Ofbeldissamband yfirvalda við almenning
14.10.2012 | 06:38
Það varð mörgum reiðarslag að lesa fréttir af nýjustu tilnefningu Nóbelsverðlaundanefnd-arinnar til friðarverðlaunanna þetta árið. Tilnefningin var réttlæt með upprifjun á þeim texta sem settur var saman við stofnun Evrópusambandsins án þess að það væri vikið einu orði að þeim ófriði sem niðurskurðarstefna þess hefur valdið um gjörvalla Evrópu þó einkum í suðurhluta álfunnar.
Það er í rauninni ekki hægt að segja annað en að þessi tilnefning til friðarverðlauna Nóbels sé partur af því ofbeldi sem Evrópusambandið og þeir sem því eru bundnir standa á bak við. Sjálf upplifði ég ofbeldið af lestri fréttarinnar í gegnum augnabliks lömun. Ég var slegin af þögn furðulostinna geðshræringa um leið og það smaug í gegnum hug minn að bilunin er sennilega miklu alvarlegri en við sem spyrnum á móti höfum sannfærst um nú þegar.
Með því að Nóbelsverðlaunanefndin tilnefnir Evrópusambandið til friðarverðlaunanna er það nefnilega ljóst að valdhafarnir eru haldnir svo alvarlegri blindu að þeir eru hættulegri mannfólkinu, lífinu og heiminum en flestir hafa hingað til gert sér grein fyrir! Sjálfhverfa þeirra er svo fullkomin að verk þeirra munu eyða núverandi ásýnd jarðlífsins fyrr en síðar. Þessar fréttir hafa komið mér til þeirrar niðurstöðu að það er ekki spurning um það hvort heldur hvenær...
Eina huggunin er sú að þegar valdakerfið sem við er að etja opinberar sig á þennan máta þá er líklegt að milljónir bregðist við á sama hátt þegar þeir átta sig á því hvurs lags klikkun er við að eiga, rísi upp á afturlappirnar með hinum og segi: Hingað og ekki lengra! Ég hef ekkert með samband við ofbeldisseggi eins og Evrópusambandið og áhaggendur þess að gera þannig að verið þið úti!
Það er auðvitað óskandi að sá fámenni en háværi hópur Íslendinga sem enn reynir að halda því fram að hagsmunum lands og þjóðar sé best borgið innan ESB hafi sjálfum brugðið nógu mikið við þessar fréttir að þeir áreiti þjóð sína ekki frekar með blindu auga og hálfum sannleik varðandi bandalag sem er að leggja ásýnd og menningu landanna, sem standa okkur næst í efnahagslegu tilliti, í rúst.
Fjölmenn mótmæli gegn stjórnvöldum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:43 | Facebook
Athugasemdir
Er þetta nú ekki full langt gengið, þessar ofbeldismyndir tengjast eingöngu mótmælum gegn stjórnvöldum heimafyrir, fyrir þeirra eigin óráðsíu og spillingu. Evrópusambandið hefur ekki komið nálægt þessu.
Stefán Þ Ingólfsson, 14.10.2012 kl. 11:03
Góður pistill Rakel, en ég get alveg sagt þér að þetta hefur enginn áhrif á trúboða ESB, þeir eru nefnilega algjörlega blindir á allt nema aðdáun sína og löngun til að tilheyra ESB. Taka engum rökum, taka ekki sönsum og það er eins hægt að tala við steininn og þetta fólk.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.10.2012 kl. 12:02
Það er sennilega nokkuð til í því hjá þér, Ásthildur. Það verður a.m.k. niðurstaðan miðað við innlegg Stefáns Þ. Ingólfssonar sem kýs að klippa gríðarlega mikilvægt og fyrirferðarmikið orsakasamhengi af alfeiðingarmyndunum. Hann tekur m.a.s. svo stórt upp í sig að fullyrða að: „Evrópusambandið hefur ekki komið nálægt þessu.“
Það væri betur ef satt væri en það kemur af því að samhengið getur ekki einu sinni farið fram hjá einlægustu trúfélögum Evrópusambandsins. Við hin eigum sennilega fárra kosta völ en sína þeim þolinmæði og skilning þangað til. Verst hvað umburðarlyndið í þessu sambandi er samfélagslega dýrt.
Rakel Sigurgeirsdóttir, 14.10.2012 kl. 23:43
Já það er ansi dýrt að sýna þolinmæði því miður. En það ætti að taka niður nöfn þessara blindingja og stríða þeim svolítið þegar allt er búið, bara svona upp á grín Eða verðlauna þá með one way ticket to Brussel.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.10.2012 kl. 00:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.