Menntunar- og hæfniskröfur til ráðherraembætta

Frá því í ágúst á síðasta ári hefur þetta blogg verið helgað skrifum sem var ætlað að draga það fram hvaða hefðir og/eða aðferðir hafa orðið ofan á hjá öllum stjórnmálaflokkum á Íslandi við skipun til ráðherraembætta. Þar sem þetta er langur tími og skrifin í kringum samanburðinn á ferilskrám núverandi og fyrrverandi ráðherra hefur oft og tíðum orðið töluvert umfangsmeiri en upphaflega var áætlað fer væntanlega vel á því að draga aðalatriðin úr ferilskrám umræddra ráðherra saman á einn stað og auðvelda þannig yfirsýnina.

Áður en lengra er haldið er e.t.v. rétt að undirstrika það enn og aftur að tilgangurinn með þessum samanburði er alls ekki sá að gera lítið úr þeim einstaklingum sem gegna ráherraembættum á þessu kjörtímabili eða þeim sem sátu á ráðherrastólum á því síðasta. Ég komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að til þess að sýna fram á það hvaða aðferðir hafa orðið ofan á við skipun ráðherra hér á landi væri rétt að styðjast við raunveruleg dæmi.

Albert Einstein

Í undanfara þeirra samantektar sem er framundan nú þá dró ég gjarnan fram hverjir höfðu verið fyrstir til að gegna viðkomandi ráðherraembættum og í sumum tilfellum hverjir hefðu gegnt þeim lengst. Tilgangurinn var ekki síst sá að benda á að núverandi aðferðir við ráðherraskipan byggir á sögulegri hefð í íslenskri pólitík sem rekur rætur sínar allt aftur til heimastjórnartímabilsins í upphafi síðustu aldar.

Hér á eftir eru ráðherrar núverandi ríkisstjórnar og þeirrar síðustu taldir í stafrófsröð. Til aðgreiningar eru myndir af ráðherrum núverandi ríkisstjórnar hafðar í lit en þeirra sem tilheyra síðustu ríkisstjórn í svart-hvítu. Það er rétt að taka það fram, varðandi það hverjir eru taldir með ráðherrum síðustu ríkisstjórnar, að þeir einir eru taldir sem sátu á ráðherrastólum við stjórnarskiptin síðastliðið vor.

Að öðru leyti vænti ég þess að samantektin hér að neðan skýri sig sjálf en vil þó taka fram að þó mest allt sé talið þá sleppti ég einhverjum þáttum sem koma fram í ferilskrám eftirtaldra á alþingisvefnum. Undir nöfnum allra er krækja í ferilskrá viðkomandi á vef Alþingis og síðan á þá umfjöllun sem hefur verið unnin hér að undanförnu um hvert ráðuneyti undir embættisheitum þeirra.

 Bjarni Benediktsson

Bjarni Benediktsson
fæddur í Reykjavík 26. janúar 1970

þingmaður Suðvesturkjördæmis
Sjálfstæðisflokkur
formaður flokksins frá 2009
hefur setið inni á þingi frá 2003

fjármála- og efnahagsráðherra
2013-
aldur

 44 ára

menntunStúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1989.
Lögfræðipróf frá HÍ 1995.
Nám í þýsku og lögfræði í Þýskalandi 1995-1996.
LL.M.-gráða (Master of Laws) frá University of Miami School of Law í Bandaríkjunum 1997.
Hdl. 1998.
Löggiltur verðbréfamiðlari 1998.

stjórnmálatengd störf og nefndarsetur utan Alþingis

Í stjórn Hugins, félags ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ, 1991-1993, formaður 1993.
Í stjórn Heilsugæslu Garðabæjar 1998-2002.
Í skipulagsnefnd Garðabæjar 2002-2010.

Í stjórnarskrárnefnd 2005-2007.

Íslandsdeild VES-þingsins 2003-2005 (formaður).
Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA 2005-2009.
Íslandsdeild Norðurlandaráðs 2009-2012.

starfsaldur á þingi
Hefur setið í 11 ár á þingi. 10 ár áður en hann varð ráðherra.

viðkomandi þingnefndir
allsherjarnefnd 2003-2007 (formaður),
fjárlaganefnd 2003-2007,
iðnaðarnefnd 2003-2004 og 2007,
sérnefnd um stjórnarskrármál 2004-2007 og 2009 (fyrri),
heilbrigðis- og trygginganefnd 2004-2005,
utanríkismálanefnd 2005-2013 (formaður 2007-2009),
kjörbréfanefnd 2005-2009,
efnahags- og skattanefnd 2007-2009.

önnur starfsreynsla
Fulltrúi hjá sýslumanninum í Keflavík 1995.
Lögfræðingur hjá Eimskip 1997-1999.
Lögmaður með eigin rekstur á Lex lögmannsstofu 1999-2003.

><>  ><>  ><>  ><>  ><>

 Eygló Harðardóttir

Eygló Harðardóttir
fædd í í Reykjavík 12. desember 1972

þingmaður Suðvesturkjördæmis (Suðurkjördæmis 2008-2013)
Framsóknarflokkur
Í miðstjórn flokksins frá 2003 og ritari hans frá 2009
hefur setið inni á þingi frá 2008 (varaþingmaður febrúar og mars 2006)

félags- og húsnæðisráðherra
2013-

aldur

 41 árs

menntunStúdent frá Fjölbrautarskólanum í Breiðholti 1992.
Fil.kand.-próf í listasögu frá Stokkhólmsháskóla 2000.
Framhaldsnám í viðskiptafræði við HÍ síðan 2007.

stjórnmálatengd störf og nefndarsetur utan Alþingis

 

 

Í skólamálaráði Vestmannaeyja 2003-2004.
Varamaður í félagsmálaráði Vestmannaeyja 2003-2005.

Ritari í stjórn kjördæmissambands framsóknarfélaganna í Suðurkjördæmi 2003-2007.
Gjaldkeri Framsóknarfélags Vestmannaeyja 2004-2010.
Ritari í stjórn Landssambands framsóknarkvenna 2007-2009.

Formaður verðtryggingarnefndar, sem kannar forsendur verðtryggingar á Íslandi, 2010-2011
Í samráðshóp um húsnæðisstefnu 2011.
Skipuð samstarfsráðherra Norðurlanda 16. ágúst 2013.

starfsaldur á þingi
Hefur setið í 6 ár á þingi. 5 ár áður en hún varð ráðherra.

þingnefndir

heilbrigðisnefnd 2008-2009,
iðnaðarnefnd 2008-2009,
umhverfisnefnd 2008-2009,
menntamálanefnd 2009-2011,
viðskiptanefnd 2009-2011,
þingmannanefnd til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis 2009-2010,
allsherjar- og menntamálanefnd 2011,
velferðarnefnd 2011-2012,
efnahags- viðskiptanefnd 2012-2013.

önnur starfsreynsla
Framkvæmdastjóri Þorsks á þurru landi ehf. 2001-2009.
Skrifstofustjóri Hlíðardals ehf. 2003-2004.
Viðskiptastjóri Tok hjá Ax hugbúnaðarhúsi hf. 2004-2006. Framkvæmdastjóri Nínukots ehf. 2006-2008.
Verkefnastjóri hjá Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands 2008.

><>  ><>  ><>  ><>  ><>

Gudbjartur Hannesson

Guðbjartur Hannesson
fæddur á Akranesi 3. júní 1950

þingmaður Norðvesturkjördæmis
Samfylkingin
hefur setið inni á þingi frá 2007

félags- og tryggingamálaráðherra og heilbrigðisráðherra
2010
velferðarráðherra
2011-2013

aldur

63 ára

menntun Kennarapróf KÍ 1971.
Tómstundakennarapróf frá Seminariet for Fritidspædagoger, Vanløse, Danmörku 1978.
Framhaldsnám í skólastjórn við KHÍ 1992-1995.
Meistarapróf frá kennaraskóla Lundúnaháskóla (Institute of Education, University of London) 2005.

stjórnmálatengd störf og nefndarsetur utan Alþingis

 

 

Í bæjarstjórn Akraness 1986-1998.
Í bæjarráði 1986-1998, formaður þess 1986-1989 og 1995-1997.
Forseti bæjarstjórnar 1988-1989, 1994-1995 og 1997-1998.

Fulltrúi skólastjóra í skólanefnd Akranesbæjar 1981-2007.
Í æskulýðsnefnd Akranesbæjar 1982-1986.
Fulltrúi á aðalfundi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi 1986-1994.
Í samstarfsnefnd um svæðisskipulag sunnan Skarðsheiðar 1990-1996.
Í starfshópi um vinnu við mótun markmiða og stefnu í málefnum leikskóla á Akranesi 1992-1994.
Í samstarfsnefnd um mótun tillagna um uppbyggingu og rekstur íþróttamannvirkja á Akranesi 1993-1994.
Í fulltrúaráði Sambands íslenskra sveitarfélaga 1994-1998.
Fulltrúi sveitarfélaga í SAMSTARF, samstarfsnefnd um framhaldsskóla, 1996-2001.

Formaður Akraneslistans 1998–2000.
Formaður skipulagsnefndar Akranesbæjar 1998-2002.

Í stjórn Rafveitu Akraness 1986-1990 og 1994-1995 og í stjórn Akranesveitu 1995-1998.
Í stjórn Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar 1994-1998, formaður 1995-1998.
Í stjórn útgerðarfélagsins Krossvíkur hf. 1994-1996.
Í stjórn Sjúkrahúss og heilsugæslustöðvar Akraness 1996-1998.
Í bankaráði Landsbanka Íslands 1998-2003 og bankaráði Heritable-bankans í London (eign Landsbankans síðan 2000) 2002-2003.

Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins 2007-2009.
Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins 2009-2013.

starfsaldur á þingi
Hefur setið í 7 ár á þingi. 3 ár áður en hann varð ráðherra.

þingnefndir
félags- og tryggingamálanefnd 2007-2009 (formaður), 2009-2010, fjárlaganefnd 2007-2009, 2009-2010 (formaður),
menntamálanefnd 2007-2009,
allsherjar- og menntamálanefnd 2013-,
velferðarnefnd 2014-.

