Bankanum er sama um þig
8.3.2013 | 00:01
Haustið 2010 tóku nokkrir einstaklingar sig saman og komu upp sérstöku bloggsvæði til að vekja athygli á niðurstöðum Rannsóknarskýrslu Alþingis. Bloggsíðan var stofnuð 24. ágúst 2010 og lifði fram til atkvæðagreiðslunnar um landsdóm 28. september 2010. Þar sem ekkert uppgjör hefur farið fram eftir hrunið á margt af því sem þar var skrifað fullt erindi enn.
Hér er endurbirt færsla sem fjallar um breytinguna, sem átti sér stað við einkavæðinguna, á starfsemi bankanna. Færslan sem um ræðir heitir: Takmarkalaust virðingarleysi gagnvart almenningi Hún er birt hér með minni háttar frávikum sem koma einkum fram í því að hér hafa verið settar millifyrirsagnir og sett ný lok sem eru í sérstökum kafla.
Fjárfestingabankar í stað viðskiptabanka
Það má gera ráð fyrir að eftirfarandi lýsing sé sú mynd sem flestir hafa hingað til gert sér af eðlilegri bankastarfsemi:
Hefðbundin bankastarfsemi felst í því að taka við innlánum frá sparifjáreigendum, sem vilja geyma fjármuni sína í lengri eða skemmri tíma, og lána áfram til arðbærra verkefna. Bankinn er fjárvörsluaðili þeirra sem trúa honum fyrir sparifé sínu og þarf að vera gætinn í lánum til annarra þannig að hann verði ekki fyrir of miklum útlánatöpum. Lögð hefur verið áhersla á þá ímynd að að bankinn beri umfram allt hag viðskiptavinarins fyrir brjósti og í því skyni hafa í áranna rás þróast íhaldssamar reglur í þessum samskiptum. (bls. 59)
Fyrir einkavæðinguna nutu íslenskar fjármálastofnanir trausts sem grundvallaðist á þessari mynd. Á þeim ellefu árum sem eru liðin frá því að hún átti sér stað hefur þetta heldur betur snúist við. Við einkavæðinguna hófust hinir nýju eigendur þeirra handa við að breyta bönkunum, sem þeir komust yfir, úr hefðbundnum innlánsstofnunum í fjárfestingabanka sem hafa það hlutverk að þjónusta viðskiptalíf og stóra fjárfesta. Tekjur fjárfestingabanka byggjast ekki á muninum á innláns- og útlánsvöxtum heldur þóknunum fyrir þjónustuna við viðskiptalífið og stóra fjárfesta.
Almenningur fylgdi ofangreindum breytingum ekki eftir [heldur] treysti bankanum sínum eins og hann hafði alltaf gert . Fæstir gerðu sér grein fyrir að með nýjum tímum voru komnir gjörbreyttir siðir. (bls. 59)
Almenningur varð varan sem gaf arð
Viðskiptavinirnir gerðu sér þess vegna ekki grein fyrir að ekki var lengur litið á þá sem skjólstæðinga bankanna heldur sem vöru sem gat gefið arð. Samkeppni, bæði á milli bankanna og innan þeirra, jókst gríðarlega. Bankarnir kepptust við að bjóða í viðskiptavini samkeppnisaðilanna með alls kyns gylliboðum og innan bankanna var komið upp söluhvetjandi bónuskerfi.
Þetta hafði þær afleiðingar að þjónustu- fulltrúarnir sem viðskiptavinirnir álitu að hefðu þeirra hagsmuni í huga voru oft og tíðum að veita ráðgjöf varðandi þjónustu bankans sem skilaði þeim sjálfum aukagreiðslu í vasann. Þ.e.a.s. ef kúnninn beit á agnið.
Þetta skýrir m.a. þá gífurlegu áherslu bankanna á alls konar þjónustuformum eins og t.d. það sem náms- mönnum er boðið upp á. Í þessu ljósi kemur það almenningi tæplega á óvart nú hve mikil ásókn var í að selja honum nýjar vörur eða þjónustu í bankanum. (bls. 60)
Almennt litu viðskiptavinir bankanna á þjónustufulltrúann, sem þeir voru í mestum samskiptum við, sem velgjörðarmann sinn sem þeir gátu treyst. Þjónustufulltrúar hafa líka aðgang að trúnaðarupplýsingum sem varða fjármál viðskiptavinanna þannig að það er e.t.v. ekki nema eðlilegt að almenningur vilji trúa því að þeim sé treystandi.
Þjónustufulltrúi = Aflar bankanum tekna og fær bónus fyrir
Eftir einkavæðinguna fengu þjónustu-fulltrúarnir hins vegar nýtt hlutverk sem væri nær að skilgreina sem sölumann þar sem þeim bar frekar að þjóna skammtímahagsmunum bankans fremur en hagsmunum viðskiptavinarins. Þessi nýja skilgreining hafði þær óhjákvæmilegur afleiðingar að þjónustufulltrúarnir gátu ekki lengur verið í hlutverki velgjörðamannsins sem setur hagsmuni viðskiptavinarins í öndvegi.
Þessar breyttu áherslur í starfi bankanna voru aldrei kynntar út á við. Þær komu heldur hvergi fram í samskiptum þeirra við almenna viðskiptavini. Hefðu viðskiptavinirnir t.d. verið upplýstir um það að þjónustufulltrúarnir fengu greitt fyrir hverja þá vöru sem þeir seldu þeim þá hefðu þeir eflaust litið öðruvísi á hlutverk þessara starfsmanna bankans.
Það er hins vegar ljóst að Fjármálaeftirlitið vissi af þessum nýju áherslum þó að starfsmenn þeirra hafi ekki aðhafst neitt varðandi þetta atriði fremur en önnur sem tengjast vafasömum starfsháttum bankanna á þessum árum. Því miður eru dæmin fjölmörg um það að bankarnir reyndu að blekkja einstaklinga til viðskipta þó enginn þeirra verði rakin hér.
Illráð í hagnaðarskyni
Það er að sjálfsögðu á ábyrgð einstaklingsins að taka ekki of mikla áhættu í lántöku en maður skyldi ætla að áhætta einstaklingsins á því sviði væri líka áhætta bankans. Það er líka eðlilegt að gera ráð fyrir að þeir sérfræðingar sem vinna hjá bönkunum búi yfir einhverjum starfsheiðri þannig að eðlilega gerði almenningur sér ekki grein fyrir því að oft og tíðum stríddu ráðleggingar bankanna gegn almennu siðferði og góðum starfsháttum.
Dæmi um þetta eru t.d. svonefnd barnalán Glitnis (sbr. bls. 65) og framsetning bankanna á kynningum varðandi ýmsar áhættufjárfestingar eins og í hlutabréfakaupum og kaupum á svokölluðum peningabréfum sem starfsmönnum allra bankanna var ráðlagt að kynna sem áhættulausa fjárfestingu. (sbr. bls. 63)
Þessi kúvending á starfsemi bankanna má rekja til þess að ábyrgð og raunsætt áhættumat vék fyrir voninni um áhættulausan hagnað. Hugmynd sem af öllum sólarmerkjum að dæma er runnin undan rifjum þeirra sem ráðherrarnir Davíð Oddsson og Halldór Ásgeirsson lögðu svo ríka áherslu á að eignuðust bankanna að þeir fóru á svig við lögin til að koma þeim ásetningi í kring.
Sjónarmið skammtímahagnaðar réðu ferðinni en ekki ábyrgð gagnvart samfélaginu. Allar leiðir til hagnaðar voru nýttar til fulls og eftirlitið stóð að mestu leyti aðgerðarlaust hjá. (bls. 67)
Takmarkalaust virðingarleysi
Það er ástæða til að vekja athygli á því að höfundar 8. bindisins taka það sérstaklega fram í lok kaflans sem þessi skrif byggja á að: Ástæða er til mun ítarlegri rannsóknar á afstöðu Fjármálaeftirlitsins til ýmissa vafaatriða í íslensku viðskiptalífi. (bls. 67 (leturbreytingar eru höfundar).
Það má hverjum vera orðið ljóst að innan bankanna var/er áhugaleysið á vönduðum starfsháttum nær takmarkalaust. Sömu sögu er að segja um virðingarleysið fyrir lögum og reglu. Stærstu eigendurnir og æðstu stjórnendur notfærðu sér stöðu sína óspart til að hygla sjálfum sér á kostnað almennra viðskiptavina bankanna.
Það er því óhætt að segja að bæði í því og því sem síðar hefur komið fram í orðum þeirra og gjörðum endurspeglist ekki síst takmarkalaust virðingarleysi gagnvart almennum borgurum svo og samfélagslegum hagsmunum.
Nægir þar að nefna viðtöl við marga þeirra svo og aðrar yfirlýsingar þeirra sjálfra á opinberum vettvangi en hér verður vikið að einu slíku dæmi úr Rannsóknarskýrslunni:
Þegar Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings, baðst afsökunar í Kastljósviðtali í ágúst 2009 um tíu mánuðum eftir að bankinn hans féll, tiltók hann sérstaklega hluthafa bankans, kröfuhafa og starfsmenn. Aðspurður taldi hann sér ekki skylt að biðja þjóðina afsökunar.
Annan hóp vantaði þó tilfinnanlega í upptalningu hans: það voru sparifjáreigendur - fólk sem hafði trúað bankanum fyrir sparifé sínu og tapað hluta þess í peningamarkaðssjóðum eða öðrum sparnaðar-formum, svo ekki sé talað um þá almennu viðskiptavini sem hafði verið ráðlagt að taka erlend lán eða kaupa hlutafé í bankanum þegar best lét. (8. bd. bls. 59 (leturbreytingar eru höfundar)
Það er ekkert vafamál að ef ekki hefði komið til stefnubreyting ríkisstjórnar Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks þegar bankarnir voru einkavæddir þá hefðu þeir sem eignuðust bankana í kjölfarið aldrei komið til greina sem eigendur þeirra. Þess vegna ætti það að liggja í augum uppi að þeir sem ullu eiga ekkert síður að bera ábyrgð en eigendurnir og svo þeir sem stýrðu bönkunum af slíku taumleysi sem raun ber vitni.
Ofangreindar línur eru aðallega byggðar á bls. 58-67 í 8. bindi Rannsóknarskýrslunnar.
Einkabankar búa til peninga með lánum
Þrátt fyrir hrunið eru þeir þó nokkrir sem skilja það ekki enn hvernig það vildi til. Þeir sem eru enn í þeim sporum þurfa að horfast í augu við það að á sama tíma og bankarnir voru einkavæddir fengu eigendur þeirra einkaréttinn til peningaprentunar. Þetta hljómar ekki gáfulega en þetta er því miður staðreyndin.
Við einkavæðingu bankanna vildi svo furðulega til að ríkið var áfram ábyrgt fyrir rekstri bankanna; þ.e. ef bankinn færi í þrot. Eigendur einkareknu bankanna báru og bera ekki enn neina ábyrgð gagnvart samfélaginu. Eigendur íslensku bankanna nýttu þetta óspart og lánuðu ótæpilega þar sem lánin veittu þeim ekki einungis arð í formi ýmissa lánskostnaðarliða eins og vaxta og verðtryggingar heldur færa þeir lánin sér til eignar.
Það vita allir að slíkt bókhaldsfiff getur aldrei gengið upp nema koma einhvers staðar niður. Það að færa lán sem eignir og lifa í vellystingum af því sem ekki er innistæða fyrir er ekki aðeins fullkomið ábyrgðarleysi heldur sýnir það hið algjöra siðleysi sem hefur blómstrað við vissuna frammi fyrir því að þegar allt springur þá er það ríkið, eða réttara sagt skattborgararnir, sem sitja uppi með afleiðingarnar. Þannig var það haustið 2008 og það er ekkert sem hindrar það að sams konar hrun bankanna endurtaki sig.
Hér er að lokum myndband frá Positive Money sem dregur fram mjög skýra mynd af því hvernig peningamyndunin fer fram innan núverandi bankakerfis og með hvaða afleiðingum.
Það liggur væntanlega í augum uppi eftir áhorfið að það er ekki spurning um það hvort valdið til peningamyndunar verði tekið af einkareknu bönkunum heldur hvernig og hvenær. Þeir sem vilja fræðast um aðferðina sem hefur verið lögð fram á íslenska þinginu er bent á þessa slóð.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:17 | Facebook
Athugasemdir
Takk Rakel mín.
Illráð í hagnaðarskyni, þeir sem ábyrgðina báru, hafa aldrei þurft að sæta ábyrgð laga.
Heldur komast þeir upp með áframhaldandi óþokkabrögð, gegn lífi fólks og heill þjóðarinnar.
Þetta er skítapakkið sem afvegleiddi Sjálfstæðisflokkinn frá því að gera rétt, í að gera órétt.
Frá því að axla ábyrgð á Hruninu með því að leiðrétta hinar stökkbreyttu skuldir, til þess að bjóða fólki upp á skrum eins og að kalla það í þágu heimilanna að skatttekjur ríkissjóðs renni í vasa vogunarsjóðanna.
Þetta er fólkið sem komist hefur upp með brask sitt og ránsskap.
Fólkið sem við þurfum að stöðva með Samstöðu um lífið.
Það er núna Rakel, ekki seinna.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 8.3.2013 kl. 16:42
Takk fyrir hugvekjuna þína, Ómar!!
Rakel Sigurgeirsdóttir, 8.3.2013 kl. 17:33
Hættum að eiga peninga í banka- hættum að taka lán !
Erla Magna Alexandersdóttir, 8.3.2013 kl. 17:44
Í einu orði sagt er þessi pistill ... frábær. Hafðu mikla þökk fyrir Rakel.
Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 8.3.2013 kl. 18:58
Þakka ykkur báðum innlitið og innlegg. Ég ákvað að endurbirta þessa færslu mína frá haustinu 2010 þar sem hún á jafnvel við og þá í þeirri von að innihaldið fengi betri hljómgrunn nú en þá.
Það er komin fram leið til að breyta þessu og það gefur mér von um að kjósendur leggi í að fara fram á að valdið til peningamyndunar verði tekið af einkareknum bönkum.
Rakel Sigurgeirsdóttir, 8.3.2013 kl. 19:21
Sæl Rakel,
Virkilega góður pistill.
Af hverju komst Bretton-Woods samkomulagið á og af hverju var það fellt úr gildi.
Hvers vegna er það ekki tekið upp að nýju. Sagan kallar skýrt á það.
kv/Itg
itg (IP-tala skráð) 8.3.2013 kl. 19:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.