknimynd?

Lúðvík Júlíusson, 8.4.2011 kl. 23:57

8 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Hér er hún a.m.k. á ensku: http://www.youtube.com/watch?v=XCTy01auRVs&feature=player_embedded#at=41 Mér er ekki kunnugt um að hún hafi verið talsett á hollensku.

Rakel Sigurgeirsdóttir, 9.4.2011 kl. 00:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband