Svörin eru enginn svör en svara þó spurningunni um hæfni þeirra sem bjóða þjóð sinni upp á þau

Ég stal þessu frá Agli Helgasyni. Stóðst ekki mátið því þetta er eitthvað sem allir ættu að sjá. Mér sýnist þetta a.m.k. birta ákveðinn kjarna málsins.

abyrgdarmennirnir.png


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Já þeir eru ekki tignarlegir þessir sjórnmálamenn sem geta ekki staðið fyrir sínum eigin gjörðum. Það sem hefur kannski komið mér mest á í atburðarrásinni undanfarið er hvað forystumenn sjórnmálanna eru lítilmótlegir. GUNGUR

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 22.11.2008 kl. 23:23

2 Smámynd: Heidi Strand

Þetta er svo dapurlegt og getur aðeins gerst á Íslandi.
Hér er algjört bananalýðveldi.

I Noregi fær ráðherra að taka pokann sín ef það kemst upp að hann hefur sagt ósatt.

Heidi Strand, 22.11.2008 kl. 23:29

3 identicon

Ef einhvern tímann hefur verið réttnefni að uppnefna fólk "skítapakk" þá er það akkúrat núna. Hver drulluháleisturinn öðrum verri í lágkúrunni og aumingjaskap.

Það verður gaman að sjá hvar þau verða stödd að ári!

Eggert Vébjörnsson (IP-tala skráð) 22.11.2008 kl. 23:32

4 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Já, það er sennilega réttnefni yfir alla þá sem „skreyta“ þetta plakat að þetta eru sannkallaðir „drulluhálestar“ nema unga parið sem þeim fyrrnefndu finnst bara sjálfsagt að taki á sig alla ábyrgðina og afleiðingarnar líka. Þetta er náttúrulega svo hrópleg og glórulaus þvæla sem þessir svokölluðu þjóðarleiðtogar hafa orðið berir af að maður skammast sín.

Ég skammast mín fyrir að þurfa að horfast í augu við það að ég bý í landi sem er stýrt af fullkomlega vanhæfum og glórulausum einstaklingum. Einstaklingum sem eru svo stjarnfræðilega úr takt við veruleikann að þeir telja sig hafna yfir það að taka afleiðingum gjörða sinna. Slíkir stjórnendur eru á við verstu gereyðingarvopn!

Rakel Sigurgeirsdóttir, 23.11.2008 kl. 00:17

5 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Bjarne: Ég átta mig ekki alveg á seinni hluta athugasemdar þinnar. Ertu að tala um að ég kasti eggjum í fólk og biðja mig um að benda á lausnir eða einhvern sem hefur þær? Ekki það að ég taki það eitthvað óstinnt upp þó gagnrýni minni á þá ráðamenn sem „prýða“ þetta plakat sé líkt við eggjakast.

Langaði bara að hafa það á hreinu hvað þú átt við og hvort þú vilt að ég svari þér áður en ég ræðst á lyklaborðið til að skrá niður einhver svör. Mér er heldur ekki fullkomlega ljóst hvaða vandamál þú treystir mér til að leysa. Taktu eftir að ég geri mér grein fyrir að ég hef kannski misskilið seinni hluta athugasemdar þinnar fullkomlega...

Rakel Sigurgeirsdóttir, 23.11.2008 kl. 02:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband