Uns uppgjöri lýkur...
19.3.2013 | 15:38
Í tilefni dagsins sem fyrirsögnin á forsíđu Fréttablađsins er: Níu ákćrđir fyrir stćrsta mál sinnar tegundar í heiminum! finnst mér viđ hćfi ađ velja einn ţeirra pistla sem ég skrifađi á Rannsóknarskýrslubloggiđ haustiđ 2010.
Sá sem varđ fyrir valinu birtist 1. september 2009 og nefnist
Var ţeim greitt fyrir ađ ţegja?
Margir hafa furđađ sig á ofurlaunaţegunum sem stýrđu stćrstu bönkunum en ţađ er tćplega nokkur mađur, utan ţeirra sjálfra, sem efast um óheilindi ţeirra. Vćntanlega voru ţeir ţó ekki beinir gerendur í efnahagshruninu heldur verkfćri eigendanna.
Svör bankastjóranna viđ gagnrýni á ţau himinháu laun sem ţeir ţáđu á árunum frá einkavćđingu og fram ađ hruni hafa gjarnan veriđ á ţann veg ađ ţeir hafi gengt svo mikill ábyrgđ. Hvađ sem um ábyrgđina má segja er ljóst ađ ţeir stóđu ekki undir henni gagnvart samfélaginu. Hins vegar má spyrja sig hvort svör ţeirra vísi til ábyrgđar gagnvart eigendum bankanna sem komiđ hefur í ljós ađ stríddu gegn almannahagsmunum?
Ţađ er nefnilega ljóst ađ stćrstu eigendur bankanna voru jafnframt í hópi stćrstu lántakenda ţeirra. (8. bindi Skýrslunnar bls. 38) Ţeir virtu heldur engar reglur um tryggingar og útlánaáhćttu heldur sveigđu ţćr til ef ţeim bauđ svo viđ ađ horfa. Í ţessu ljósi er eđlilegt ađ mađur spyrji sig hvort ofurlaun bankastjóranna í: Glitni, Kaupţingi og Landsbankanum megi skilja sem svo ađ ţögn ţeirra hafi veriđ eigendunum svona dýr?
Eftirfarandi töflu yfir heildarlaun bankastjóra ofantalinna banka er ađ finna í 8. bindi Rannsóknarskýrslunnar bls. 43:
|
| 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 |
Bjarni Ármannsson | Glitnir | 80.057.080 | 137.467.312 | 230.881.360 | 570.844.544 | 11.149.876 |
Lárus Welding | Glitnir |
|
|
| 387.661.792 | 35.823.212 |
Hreiđar Már Sigurđsson | Kaupţing | 141.786.672 | 310.321.280 | 822.697.408 | 811.961.856 | 458.917.504 |
Ingólfur Helgason | Kaupţing | 55.391.704 | 139.805.184 | 126.805.760 | 129.493.760 | 77.966.984 |
Sigurjón Ţ. Árnason | Landsbanki | 42.089.283 | 112.820.768 | 218.169.279 | 234.332.638 | 355.180.856 |
Halldór J. Kristjánsson | Landsbanki | 33.775.376 | 262.887.573 | 143.907.850 | 105.839.025 | 133.628.686 |
Ţetta eru svo stjarnfrćđilegar tölur ađ einstaklingur af mínu kaliberi nćr tćpast utan um ţćr. Ég ćtla ţó ađ freista ţess ađ fjalla frekar um ţćr upplýsingar sem er ađ finna í ţessari töflu. Fyrst skulum viđ skođa samanlögđ heildarlaun ţessara bankastjóra fyrir árin 2004-2008 og međalmánađarlaun yfir ţetta sama tímabil:
| Samtals | Međallaun á mán. |
Hreiđar Már Sigurđsson | 2.545.684.720 | 42.428.078 |
Bjarni Ármannsson | 1.030.400.172 | 17.173.336 |
Sigurjón Ţ. Árnason | 962.592.824 | 16.043.213 |
Halldór J. Kristjánsson | 680.038.510 | 11.333.975 |
Ingólfur Helgason | 529.463.392 | 8.824.389 |
Lárus Welding | 423.458.004 | 17.644.083 |
Ég ćtla ađ byrja á ţví ađ vekja athygli á ţví ađ ástćđan fyrir ţví ađ Lárus Welding er međ lćgstu heildarlaunin er sú ađ hann tók ekki viđ sem bankastjóri í Glitnis-banka fyrr en áriđ 2007. Hann hefur ţví veriđ annar hćst launađasti bankastjórinn ef miđađ er viđ međallaun á mánuđi.
Mér ţykir líka ástćđa til ađ vekja sérstaka athygli á launum Hreiđars Más Sigurđssonar. Heildarlaun hans eru til dćmis meira en tvöfalt hćrri en laun Bjarna Ármannssonar á ţessu tímabili og vekur ţađ upp spurningar hvort ţögn Hreiđars Más sé dýrmćtari en hinna eđa hvort leyndarmálin sem honum er ćtlađ ađ ţegja yfir séu dýrari en ţeirra?
Ţegar međalmánađarlaun ţessara bankastjóra eru skođuđ kemur ţađ líka í ljós ađ laun Hreiđars Más eru margfalt hćrri en međalmánađarlaun ţeirra sem eru međ lćgstu mánađarlaunin á ţessu tímabili. Ţessi samanburđur kemur fram hér:
| 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 |
Hreiđar Már Sigurđsson | 11.815.556 | 25.860.106 | 68.558.117 | 67.663.488 | 38.243.125 |
Halldór J. Kristjánsson | 2.814.614 |
|
| 8.819.918 |
|
Sigurjón Ţ. Árnason |
| 9.401.730 |
|
|
|
Ingólfur Helgason |
|
| 10.567.146 |
|
|
Bjarni Ármannson |
|
|
|
| 929.156 |
Eins og kemur fram í ţessari töflu er Hreiđar Már međ tćplega fimm sinnum hćrri laun áriđ 2004 en Halldór sem er međ lćgstu međallaunin á mánuđi ţađ ár. Nćsta ár á eftir er lćgst launađasti bankastjórinn, af ţessum sex, tćplega ţrefalt lćgra launađur en Hreiđar Már. Árin 2006 og 2007 verđur munurinn enn meiri enda minnir heildarmánađarlaunasumma Hreiđars Más meira á heildarveltu stórs fyrirtćkis en mánađarhýru eins launamanns.
Áriđ 2006 eru mánađarlaun Hreiđars Más nćr ţví tífalt hćrri en lćgst launađasti bankastjórinn í ţessum samanburđi hefur í mánađarlaun en mánađarlaun Ingólfs Helgasonar fara samt töluvert yfir árstekjur býsna margra, sem teljast til almennra launţega, ţađ áriđ. Munurinn dregst eitthvađ saman nćsta ár á eftir en er ţó áttfaldur.
Áriđ 2008 dragast laun Hreiđars Más svo umtalsvert saman (ţó ţau séu enn stjarnfrćđilega há á minn mćlikvarđa a.m.k.) og Bjarna Ármannssyni skýtur upp međ lćgstu međalmánađarlaunin fyrir ţetta ár. Í ţessu sambandi er rétt ađ hafa ţađ í huga ađ hann lét af störfum sem bankastjóri voriđ 2007 ţannig ađ samanburđurinn er tćplega marktćkur.
Ástćđurnar sem gefnar voru upp fyrir háum launum í bankakerfinu voru einkum samanburđur viđ önnur lönd en laun í fjármálakerfinu fóru verulega hćkkandi á ţessum tíma. Viđ erum í samkeppni um starfsmenn á sumum stöđvunum ţar sem viđ erum ađ borga mjög lág laun ţó ađ ţau, í samhengi hér heima, ţćttu alveg óheyrilega há. Ţau laun sem ég hef veriđ međ hjá ţessum banka síđan 2003 hafa í öllum samanburđi viđ ţá sem ég ber mig saman viđ veriđ óheyrilega lág. [...] segir Sigurđur Einarsson, stjórnarformađur Kaupţings. (8. bindi Skýrslunnar bls. 43)
Ađ lokum er sennilega forvitnilegt ađ skođa hver heildarlaunasumma bankastjóranna var á ţeim árum sem hér hafa veriđ til skođunar. Á milli ára lítur hún ţannig út:
Heildarlaun bankastjóranna fyrir hvert ár | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 |
353.100.115 | 963.302.117 | 1.542.461.657 | 2.240.133.615 | 1.072.667.118 |
Ţegar ţessar tölur eru lagđar saman í eina ţá kemur út talan: 6.171.664.622,-
Ef kenningin sem sett er fram í hér ađ framan á viđ rök ađ styđjast ţá er ljóst ađ ţögnin er dýrkeypt! En ţađ er líka ljóst ađ ţađ eru ţeir sem hafa ekki einu sinni hugmyndaflug til ţeirrar ósvífni sem ţessir menn gerđu sig seka um sem bera kostnađinn!!
Mikiđ mćđir á Kaupţingstoppum | |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:25 | Facebook
Athugasemdir
Athylgisvert
Brynjólfur Tómasson (IP-tala skráđ) 19.3.2013 kl. 15:55
Manni verđur flökurt..
hilmar jónsson, 19.3.2013 kl. 15:56
Tek undir međ Hilmari og bćti viđ, ţvílíkur viđbjóđur.
Sigurđur Kristján Hjaltested (IP-tala skráđ) 20.3.2013 kl. 00:11
"Ţegar ţessar tölur eru lagđar saman í eina ţá kemur út talan: 6.171.664.622,-"
Sé nú ţessi tala tvöfölduđ bćtt viđ fjórum og einn geymdur er útkoman=12.343.329.248.- ađ viđbćttum ţessum eina sem geymdur er eru ţađ alls: 12.343.329.249.-
Kristján Sigurđur Kristjánsson, 20.3.2013 kl. 00:37
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.