Þegar við stöndum í stað miðar okkur bara aftur á bak...

Mér þykja þau dimm voðaskýin sem hrannast upp á vonarhiminn íslenskrar þjóðar og skyggir svo á framtíðina að hún verður svartari og svartari. Hvað er til ráða? Er það ný bylting? Eigum við að hringja í Sturla og biðja hann að ræsa vörubílinn? eða bændurna og biðja þá að mæta á dráttarvélunum?
Dráttarvélar leiða mótmæli á AkureyriÞeir eru margir sem eru strax farnir að naga sig í handarbökin yfir því hvernig þeir vörðu atkvæði sínu í síðustu kosningum og lái ég þeim það ekki. Sumir vilja halda því fram að Jóhönnu Sigurðardóttur sé fjarstýrt en mönnum ber ekki saman um það hver heldur á fjarstýring- unni eða hvort sá sem á heldur er staddur innanlands eða utan.

Eins hef ég heyrt að einhverjir innan Vinstri grænna eigi orðið erfitt með svefn og finnst það ekki skrýtið miðað við það að núverandi ríkisstjórn virðist eingöngu ætla að bjarga þeim sem settu þjóðina á hausinn á kostnað almennings.

Það er engin spurning að mótmæli síðastliðins vetur höfðu áhrif en útkoman sem við horfum upp á núna er alls ekki sú sem ég vænti með stöðu minni í mótmælunum. Ég treysti heldur alls ekki Samfylkingunni til að leiða stjórnarsamstarfið við núverandi aðstæður.

Ég reikna með að allir viti að Jóhanna Sigurðardóttir mætti ekki á einn einasta Borgarafund. Hún hlustaði aldrei á fólkið í landinu sem vildi koma áhyggjum sínum af stjórn og framtíð landsins á framfæri. Samt kusu margir Samfylkinguna vegna hennar! Það má vel vera að hún hafi haldið dyggan vörð um lítilmangann áður en nú þegar hún er komin í forsætisráðherrastólinn, á atkvæðum þeirra sem kusu hana út á manngæsku hennar, þá stendur hún dyggan vörð um fjármálastofnanir landsins eins og fyrirrennarar hennar.

Dæmdur til að sökkvastHún leggur því lið að frumvarp sem eiga að stuðla að réttindum erlendra kröfuhafa séu keyrð í gegnum þingið. Hún lætur drauminn um að koma Íslandi inn í ESB ganga fyrir því að þeir sem rændu og eru enn að ræna þjóðina séu stöðvaðir. Í stuttu máli sagt: Hún stendur vörð um þá sem hafa efni á að kosta kosningarbaráttur stjórnmálamanna og - flokka.

Undanfarinn vetur hafa ótrúlega margir erlendir og innlendir sérfræðingar komið með hugmyndir um það hvernig megi koma íslensku þjóðinni út úr þeirri efnahagskreppu sem fyrrverandi ríkisstjórnir sigldu henni inn í. Þeir hafa sett fram hugmyndir og kenningar sem hefur verið vel tekið af hugsandi einstaklingum vegna þess að þær líta virkilega út fyrir að geta virkað og orðið okkur til bjargar. Í stað þess að hlusta eða þiggja ráð allra þessara sérfræðinga hjakkar núverandi ríkisstjórn í gömlu fari.

Þessu útúrspólaða hjólfari með aðferðum sem hafa verið margreyndar og hafa engu eða litlu skilað eins og hækkunum á „jaðarneyslu“ og svo er það ESB-aðildardraumurinn. Mér sýnist að þeir séu reyndar enn þó nokkrir sem trúi því í alvöru að aðild að ESB sé raunhæfur kostur og slík aðild muni skila Íslendingum einhverri ofurjákvæðri niðurstöðu.

Flestir fylgjendur slíkrar aðildar hafa samt átt í nokkrum erfiðleikum með að útskýra fyrir mér hverju hún á að bjarga því í rökum flestra felst draumurinn um að allt verði eins og var fyrir hrun. Í þeirri staðreynd felast einmitt helstu mótrök mín því samkvæmt mínum skilningi er ESB bara enn stærra nýfrjálshyggjubákn en það sem útrásarvíkingarnir byggðu inni í bönkunum, með alls konar sýndarfyrirtækjum, í skjóli vanhæfra stjórnmálamanna.

Óraunhæf þolinmæðiÞað varð að sjálfsögðu töluverð endurnýjun á þingi í kjölfar síðustu kosninga. Þeir sem leiða stjórnar- samstarfið eru samt af gömlu elítunni enda engar nýjar hugmyndir, engar snjallar eða framsæknar lausnir sem hafa komið þaðan. Ég er komin að þeirri niðurstöðu að gagnrýni mín og fleiri á það sem ríkisstjórn undir forystu Jóhönnu Sigurðardóttur sé ekki spurning um skort á þolinmæði heldur heilbrigð skynsemi...

Þess vegna kref ég þessa ríkisstjórn um það sama og ég krafði þá sem Geir H. Haarde leiddi: Viðurkennið vanmátt ykkar og úrræðaleysi. Rekið gömlu sérfræðingana eða brúðuleikhússtjórana ykkar. Hlustið á alla þá innlendu og erlendu sérfræðinga sem hafa komið fram á sjónarsviðið; sumir m.a.s. fyrir hrun. Það mun leiða okkur öll út úr þessu myrkri sem við erum stödd í núna og forða okkur frá nýrri og að öllum líkindum heiftúðugri byltingu.

Langar að lokum að vekja athygli allra á vefsíðunni Hvítbók!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

takk fyrir frábæra grein að venju Rakel,og satt er hjá þér að það virðist eiga að vera helsti metnaður þessar landráðastjórnar að standa vörð um erlenda kröfuhafa til að vinna sér inn stig í sölu Íslands til ESB.komið hefur nú æ betur í ljós að engu af þessu fólki er trúandi fyrir endurreisn landsins og því fyrr sem þau horfast í augu við það að hér er ekki verið að tjalda til eins kjörtímabils heldur fórna sjálfstæði hlýtur þetta fólk af hörfa frá sinni firringu.

zappa (IP-tala skráð) 31.5.2009 kl. 01:50

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Heyr, heyr Rakel.  Ég er sammála þér, núverandi stjórn stendur vörð um þá sem borguðu kosningarbaráttuna þeirra. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 31.5.2009 kl. 01:54

3 identicon

Mjög góður pistill hjá þér, Rakel, og svo efnismikill að ég veit ekki hvar best er að stinga niður til að bæta við. En Hvítbókin! Hún er safn af ljótu fólki og sumu illa innrættu það best verður séð. Það er illt innrætti að stinga af frá skuldum sínum.

Ég held ennþá að Jóhanna vilji vel, en ég á erfitt með að verja störf hennar sem forsætisráðherra. Hneygist helst að því að hún sé komin í starf sem hún ræður ekki við. Það er ekkert nýtt að fólk hækki í valdapýramída vinnustaðar síns þar til það kemst í starf sem það ræður ekki við. Hrædd er ég um að þetta hafi nú hent Jóhönnu og hitti okkur og þjóðina okkar illa.

Það var nauðsynlegt að koma ríkisstjórn GH og ISG frá. Þau höfðu ekki bara sofið á verðinum heldur ákváðu þau að blekkja bæði Íslendinga og útlendinga þegar þau voru látin horfast í augu við hvert stefndi. Af hverju hugsa ég um landráð þegar mér verður hugsað til þess að þau vissu allt árið 2008 og hluta af árinu 2007 hvert stefndi? Af öllu því sem þau gerðu rangt fannst mér verst að þau höguðu sér eins og einræðisherrar þegar þjóðin krafðist þess að þau segðu af sér: Neituðu að fara frá þegar lýðurinn vissi að þau voru vanhæf: Ætluðu að sitja eins lengi og þeim hentaði, fullkomlega í óþökk lýðsins. Þegar þarna var komið rann upp fyrir mér að þau höfðu eitthvað að fela: Það gat ekki verið að á Íslandi höguðu ráðherrar eins og þau gerðu nema þeir þyrftu tíma til að hylja slóð. Ég spyr mig enn hvernig huldu þau slóðina og grunar að þau hafi gert það með þvi að undirrita skjal við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn: Skjal sem á eftir að eyðileggja það samfélag sem við höfum til þessa þekkt hér á landi. Hvers vegna velur SJS að taka þátt í þessum feluleik? Ef hann er ekki að taka þátt í leik, hvers vegna segir hann það þá ekki skýrt og skorinort og sver að ekkert slíkt skjal sé til? Meðan hann þegir þá liggur hann undir grun hjá mér.

Og þá er ég komin að því sem er að eyðileggja fólk hérna, þ.e. að fá ekki sannleikann um nokkurt mál sem máli skiptir. Fólk verður "að halda", "að ímynda sér", "að giska á", "að fylla í eyður". Leynd, þöggun, yfirhylming, samtrygging, það eru þau hugtök sem mér finnst viðeigandi að nota til að lýsa fyrrverandi ríkisstjórnum og núverandi ríkisstjórn. En samt tala þau um "að upplýsa" og "að varpa ljósi á". Æi, mér bara býður við þessu!

Ef stjórnvöld hafa frá því í haust og fram á þennan dag staðið sig í að "upplýsa" og "varpa ljósi á" atburðarásina þá kemur ekki annað til greina en við séum flest afskaplega heimsk því enn hef ég ekki hitt neinn sem veit hvað er fram undan.

1. Hvers vegna segir núverandi ríkisstjórn ekki skilanefndaamönnunum upp störfum? Eftirlitskerfi sem brást algerlega skipaði í skilanefndirnar. Verk skilanefndanna vekja ekki traust hjá mér. Hvers vegna eru ekki ráðnir erlendir sérfræðingar inn í skilanefndirnar? Hvers vegna eru skilanefndirnar ekki látnar senda frá sér yfirlit reglulega um hvað þær hafa ákveðið og hvað þær hafa gert?

2. Hvers vegna er ekki búið að segja bankastjórunum þremur upp störfum? Hvers vegna eru stöðurnar ekki auglýstar?

3. Hvers vegna er ekki hverjum einasta manni sem var í valdastöðu í gömlu bönkunum sagt upp Þeir færðir til í starfi og settir í að þrífa gólfin í bönkunum?

4. Hvað skuldir er búið að afskrifa? Hverjir skulduðu þessar skuldir?

5. Eru þeir þingmenn sem stofnuðu einkahlutafélag utan um skuldir sínar sloppnir fyrir horn eða eru þeir alveg sloppnir frá skuldum sínum?

6. Hvers vegna er ekki búið að setja lög um að það megi frysta eignir manna sem eru grunaðir um að hafa komist yfir fé á ólögmætan hátt?

7. Hvers vegna var haldið áfram með Icesave og ráðin nefnd til að semja um að blásaklaus þjóðin borgaði skuldir einkabanka? Virtur lögmaður sagði að þetta væru nauðungasamningar og það væri rétt að láta á það reyna að fá þá dæmda ólöglega? Hvers vegna hefur ekki verið rakið hvar peningarnir eru sem útlendingar lögðu inn á Icesave-reikningana?

8. Er hún sönn sagan um að norrænu löndin vilji ekki lána okkur nema AGS sé inni í dæminu? Ef hún er sönn hver er þá ástæðan fyrir þessari afstöðu norrænu landanna? Ef hún er ekki sönn hvers vegna segja stjórnvöld það þá ekki?

9. Hvað eru margir af þeim hrökkluðust úr starfi eða voru látnir fara á biðlaunum?Hvaða einstaklingar eru þetta? Hvað kostar hver og einn þeirra á mánuði?

10. Af hverju afnam 80-daga stjórnin ekki lög um biðlaun ráðherra og aðstoðarmanna þeirra? Fram undan blasir við að bæta þremur ráðherrum á biðlaun og jafnmörgum aðstoðarmönnum þegar ráðuneytum verður fækkað á kjörtímabilinu. Hvað þarf að hækka verð á víni, tóbaki og bensíni mikið til að hala inn fyrir þessum biðlaunum?

11. Hvernig fá þingmenn sig til að taka vikur - já, vikur, jafnvel mánuði, í að tala um Evrópusambandið þegar þjóðin grátbiður um að bankakerfið sé sett í gang, atvinnulífið sett í gang, verðbætur á húsnæðislán afnumin og skuldir þeirra vegna húsnæðiskaupa leiðréttar?

12. Hvað á þjóðin að bíða lengi eftir því að fá að vita hvaða skuldir falla á hana? Fleiri en einn erlendur sérfræðingur hefur sagt að þjóðin geri sér ekki grein fyrir því hvað staðan er alvarleg. Er það með ráðnum huga að hafa hlutina þannig?

13. Er ISG laus allra mála? Hún flýgur hátt og fer hratt yfir sagan um að hún hafi snúið Icesave frá því að vera deila um réttmæti reglugerðar ESB um tryggingasjóði banka þegar efnahagskerfi þjóðar hrynur yfir í að vera pólitísk deila vegna þess að hún er haldin ESB-þráhyggju.

14. Hvað á maður oft að þurfa að lesa í innlendum og erlendum fjölmiðlum að Bretar, Þjóðverjar og Hollendingar standi saman gegn Íslendingum og njóti stuðnings ESB sem sé í góðu samstarfi við AGS um að stilla Íslendingum upp við vegg og hóta þeim. Hvers vegna hefur enginn ráðherra, engin ríkisstjórn síðan í haust staðið upp og svarað þessu fullum hálsi: Látið kanna hvort þetta sé rétt?

15. Hvers vegna ganga fjárglæframennirnir ennþá lausir? Hvers vegna? Hvers vegna? Hvers vegna? Hvers vegna? Hvers vegna, Steingrímur og Jóhanna?

16. Hvað var Össur sem iðnaðarráðherra að gera ítrekað í Austurlöndum nær og ræða þar um náttúruauðlindir Íslands?

17. SJS var ákveðinn í því að hann vildi skila AGS-láninu. Hvaða pappíra eftir fyrri ríkisstjórn sá hann í stjórnarráðinu þegar hann varð ráðherra sem urðu til þess að hann féll frá sannfæringu sinni?

18. Hvers vegna heldur núverandi ríkisstjórn áfram á sömu braut og ríkisstjórn GH og ISG um að ganga erinda fjármagnseigenda?

19. Hvers vegna eru menn sem hugsanlega hafa veðsett bótasjóð Sjóvár enn í viðskiptum? Hvað þarf til að ríkisstjórnin stöðvi viðskipti manna sem eru grunaðir um að hafa brotið af sér í viðskiptum? Ætla stjórnvöld að sjá til þess að mennirnir verði kærðir ef rétt reynist að þeir hafi veðsett bótasjóðinn? Það eru fordæmi fyrir því að sækja þá til saka sem misnota bótasjóði tryggingafélaganna, þótt þessi misnotkun sé reyndar nýtt afbrigði af misnotkun.

20. Hvers vegna geta þeir sem eyðlögðu íslenskt samfélag boðið í félög sem hið opinbera hefur fengið í fangið frá þeim?

21. Er Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn með veð í Landsvirkjun?

22. Hvað er áætlað að viðræður við ESB kosti?

23. Hvers vegna hefur ríkisstjórnin ekki lagt fram skýrslu um skoðun sína á máli manna eins og Michael Hudson, John Perkins, Anne Pettiford o.m.fl.?

Þær eru næstum ótakmarkaðar spurningarnar sem stjórnvöld hafa komið sér undan að svara.

Enn á ég eftir að spyrja mikilvægastu spurninganna:

Hvers virði er íslensk alþýða ríkisstjórninni? Hvers vegna á ríkisstjórnin svo erfitt með að stilla sér upp við hlið íslenskrar alþýðu? Ein fjölskylda hefur flutt til útlanda á dag allt þetta ár, þ.e. 151 fjölskylda. Skiptir þetta fólk engu máli?

Ráðleggingar til ríkisstjórnarinnar:

Ákveðið að íslenska þjóðin sé það mikilvægasta. Ákveðið að standa með þjóðinni hvað sem á gengur. Fáið þjóðina í lið með ykkur - ekki til að hlýða ykkur heldur til að leiðbeina ykkur. Hlustið á þjóðina, horfið á fólkið og þá rennur upp fyrir ykkur  að þið hafið gengið of langt. Þið eruð búin að misbjóða fólki og þannig verður ekki áfram haldið. Fáið þjóðina í lið með ykkur um að ákveða að fólkið sem varð fyrir barðinu á íslensku bankafjárglæframönnunum fái allar nauðsynlegar upplýsingar héðan og aðstoð til að innheimta skuldir sínar hjá fjárglæframönnunum. Hafi ISG og GH undirritað samning sem er haldið leyndum fyrir þjóðinni þá er það nokkuð sem þau sjálf verða að axla. Takið ákvörðun, ríkisstjórn, um að verja þjóðina gegn samningi sem mun taka frá henni allt eðlilegt líf. Ykkar er valið um að vinna með þjóðinni eða hafa hana á móti ykkur.

Helga (IP-tala skráð) 31.5.2009 kl. 04:02

4 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Vá!! Rosalega er ég ánægð með athugasemdirnar sem ég hef fengið við þessa færslu sem tja... var sett fram af fullri alvöru en eins og oft áður langaði mig til að segja svo miklu, miklu meira. Það var auðvitað meginmarkmið mitt með þessari færslu að draga fram hvers vegna ég sætti mig ekki við núverandi ríkisstjórn. Árni og Jóna undirstrika bæði mikilvæg atriði í því sambandi.

Svo kemur Helga sem útfærir sumt af því sem ég ýja að, bætir heilum helling við og vekur athygli á nýjum vinklum og heildarsamhengi. Athugasemdin hennar er svo mögnuð að mig klæjar í puttana að vekja enn frekari athygli á því sem hún hefur bætt við þessa umræðu. Ég ætla að reyna að sýna þolinmæði og um leið svolitla hógværð til morguns og athuga hvort ég fái hjá henni leyfi til þess.

Rakel Sigurgeirsdóttir, 31.5.2009 kl. 04:43

5 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Tek undir orð Helgu. Er Stulli ekki farin til noregs? Smeykur er ég um að ný búsáhaldabylting skelli á í haust - ef ekki fyrr.

Arinbjörn Kúld, 31.5.2009 kl. 09:30

6 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Sæl Rakel, samála góðum pistil að vanda. 

Þetta með Jóhönnu mátti hverjum manni að vera ljóst eftir húsbréfaævintýrið um árið, þegar sú spilaborgin var reist fyrir heimilin 26% fóru afföll í vasa fjármagnseigenda.  Nú er það skjaldborgin með 26% hækkun höfuðstóls, til handa fjármagnseigendum. 

Jóhanna má eiga það að hún var það heiðarleg fyrir þessar kosningar að það þurfti ekki að velkjast í vafa fyrir hverju hún stæði eftir þær.  Því miður virtust margir hafa skilið hana á annan hátt.

Magnús Sigurðsson, 31.5.2009 kl. 10:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband