Exelskjalið og raunveruleikinn
12.9.2012 | 02:07
Í stefnuræðu sinni í kvöld mun forsætisráðherra tala upp af Exel-skjali um hagtölur sem urðu til í tölvum líkt og tölvufærðar peningaeignir bankanna sem ullu hruninu haustið 2008. Á grunni tölvufærðu hagtalnanna mun Jóhanna Sigurðardóttir halda því fram að Íslendingum líði almennt betur og að vísbendingar séu um að það fari að draga úr óeðlilegri tíðni vanskila. (heimildin)
Þó forsætisráðherra stigi upp í ræðustól Alþingis í kvöld og haldi slíku fram þá breytir hún ekki raunveruleikanum sem íslenskur almenningur stendur frammi fyrir. Hér á eftir verða dregnir fram þrír litlir raunveruleikamolar sem fá ekkert rúm í Excel-skjalinu hennar Jóhönnu. Sögurnar eru allar teknar upp af Facebook þar sem þær voru birtar sem stöðuuppfærslur.
1. Fyrst er það saga ungs læknis á Landspítalanum sem er nýkominn heim úr námi:
Í gær gat ég ekki fengið hjartaómskoðun í gegnum vélinda af sjúklingi vegna þess að ómhausinn á eina tækinu til þess á Landspítalanum er bilaður og það er ekki til annar haus til vara.Í dag gat ég ekki fengið kyngingarmynd af sjúklingi vegna þess að það er ekki til skuggaefni á Landspítalanum :) Vona að forstjórinn kippi þessu í lag þegar hann er komin á hærri laun. Hahahaha :-D
2. Svo er það stadus frá móður sem hefur þungar áhyggjur af framtíð barna og tengdabarna:
Ég er nú svo heppinn að börn mín og tengdabörn eru ágætlega menntuð og hafa ágætis laun. Þau eiga marga vini í þessum hærri launakanti og margir skulda 40-70 milljónir og eiga á bilinu 0-40% af sínum eignum.
Þetta fólk hefur getað greitt af sínum lánum og flest lifað sparlega en vandinn er í raun að lánin hækka um 2-3 hundruð þúsund á mánuði. Og vegna þess að þau geta greitt og staðið í skilum er engin lækkun eða annað í boði fyrir þetta fólk.
Nú er ég að heyra að margir séu að gefast upp, séu hættir eða ætli að hætta greiðslum, láta bankann hirða eignina og flytjast erlendis.
Þetta er svo grafalvarlegt ástand að ég skil ekki í hvaða ríki flestir alþingismenn búa. Þeir eru ekki að skilja samhengið svo mikið er víst.
Og mér skilst að Drómi sem er í eign Seðlabankans og þar með ríkisins sé einna verstur viðureignar.
Svo er hægt að moka tugum milljarða í SP-KEF HÍTINA sem dæmi (en kratar voru þar við stjórnvölinn síðustu metrana) og auðvitað hugsar Samfylkingin um sitt Pakk.
Guð blessi unga menntafólkið okkar sem af dugnaði og eljusemi menntaði sig og byggði sér heimili af dugnaði. Mér virðist að stjórnvöldum sé alveg sama þó þessir krakkar yfirgefi landið.
* Sparnaðurinn er búinn!
* Kaupmátturinn hefur minnkað.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 04:33 | Facebook
Athugasemdir
Mikið rétt, þrjú af mínum börnum búa erlendis, tveir synis í Noregi og dóttirin í Austurrík, þó þau vildu koma heim, þá er vonlaust að ræða það eins og ástandið er í dag. Þannig er um margar fjölskyldur, sundraðar milli landa, svo það er með ólíkindum að þessi kona skuli voga sér að tala um að allt sé gott. Þetta minnir mig á þegar Davíð Oddsson reyndi að tala upp krónuna. Það er eins og fólkið haldi að ef það segir lygina nógu oft þá bara verði það þannig. Ég hef skömm á Jóhönnu, Steingrími og flestum sem með þeim standa.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.9.2012 kl. 11:00
Ég var að horfa á kvöldfréttir gærdagsins á netinu. Þar var fjallað um það hvað á að gera til að bæta tækjabúnað heilbrigðiskerfisins. Byrja á að gera úttekt á stöðu búnaðarins og ljúka á því fyrir árslok 2014. Síðan á að gera þarfagreiningu og henni á að ljúka fyrir árslok 2015. Þá loks á að fara út í tækjakaup.
Ég skil ekki svona vinnubrögð. Ég myndi byrja strax á þarfagreiningunni og skoða samhliða því hvaða tæki, sem eru til geta uppfyllt kröfur. Þessu myndi ég ljúka fyrir mitt ár 2013. Samhliða þarfagreiningunni myndi ég byrja að endurnýja tæki sem augljóst er að þarf að endurnýja, en önnur yrðu að bíða niðurstöðu þarfagreiningar. Erum við virkilega svo illa stödd að við látum frekar sjúklinga þjást og jafnvel deyja, en að gera það sem nauðsynlegt er, þ.e. að endurnýja nauðsynlegan tækjabúnað. Hverju breytir það fyrir tækjabúnaðinn, þó hann fari fyrst í gamla byggingu? Flest tæki eru ágætlega færanleg og því hægt að flytja á milli húsa síðar.
Marinó G. Njálsson, 12.9.2012 kl. 17:19
Þetta er nú einu sinni norræna velferðarstjórnin ekki satt?
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.9.2012 kl. 17:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.