Íslendingar eru á gálgafresti...
27.9.2012 | 04:40
Sú staða sem Grikkland og Spánn eru í nú er sú staða sem Ísland væri í líka ef hér hefðu ekki farið fram tvær þjóðaratkvæðagreiðslur um Icesave-samningana og Tunnumótmæli haustið 2011. Það heyrast samt enn raddir sem segja að viðspyrnan hér á landi hafi ekki skilað neinu.
En ef ekki hefði verið fyrir Indefence-hópinn sem vann ötulega að því að knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslurnar í byrjun árs 2010 og Samstöðu þjóðar gegn Icesave fyrri hluta árs 2011 þá væru kjör almennings á Íslandi þau sömu og Grikkir og Spánverjar standa frammi fyrir nú. Tunnumótmælin í októbermánuði 2011 knúðu svo fram sérstakar vaxtaniðurgreiðslur sem hafa haldið stórum hluta lánagreiðenda góðum síðan. Samkvæmt nýjum fjárlögum er gert ráð fyrir að viðlíka plástrameðferð verði framhaldið fram yfir kosningar.
Viðspyrnan hér á landi hefur skilað íslensku þjóðinni gálgafresti. Því miður eru þeir allmargir sem átta sig ekki á árangri hennar. Í stað þess að honum sé fylgt eftir hefur árangurinn orðið til þess að slá viðspyrnuna niður. Í skjóli viðspyrnuleysisins er stefna stjórnvalda sú sama og hefur leitt lífskjör almennings í Grikklandi og á Spáni til þeirra hörmunga að stefnir til alvarleika borgarastyrjaldar í báðum löndum.
Á þriðjudaginn var mótmælt á Spáni og aftur í gær. Í Grikklandi var mótmælt í gær. Kannski halda mótmælin þar áfram í dag. Það sem veldur ekki sístum ónotum yfir fréttum af mötmælunum í báðum löndum er sú staðreynd að þær fjölþjóðlegu fjármálastofnanir sem íslensk stjórnvöld hafa ofurselst varðandi stefnu og leiðir í efnahagsmálum eru orsakavaldar þeirrar stórfelldu lífskjaraskerðingar sem almenningur beggja landa er að mótmæla.
Í stað þess að grísk og spænsk stjórnvöld mæti kröfum kjósenda sinna víggirðast þau með lifandi her vígbúinna lögreglumanna. Í báðum löndum fer lögreglan fram með slíku offorsi að það vekur ekki aðeins furðu heldur líka illan grun. Hér er myndband frá óháða fréttamiðlinum therealnews.com sem sýnir mjög vandaða frétt þeirra frá mótmælunum á Spáni sl þriðjudag:
Þessi frétt kveikti upp eftirfarandi hugleiðingar sem ég lét fylgja krækju á myndbandið sem ég setti inn á Fésbókina:
Hér er frétt af mótmælum gærdagsins á Spáni sem er unnin skv. því sem fréttamönnum var a.m.k. einu sinni kennt að fara eftir. Það er að fréttir þeirra uppfylltu alltaf háin sex. Það er: HVAÐ, HVAR, HVENÆR, HVER/HVERJIR, HVERS VEGNA og HVERNIG.
Fréttamaðurinn sem vinnur þessa frétt vinnur á óháðum fréttamiðli sem hefur ekki yfir miklum peningum að ráða. Það er kannski þess vegna sem hann segir okkur: HVAÐ er um að vera. HVERJU er verið að mótmæla. HVERNIG mótmælin fóru fram og HVERS VEGNA kom til átaka á milli lögreglu og mótmælenda.
Útkoman er ekki aðeins upplýsandi frétt heldur áhrifarík. Hún leiðir í ljós nöturlegan sannleika um það hverjir etja einkennisbúnum mönnum gegn almenningi sem er í nákvæmlega sömu stöðu og þeir sjálfir. Hún fær mann líka til að hugsa hvers vegna lögreglan fer fram gegn almenningi og hvaða afleiðingar það muni hafa.
MÍN NIÐURSTAÐA ER ÞESSI: Það eru peningaöflin sem etja lögreglumönnunum fram í krafti þess að þeir eru menn sem eru að verja lífsviðurværi sitt. Ef peningaöflunum tekst ætlunarverk sitt verður borgarastyrjöld á milli lögreglu/hers og almennings. Í þvi stríði munu átökin stöðugt harðna með tilheyrandi líkams- og sálarmeiðingum. Borgarastríðið þjónar engum nema peningaöflunum vegna þess að í skjóli þess tekst eigna- og valdastéttinni að viðhalda forréttindum sínum í nokkrar kynslóðir til viðbótar.
Á meðan almenningur berst í tveimur fylkingum, þar sem önnur er í einkennisbúningi þeirra sem byggja lífsviðurværi sitt á því að verja valdhafa og peningamarkaðinn en hin stendur saman af öðrum atvinnustéttum, fara átökin sífellt harðnandi þar til þau ná hámarki í blóðsúthellingum. Það tekur næstu kynslóðir einhverja áratugi að græða sárin.Borgarastríðið þjónar því engum nema eigna- og valdastéttinni og þess vegna mun hún ekki gera neitt til að binda enda á það heldur kynda undir... m.a. með hjálp peningastýrðra fjölmiðla!
Af þessu tilefni langar mig til að hrósa þessari óvenjulega vönduðu frétt á mbl.is af mótmælunum á Spáni. Íslensk kona sem er búsett í Grikklandi lýsir samskiptum lögreglu og almenning á þann hátt að það vekur ekki ósvipaðar hugrenningar og hér að ofan en það var þetta sem hreyfði mest við mér: Íslensk kona sem búsett er í Grikklandi fylgdist með mótmælunum og segir suma mótmæla þó ekki sé nema sjálfsvirðingarinnar vegna en margir hafi misst trúna á að hægt sé að sporna við málum.
Við lesturinn var mér óneitanlega hugsað til Íslendinga. Þrátt fyrir árangurinn sem hefur náðst með viðspyrnunni hér á landi eru þeir þó nokkrir sem aldrei hafa haft neina trú á að það að sporna á móti beri árangur. Enn fleiri hafa verið að gefast upp á síðasliðnu eina og hálfa ári þrátt fyrir dæmin sem ég taldi upp hér að ofan. Miðað við fjöldann sem mótmælti við setningarræðu forsætisráðherra þ. 12. september þá er hægt að segja að þeir eru sorglega fáir meðal íslensku þjóðarinnar sem hafa nægilega sjálfsvirðingu til að mótmæla óréttlætinu sem þeir mæta sjálfir og/eða horfa upp á að meðbræður þeirra verða fyrir...
Maður spyr sig óneitanlega að því hvað veldur? Því það eitt er víst að hér á landi hefur náðst tvímælalaus áragnur með mótmælum og annars konar viðspyrnu. Íslenska lögreglan hefur heldur ekki sýnt sig í að koma fram gagnvart samborgurum sínum eins og sú gríska og spænska þó íslensk stjórnvöld þiggi vel flest sín ráð frá sömu stofnunum og stjórnvöld Grikklands og Spánar.
Grikkir hræddir og vilja breytingar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:31 | Facebook
Athugasemdir
Takk enn og aftur fyrir góðan pistil Rakel. Það vita það allir sem vilja vita það að mótmælin eru bæði nauðsynleg og óumflýjanleg ef við viljum betra Ísland, að vísu er sú von farin að dofna þegar maður sé umfang spillingarinnar. En við megum ekki hætta. Við m unum vinna sigur. Og það mun koma sá tími að mótmælanna verður minnst með þakklæti og virðingu, bæði tunna, inDefence, búsáhaltabyltinarinnar og Harðar Torfasonar.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.9.2012 kl. 09:29
Takk Rakel.
Það er vegna þess að taktíkin "Kastljós hefur undir gögn" virkar svo vel.
Styrmir benti á í góðum pistli fyrr í haust þegar hann fjallaði um valkosti Rússa til að berja Eystrasaltslöndin til hlýðni, að þeir hefðu ákveðið, í stað þess að vera með beinar hótanir, að setja mikla fjármuni í undirróður, að grafa þannig undir stöðugleika, að skapa tilbúna óglu og svo framvegis.
Fjölmiðlarnir sem slógu skjaldborg um ICEsave fjárkröfur breta, Kastljós, DV, Fréttablaðið, Smugan, þeir slá skjaldborg um íslenska andófið, svo það fjalli aldrei um það sem máli skiptir.
Og tekst nokkuð vel, ólíkt því sem var í ICEsave deilunni.
Þetta kallast að læra að reynslunni.
Og það var auðvaldið sem lærði.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 27.9.2012 kl. 09:56
Takk fyrir frábæran pistil Rakel. Hinum sauðsvarta almenningi er það nú orðin lífs-nauðsyn að læra þá göfgu list að standa saman, í stað þess að láta draga sig í í dilka sem sauði til slátrunar:
Í SLÁTURTÍÐINNI
Slátrararnir standa blóðugir
- glaðbeittir í uppgripum og ati -
skella á krók og skera á háls
rista fyrir og taka innan úr
afhausa og flá.
Raflýsingin í loftinu glottir
kalt - og skrokkar okkar
bíða stirðnandi
eftir vottunar-stimplun
auðræðis fógeta
þríeykis þursa.
Á meðan gagga þau undir
há-æruverðug geldhænsnin
- laga- og stjórnsýsluvaldið -
og allt embættismanna hyskið
lúrir áfram og sefur sem fyrr
- fjár-valdboðum samkvæmt-
Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 27.9.2012 kl. 14:32
Þakka ykkur fyrir innlitið heiðursfólk og þakka þér fyrir Ásthildur að benda á árangur Búsáhaldabyltingarinnar og Radda fólksins. Þetta var ekki nefnt hér fyrir það að í upphafi viðspyrnunnar treystu margir því að ný andlit myndu breyta einhverju.
Tíminn frá því að forstjórar FME og SÍ viku sætum fyrir nýjum og stólaskiptin í alþingishúsinu áttu sér stað hafa hins vegar leitt í ljós að kerfið sér við kröfum á lítilsháttar hrókeringum á fólki enda stjórnast þetta kerfið af peningunum.
Ég lagði áherslu á þá viðspyrnu sem hefur beinst að meginógninni. Þ.e. talnafræðina sem kerfið sem við er að glíma byggir tilveru sína á. Þar grundvallast allt á því hver hefur aðgang að lyklaborðinu sem býr til raffærðu peningana. Kerfið snýst um að verja þessi vé.
Viðspyrnendurnir í Icesave og Tunnunum náðu þangað inn og höfðu þess vegna afgerandi áhrif sem snertu þau debet- og kredet-fræði sem viðheldur „afburðastöðu“ eigna- og valdastéttarinnar.
Rakel Sigurgeirsdóttir, 27.9.2012 kl. 15:55
Pétur Örn takk fyrir kveðskapinn. Þetta minnir á „blóðugar hendur og sláturhús“;-)
Rakel Sigurgeirsdóttir, 27.9.2012 kl. 15:56
Ómar, þetta með fjölmiðlamafíuna er stórt mál. Mjög stórt mál! Sennilega svo stórt að það verður einn skýringaþáttanna í sögubókum framtíðarinnar varðandi það hvernig meðferðin var framkvæmanleg. Það er ekki ósennilegt að framtíðarkynslóðirnar verði jafnhneyslaðir á heildarmynd fjölmiðlakúgunarinnar eins og nútíminn á gyðingaofsóknunum, aflátssölunni og galdrafárinu.
Ég spái því að hugtakið hálfvitavæðingin verði orðið sem verður notað um þetta ofbeldissamband sem fjölmiðlar eiga við almenning á okkar tímum.
Rakel Sigurgeirsdóttir, 27.9.2012 kl. 16:03
Þeir sem standa í framvarðarlínunni verða að fá stuðning þeirra sem sitja á hliðarlínunni. Þeim er lífsnauðsynlegt að vita að þeir standa engan veginn einir.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.9.2012 kl. 16:09
Rakel Sigurgeirsdóttir, 27.9.2012 kl. 16:29
Enda þótt hendur slátraranna séu blóðugar af niðurskurði sauðanna, þá mæli ég eindregið með því að íslenskur almenningur, sem og grískur, sem og spænskur gjaldi eigi í glíku,
heldur fylgi nú fremur heillaráðum þess forn-gríska heimspekings, Díogenesar í tunnunni, sem gjarnan meig sem hundur á dýrðina:
ÚR TUNNUNNI (I)
Rökfastur er Díogenes:
Ef valdhafarnir
og stór-þjófarnir
koma fram
við almenning
eins og hunda
þá er það augljóst
að almenningur
á að spræna
á valdhafana
og stór-þjófana
eins og hundum sæmir.
Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 27.9.2012 kl. 19:27
Og spræna mun ég Pétur.
Takk fyrir þín góðu ljóð.
Þau eru lesin.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 27.9.2012 kl. 21:05
Ég tek þessu sem hvatningu
Rakel Sigurgeirsdóttir, 28.9.2012 kl. 00:09
Ég er sammála þér Rakel eins og svo oft áður
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 29.9.2012 kl. 01:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.