önnur starfsreynsla

Sumarvinna með námi í Búrfellsvirkjun og Sementsverksmiðju Akraness.
Kennari við Grunnskóla Akraness 1971-1973.
Erindreki Bandalags íslenskra skáta 1973-1975.
Kennari við Peder Lykke Skolen á Amager í Kaupmannahöfn 1978-1979.
Kennari við Grunnskóla Akraness 1979-1981.
Skólastjóri Grundaskóla Akranesi 1981-2007.

><>  ><>  ><>  ><>  ><>

Gunnar Bragi Sveinsson

Gunnar Bragi Sveinsson
fæddur á Sauðárkróki 9. júní 1968

þingmaður Norðvesturkjördæmis
Framsóknarflokkur
formaður þingflokksins á síðasta kjörtímabili
hefur setið inni á þingi frá 2009

utanríkisráðherra
2013-

aldur

45 ára

menntun

Stúdent frá Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra1989.
Nám í atvinnulífsfélagsfræði við HÍ.

stjórnmálatengd störf og nefndarsetur utan Alþingis

 

Aðstoðarmaður Páls Péturssonar, félagsmálaráðherra 1997-1999.

Annar varaforseti sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2002-2006, varaforseti 2006-2009.

Formaður stjórnar varasjóðs viðbótarlána 1998-2002. 
Formaður byggðaráðs Skagafjarðar 2006-2009.
Varaformaður atvinnu- og ferðamálanefndar Skagafjarðar 2006-2009.
Formaður Gagnaveitu Skagafjarðar 2006-2009.
Formaður stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra 2006-2009. 
Í menningarráði Norðurlands vestra 2008-2009.

Formaður Félags ungra framsóknarmanna í Skagafirði. (ekkert ártal)
Varaformaður kjördæmissambands Framsóknarflokksins í Norðurlandskjördæmi vestra. (ekkert ártal)

Formaður stjórnar Norðurár bs. sorpsamlags 2006-2009.
Í stjórn Hátækniseturs Íslands ses. 2007-2009.

starfsaldur á þingi
Hefur setið í 5 ár á þingi. 4 ár áður en hann varð ráðherra.

þingnefndir

iðnaðarnefnd 2009-2011,
þingskapanefnd 2011-2013,
utanríkismálanefnd 2011-2013.

önnur starfsreynsla

Verslunarstjóri Ábæjar 1989-1990 og 1991-1995.
Verkamaður og gæslumaður í Steinullarverksmiðjunni 1989-1991.
Ritstjóri héraðsfréttablaðsins Einherja 1991-1992.
Sölu- og verslunarstjóri hjá Skeljungi hf. 1996-1997.
Markaðsráðgjafi hjá Íslensku auglýsingastofunni 1999.
Starfaði á verslunarsviði Kaupfélags Skagfirðinga 2000-2002. Framkvæmdastjóri Ábæjar 2002-2003.
Framkvæmdastjóri Ábæjar-veitinga ehf. 2004-2007.

 ><>  ><>  ><>  ><>  ><>

Hanna Birna Kristjánsdóttir

Hanna Birna Kristjánsdóttir
fædd í Reykjavík 12. október 1966

þingmaður Reykjavíkur suður
Sjálfstæðisflokkur
varaformaður flokksins frá 2013
hefur setið inni á þingi frá 2013

innanríkisráðherra
2013-

aldur

 47 ára

menntunVerslunarpróf frá Verzlunarskóla Íslands 1984.
Stúdent frá Kvennaskólanum í Reykjavík 1986.
BA-próf í stjórnmálafræði frá HÍ 1991.
M.Sc.-próf í alþjóðlegum og evrópskum stjórnmálum frá Edinborgarháskóla 1993.

stjórnmálatengd störf og nefndarsetur utan Alþingis

 

Framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins 1995–1999.
Í stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna 1995–1999.
Í stjórn hverfafélags sjálfstæðismanna í Austurbæ og Norðurmýri 1995–1996.
Aðstoðarframkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins 1999–2006.

Formaður nefndar Björns Bjarnasonar, menntamálaráðherra, um mótun símenntunarstefnu 1997–1998

Borgarfulltrúi 2002-2013.
Forseti borgarstjórnar og formaður skipulagsráðs Reykjavíkur 2006–2008.
Borgarstjóri í Reykjavík 2008-2010.

Í menningarmálanefnd Reykjavíkur 2002-2003.
Í skipulags- og byggingarnefnd Reykjavíkur, í fræðsluráði Reykjavíkur 2002–2005.
Í hverfisráði Árbæjar 2002–2006.
Í menntamálanefnd og framkvæmdaráði Reykjavíkur 2005–2006.
Í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 2006-2013.
Í stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu 2008–2010.
Í stjórnkerfisnefnd Reykjavíkurborgar 2010-2013.

í stjórn Fasteignastofu Reykjavíkur 2003–2005.
Formaður stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og formaður almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins 2008–2010.
Í stjórn Faxaflóahafna 2011–2013.

starfsaldur á þingi
Hefur setið í tæpt 1 ár á þingi. Engin þingreynsla áður en hún varð ráðherra.

þingnefndir

engar

önnur starfsreynsla

Starfsmaður Öryggismálanefndar 1990-1991.
Deildarsérfræðingur í Menntamálaráðuneytinu 1994–1995.

 ><>  ><>  ><>  ><>  ><>

 Illugi Gunnarsson

Illugi Gunnarsson
fæddur á Siglufirði 26. ágúst 1967

þingmaður Reykjavíkur norður (Reykjavíkur suður 2007-2009)
Sjálfstæðisflokkur
formaður þingflokksins 2009-2010 og 2012-2013
hefur setið inni á þingi frá 2007

mennta- og menningarmálaráðherra
2013-

aldur

 46 ára

menntunStúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1987.
BS-próf í hagfræði HÍ 1995.
MBA-próf frá London Business School 2000.

stjórnmálatengd störf og nefndarsetur utan Alþingis

 

Í stjórn Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta við Háskóla Íslands, 1989-1990, oddviti 1993-1994.
Í stúdentaráði HÍ 1993-1995.
Fulltrúi stúdenta í háskólaráði 1993-1995.

Formaður Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna, 1997-1998.

Aðstoðarmaður Davíðs Oddssonar, forsætisráðherra 2000-2005.

Í nefnd um eflingu græna hagkerfisins 2010-2013.

Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA 2007-2009.
Íslandsdeild Norðurlandaráðs 2009-2010 og 2011-2013.

starfsaldur á þingi
Hefur setið í 7 ár á þingi. 6 ár áður en hann varð ráðherra.

þingnefndir

efnahags- og skattanefnd 2007,
fjárlaganefnd 2007-2009 og 2011-2012,
menntamálanefnd 2007-2009,
umhverfisnefnd 2007-2009,
viðskiptanefnd 2010-2011,
allsherjarnefnd 2010-2011.

önnur starfsreynsla

Sumarvinna í fiski með námi hjá Hjálmi hf. Flateyri 1983-1993.
Leiðbeinandi við Grunnskóla Flateyrar 1987-1988.
Organisti Flateyrarkirkju 1995-1996.
Skrifstofumaður hjá Vestfirskum skelfiski á Flateyri 1995-1997.
Stundaði rannsóknir í fiskihagfræði við HÍ 1997-1998.

><>  ><>  ><>  ><>  ><>

 Jóhanna Sigurðardóttir

Jóhanna Sigurðardóttir
fædd í Reykjavík 4. október 1942

þingmaður Reykjavíkur norður til 2013. (Reykjavíkur suður 2003-2007 og Reykjavíkur 1978-2003)
Samfylkingin (Alþýðuflokkur 1978-1994, Þjóðvaki 1994-1996)
formaður flokksins 2009-2013
sat inni á þingi frá 1978-2013

forsætisráðherra
2009-2013

aldur

 71 árs

menntun Verslunarpróf frá Verzlunarskóla Íslands 1960

stjórnmálatengd störf og nefndarsetur utan Alþingis

 

Í stjórn Verslunarmannafélags Reykjavíkur 1976-1983.

Í nefnd til að undirbúa frumvarp um tilhögun og framkvæmd fullorðinsfræðslu og endurskoðun laga um almannatryggingar 1978.
Formaður í stjórnarnefnd um málefni þroskaheftra og öryrkja 1979-1983.
Í tryggingaráði 1978-1987, formaður þess 1979-1980.

Varaformaður Alþýðuflokksins 1984-1993.
Formaður Þjóðvaka 1995.

Sat á þingi Alþjóðaþingmannasambandsins 1980-1985.
Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins 1996-2003.
Íslandsdeild ÖSE-þingsins 2003-2007.

starfsaldur á þingi
Sat á þingi í 35 ár. 9 ár áður en hún varð forsætisráðherra í fyrsta skipti.

Gegndi áður eftirtöldum ráðherraembættum:
félagsmálaráðherra 1987-1994 og 2007-2008
félags- og tryggingamálaráðherra 2008-2009

þingnefndir
utanríkismálanefnd 1995-1996,
iðnaðarnefnd 1995-1999,
sérnefnd um stjórnarskrármál 1995-1997 og 1999-2000 og 2004-2007,
allsherjarnefnd 1996-1999,
efnahags- og viðskiptanefnd 1999-2007,
kjörbréfanefnd 1999-2003,
félagsmálanefnd 2003-2007.

önnur starfsreynsla
 

 Flugfreyja hjá Loftleiðum 1962-1971.
Skrifstofumaður í Kassagerð Reykjavíkur 1971-1978.

><>  ><>  ><>  ><>  ><>

Katrín Jakobsdóttir

Katrín Jakobsdóttir
fædd í Reykjavík 1. febrúar 1976

þingmaður Reykjavíkur norður
Vinstri hreyfingin - grænt framboð
formaður flokksins frá 2013
hefur setið inni á þingi frá 2007

mennta- og menningarmálaráðherra
2009-2013

aldur

 38 ára

menntun Stúdent frá Menntaskólanum við Sund 1996.
BA-próf í íslensku með frönsku sem aukagrein frá HÍ 1999.
Meistarapróf í íslenskum bókmenntum 2004.

stjórnmálatengd störf og nefndarsetur utan Alþingis

 

Í stúdentaráði HÍ og háskólaráði 1998–2000.

Varaborgarfulltrúi fyrir Reykjavíkurlistann 2002-2006.

Fulltrúi í fræðsluráði, síðar menntaráði, Reykjavíkur 2002–2005.
Formaður samgöngunefndar Reykjavíkur 2004.
Formaður umhverfis- og heilbrigðisnefndar Reykjavíkur 2004.

Formaður Ungra vinstri grænna 2002–2003.
Varaformaður Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs 2003-2013.

Samstarfsráðherra Norðurlanda 2009-2013.
Í stjórnarskrárnefnd skipaðri af forsætisráðherra síðan 2013.
Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins 2013-.

starfsaldur á þingi
Hefur setið í 7 ár á þingi. 2 ár áður en hún varð ráðherra.

þingnefndir

efnahags- og skattanefnd 2007-2009,
menntamálanefnd 2007-2009,
umhverfis- og samgöngunefnd 2013-.

önnur starfsreynsla
 
Málfarsráðunautur á fréttastofum RÚV í hlutastarfi 1999–2003 auk fjölmargra sumarstarfa.
Dagskrárgerð fyrir ljósvakamiðla og ritstörf fyrir ýmsa prentmiðla 2004–2006.
Kennsla fyrir Endurmenntun, símenntunarmiðstöðvar og Mími tómstundaskóla 2004–2007.
Ritstjórnarstörf fyrir Eddu - útgáfu og JPV-útgáfu 2005–2006.
Stundakennsla við Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík og Menntaskólann í Reykjavík 2006–2007.

><>  ><>  ><>  ><>  ><>

 Katrín Júlíusdóttir

Katrín Júlíusdóttir
fædd í Reykjavík 23. nóvember 1974

þingmaður Suðvesturkjördæmis
Samfylkingin
varaformaður flokksins frá 2013
hefur setið inni á þingi frá 2003

iðnaðarráðherra
2009-2012
fjármála- og efnahagsráðherra
2012-2013

aldur

 39 ára

menntun Stúdent frá Menntaskólanum í Kópavogi 1994.
Nám í mannfræði við Háskóla Íslands 1995-1999.
Námskeið í verkefnastjórn í hugbúnaðargerð hjá EHÍ 2001.

stjórnmálatengd störf og nefndarsetur utan Alþingis

 

Í stjórn Verðandi, ungliðahreyfingar Alþýðubandalagsins, og ritari Alþýðubandalagsins í Kópavogi 1994-1998.
Í miðstjórn Alþýðubandalagsins 1996-2000.

Fulltrúi Röskvu í stúdentaráði og háskólaráði HÍ 1997-1999.

Varaformaður Ungra jafnaðarmanna 2000, formaður 2000-2001.
Í framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar 2000-2003, varaformaður 2001-2003.

Í stjórn Evrópusamtakanna 2000-2003.

Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA 2007-2009.

starfsaldur á þingi
Hefur setið í 11 ár á þingi. 6 ár áður en hún varð ráðherra.

þingnefndir
menntamálanefnd 2003-2005 og 2007-2009,
félagsmálanefnd 2004-2005,
fjárlaganefnd 2005-2007,
iðnaðarnefnd 2005-2009 (formaður 2007-2009),
umhverfisnefnd 2007-2009,
umhverfis- og samgöngunefnd 2013-,
velferðarnefnd 2013-2014.

önnur starfsreynsla
Framkvæmdastjóri stúdentaráðs HÍ 1998-1999.
Innkaupastjóri hjá G. Einarsson & co. ehf. 1994-1998, framkvæmdastjóri þar 1999-2000.
Verkefnastjóri og ráðgjafi hjá ráðgjafar- og hugbúnaðarhúsinu Inn hf. 2000-2003.

><>  ><>  ><>  ><>  ><>

Kristján Þór Júlíusson

Kristján Þór Júlíusson
fæddur á Dalvík 15. júlí 1957

þingmaður Norðausturkjördæmis
Sjálfstæðisflokkur
varaformaður flokksins 2012-2013
hefur setið inni á þingi frá 2007

heilbrigðisráðherra
2013-

aldur

 56 ára

menntun Stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1977.
Skipstjórnarpróf (1. og 2. stig) frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1978.
Nám í íslensku og almennum bókmenntum við HÍ 1981-1984.
Kennsluréttindapróf frá HÍ 1984.

stjórnmálatengd störf og nefndarsetur utan Alþingis

 

Bæjarstjóri Dalvíkur 1986-1994.
Bæjarstjóri Ísafjarðar 1994-1997. 
Bæjarstjóri Akureyrar 1998-2006.
Í bæjarstjórn Akureyrar 1998-2009.

Formaður stjórnar Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar hf. 1987-1992.
Í ráðgjafanefnd Tölvuþjónustu sveitarfélaga 1988-1990.
Í stjórn Fjórðungssambands Norðlendinga 1989-1990.
Í Héraðsráði Eyjafjarðar 1990-1994.
Formaður stjórnar Hafnasambands sveitarfélaga 1994-1997.
Formaður stjórnar Eyþings 1998-2002.
Í Ferðamálaráði Íslands 1999-2003.
Í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 1998-2007.

Í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins 2002-2013.
Formaður sveitarstjórnarráðs Sjálfstæðisflokksins 2002-2009.

Í stjórn Útgerðarfélags Dalvíkinga hf. 1987-1990. 
Í stjórn Söltunarfélags Dalvíkur hf. 1987-1993.
Í stjórn Sæplasts hf. 1988-1994.
Í stjórn Togaraútgerðar Ísafjarðar hf. 1996-1997.
Formaður stjórnar Samherja hf. 1996-1998.
Formaður stjórnar Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar 1998-2007.
Í stjórn Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélags Íslands 1999-2008.
Í stjórn Landsvirkjunar 1999-2007.
Í stjórn Fjárfestingabanka atvinnulífsins 1999-2000. 
Formaður stjórnar Lífeyrissjóðs Norðurlands 2000-2007.
Í stjórn Fasteignamats ríkisins 2000-2007.
Í stjórn Íslenskra verðbréfa 2002-2009.

Íslandsdeild Norðurlandaráðs 2007-2009.
Íslandsdeild þingmannaráðstefnunnar um norðurskautsmál 2009-2013.

starfsaldur á þingi
Hefur setið í 7 ár á þingi. 6 ár áður en hann varð ráðherra.

þingnefndir

fjárlaganefnd 2007-2013,
iðnaðarnefnd 2007-2009,
umhverfisnefnd 2009-2011.

önnur starfsreynsla

Stýrimaður og skipstjóri á skipum frá Dalvík 1978-1981 og á sumrin 1981-1985.
Kennari við Stýrimannaskólann á Dalvík 1981-1986.
Kennari við Dalvíkurskóla 1984-1986.
><>  ><>  ><>  ><>  ><>

Ragnheiður Elín Árnadóttir

Ragnheiður Elín Árnadóttir
fædd í Reykjavík 30. september 1967

þingmaður Suðurkjördæmis (Suðvestvestur 2007-2009)
Sjálfstæðisflokkur
Formaður þingflokksins 2010-2012
hefur setið inni á þingi frá 2007

iðnaðar- og viðskiptaráðherra
2013-

aldur

46 ára

menntun Stúdent frá Kvennaskólanum í Reykjavík 1987.
BA-próf í stjórnmálafræði frá HÍ 1991.
MS-próf í alþjóðasamskiptum frá Georgetown University í Bandaríkjunum 1994.

stjórnmálatengd störf og nefndarsetur utan Alþingis

 

Aðstoðarmaður Geirs H. Haarde, fjármálaráðherra 1998-2005.
Aðstoðarmaður Geirs H. Haarde, utanríkisráðherra 2005-2006.
Aðstoðarmaður Geirs H. Haarde, forsætisráðherra 2006-2007.

Í nefnd um nýtt fæðingarorlof 1999.
Í samninganefnd ríkisins 1999-2005.
Varamaður í jafnréttisráði 2000-2005.
Í viðræðunefnd um varnarmál 2005-2006.
Í fjölskyldunefnd ríkisstjórnarinnar 2005-2007.

Varamaður í bankaráði Norræna fjárfestingarbankans 2002-2006.

Í Þingvallanefnd 2009-2013.

Íslandsdeild NATO-þingsins 2007-2013 (formaður 2007-2009).

starfsaldur á þingi
Hefur setið í 7 ár á þingi. 6 ár áður en hún varð ráðherra.

þingnefndir
efnahags- og skattanefnd 2007-2009,
iðnaðarnefnd 2007-2009,
utanríkismálanefnd 2007-2009, 2010 og 2011-2013,
viðskiptanefnd 2009-2010,
þingskapanefnd 2011-2013.

önnur starfsreynsla
Starfsmaður Útflutningsráðs Íslands 1995-1998, aðstoðarviðskiptafulltrúi 1995-1996, viðskiptafulltrúi í New York 1996-1997 og verkefnisstjóri í Reykjavík 1997-1998.

><>  ><>  ><>  ><>  ><>

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
fæddur í Reykjavík 12. mars 1975

þingmaður Norðausturkjördæmis (Reykjavík norður 2009-2013)
Framsóknarflokkur
formaður flokksins frá 2009
hefur setið inni á þingi frá 2009

forsætisráðherra
2013-

aldur

 39 ára

menntun Stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1995.
BS-próf í viðskipta- og hagfræði frá HÍ 2005 auk hlutanáms í fjölmiðlafræði.
Skiptinám við Plekhanov-háskóla í Moskvu.
Nám við stjórnmálafræðideild Kaupmannahafnarháskóla í alþjóðasamskiptum og opinberri stjórnsýslu.
Framhaldsnám í hagfræði og stjórnmálafræði við Oxford-háskóla með áherslu á tengsl hagrænnar þróunar og skipulagsmála.

stjórnmálatengd störf og nefndarsetur utan Alþingis

Fulltrúi í skipulagsráði Reykjavíkurborgar 2008-2010.

Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA 2009-2011.
Íslandsdeild þingmannanefnda EFTA og EES 2011-2013.

starfsaldur á þingi
Hefur setið í 5 ár á þingi. 4 ár áður en hann varð ráðherra.

þingnefndir
utanríkismálanefnd 2009-2013.

önnur starfsreynsla Þáttastjórnandi og fréttamaður í hlutastarfi hjá Ríkisútvarpinu 2000-2007.

 ><>  ><>  ><>  ><>  ><>

Sigurður Ingi Jóhannsson

Sigurður Ingi Jóhannsson
fæddur á Selfossi 20. apríl 1962

þingmaður Suðurkjördæmis
Framsóknarflokkur
varaformaður flokksins frá 2013
hefur setið inni á þingi frá 2009

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
2013-
umhverfis- og auðlindaráðherra
2013-

aldur

 52 ára

menntunStúdent frá Menntaskólanum á Laugarvatni 1982.
Embættispróf í dýralækningum frá Konunglega dýralækna- og landbúnaðarháskólanum í Kaupmannahöfn (KVL).
Almennt dýralæknaleyfi í Danmörku 1989 og á Íslandi 1990.

stjórnmálatengd störf og nefndarsetur utan Alþingis

 

Í ráðherraskipaðri nefnd sem vann að breytingum á dýralæknalögum 1996-1998.

Ritari stjórnar Framsóknarfélags Árnessýslu 2001-2008.  

Oddviti Hrunamannahrepps 2002-2009.
Í sveitarstjórn Hrunamannahrepps 1994-2010, varaoddviti 1994-1998.

Í héraðsnefnd Árnesinga 2002-2006.
Í stjórn Atvinnuþróunarsjóðs Suðurlands 2002-2007, varaformaður 2006-2007.
Í heilbrigðisnefnd Suðurlands 2006-2009.
Oddviti oddvitanefndar uppsveita Árnessýslu og Flóahrepps 2006-2009.
Formaður stjórnar skipulags- og byggingafulltrúaembættis þar 2008-2009.
Formaður skipulags- og bygginganefndar uppsveita Árnessýslu 2006-2008.
Í samgöngunefnd Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga 2003-2006.
Í stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga 2007-2009.

Í Þingvallanefnd 2009-2013.

Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins 2009-2013.

starfsaldur á þingi
Hefur setið í 5 ár á þingi. 4 ár áður en hann varð ráðherra.

þingnefndir
sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd 2009-2011,
þingmannanefnd til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis 2009-2010,
atvinnuveganefnd 2011-2013.

önnur starfsreynsla
Landbúnaðarstörf samhliða námi 1970-1984.
Afgreiðslu- og verkamannastörf hjá Mjólkursamsölunni í Reykjavík 1982-1983.
Bóndi í Dalbæ í Hrunamannahreppi 1987-1994.
Sjálfstætt starfandi dýralæknir í uppsveitum Árnessýslu 1990-1995.
Settur héraðsdýralæknir í Hreppa- og Laugarásumdæmi 1992-1994 og um skeið í Vestur-Barðastrandarumdæmi.
Dýralæknir hjá Dýralæknaþjónustu Suðurlands ehf. 1996-2009.

 ><>  ><>  ><>  ><>  ><>

 Steingrímur J. Sigfússon

Steingrímur J. Sigfússon
fæddur á Gunnarsstöðum í Þistilfirði 4. ágúst 1955

þingmaður Norðausturkjördæmis (Norðurlands eystra 1983-2003)
Vinstri hreyfingin - grænt framboð (Alþýðubandalagið 1983-1998)
formaður flokksins frá 1999-2013
hefur setið inni á þingi frá 1983

fjármálaráðherra
2009-2011
efnahags- og viðskiptaráðherra
2011-2012
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
2011-2012
atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra
2012-2013

aldur

 58 ára

menntunStúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1976.
B.Sc.-próf í jarðfræði frá Háskóla Íslands 1981.
Próf í uppeldis- og kennslufræði frá Háskóla Íslands 1982.

stjórnmálatengd störf og nefndarsetur utan Alþingis

 

Fulltrúi nemenda í skólaráði MA 1975-1976.
Í stúdentaráði HÍ 1978-1980. 

Varaformaður Alþýðubandalagsins 1989-1995.

Í stjórnarnefnd Ríkisspítalanna 1983-1987.
Í stjórnarskrárnefnd 2005-2007.

Kjörinn 1984 í samstarfsnefnd með Færeyingum og Grænlendingum um sameiginleg hagsmunamál.
Sat þing Alþjóðaþingmannasambandsins 1984 og 1986.
Í Vestnorræna þingmannaráðinu 1985-1988 og 1991-1995.
Sat á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1991 og 2007.
Formaður flokkahóps vinstri sósíalista í Norðurlandaráði 1998-2000.
Íslandsdeild Norðurlandaráðs 1996-2005, 2006-2007 og 2013-.
Formaður norræna ráðsins um málefni fatlaðra 1999-2000.
Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins 2007-2009.
Formaður í jafnréttisnefnd Evrópuráðsþingsins 2008-2009.
 
starfsaldur á þingi

Hefur setið í 31 ár á þingi. 5 ár áður en hann varð ráðherra í fyrsta skipti.

Gegndi áður eftirtöldum ráðherraembættum:
landbúnaðar- og samgönguráðherra 1988-1991

þingnefndir
sjávarútvegsnefnd 1991-1998 (formaður 1995-1998),
efnahags- og viðskiptanefnd 1991-1999 og 2013-,
félagsmálanefnd 1999-2003,
utanríkismálanefnd 1999-2009,
sérnefnd um stjórnarskrármál 2004-2005.

önnur starfsreynsla

Sumarvinna við vörubifreiðaakstur með námi 1978-1982.
Við jarðfræðistörf og jafnframt íþróttafréttamaður hjá sjónvarpi 1982-1983.

 ><>  ><>  ><>  ><>  ><>

Svandís Svavarsdóttir

Svandís Svavarsdóttir
fædd á Selfossi 24. ágúst 1964

þingmaður Reykjavíkur suður
Vinstri hreyfingin - grænt framboð
formaður þingflokksins frá 2013
hefur setið inni á þingi frá 2009

umhverfisráðherra
2009-2012
umhverfis- og auðlindaráðherra
2012-2013

aldur

 49 ára

menntunStúdent frá Menntaskólanum í Hamrahlíð 1983.
BA-próf í almennum málvísindum og íslensku frá HÍ 1989.
Stundaði framhaldsnám í íslenskri málfræði við HÍ 1989-1993.

stjórnmálatengd störf og nefndarsetur utan Alþingis

 

Formaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavík 2003-2005.

Framkvæmdastjóri Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs 2005-2006.

Borgarfulltrúi í Reykjavík 2006-2009.
Í borgarráði Reykjavíkur 2007-2009.

Varafulltrúi í menntaráði Reykjavíkurborgar 2004-2006.
Í stjórn ÍTR 2005-2006.
Í menntaráði og leikskólaráði Reykjavíkur 2006-2007.
Í skipulagsráði Reykjavíkur 2006-2009.
Fulltrúi í Jafnréttisráði 2007-2009.
Varaformaður Sambands íslenskra sveitarfélaga 2007-2009.
Í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur og í stjórnkerfisnefnd Reykjavíkur 2007-2009.

Í Þingvallanefnd síðan 2013.

starfsaldur á þingi
Hefur setið í 5 ár á þingi. Engin þingreynsla áður en hún varð ráðherra.

þingnefndir
allsherjar- og menntamálanefnd 2013-,
þingskapanefnd 2014-.

önnur starfsreynsla
Stundakennari í almennum málvísindum og íslensku við Háskóla Íslands 1990-1994.
Starfaði hjá Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra við rannsóknir á íslenska táknmálinu 1992-1994 og við rannsóknir, ráðgjöf og stjórnun 1998-2005.
Kennslustjóri í táknmálsfræði og táknmálstúlkun við Háskóla Íslands 1994-1998.

 ><>  ><>  ><>  ><>  ><>

 Ögmundur Jónasson

Ögmundur Jónasson
fæddur í Reykjavík 17. júlí 1948

þingmaður Suðvesturkjördæmis (Reykjavík suður 2003-2007, Reykjavík 1995-2003).
Vinstri hreyfingin - grænt framboð (Alþýðubandalagið 1995-1998)
formaður þingflokksins 1999-2009
hefur setið inni á þingi frá 1995

heilbrigðisráðherra
2009
dómsmála- og mannréttindaráðherra
2010
samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra
2010
innanríkisráðherra
2011-2013.

aldur

 65 ára

menntun Stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1969.
MA-próf í sagnfræði og stjórnmálafræði Edinborgarháskóla, Skotlandi, 1974.

stjórnmálatengd störf og nefndarsetur utan Alþingis

Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA 1999-2003.
Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins 2013-.
starfsaldur á þingi
Hefur setið í 19 ár á þingi. 14 ár áður en hann varð ráðherra.

viðkomandi þingnefndir

allsherjarnefnd 1995-1997, 1998-1999 og 2010,
heilbrigðis- og trygginganefnd 1995-1996,
félagsmálanefnd 1997-1998,
kjörbréfanefnd 1999-2007,
sérnefnd um stjórnarskrármál 1999-2003, 2004 og 2005-2007,
efnahags- og viðskiptanefnd 1999-2007,
efnahags- og skattanefnd 2007-2009 og 2009-2010,
félags- og tryggingamálanefnd 2007-2009 og 2010,
sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd 2009-2010,
umhverfisnefnd 2009-2010,
utanríkismálanefnd 2009-2010,
stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd 2013- (formaður).

starfsreynsla
utan þings
Kennari við grunnskóla Reykjavíkur 1971-1972.
Rannsóknir við Edinborgarháskóla og ýmis hlutastörf 1974-1978.
Fréttamaður Ríkisútvarpsins, hljóðvarps og síðan sjónvarps, 1978-1988, í Kaupmannahöfn 1986-1988.
Stundakennari við Háskóla Íslands síðan 1979.
Formaður BSRB 1988-2009.

><>  ><>  ><>  ><>  ><>

Össur Skarphéðinsson

Össur Skarphéðinsson
fæddur í Reykjavík 19. júní 1953

þingmaður Reykjavíkur suður (Reykjavíkur norður 2003-2009, Reykjavíkur 1991-2003)
Samfylkingin (Alþýðuflokkur 1991-1996)
formaður flokksins frá 2000-2005
formaður þingflokksins 2006-2007
hefur setið inni á þingi frá 1991

utanríkisráðherra
2009-2013

aldur

 60 ára

menntun Stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1973.
BS-próf í líffræði frá HÍ 1979.
Doktorspróf í lífeðlisfræði með fiskeldi sem sérgrein frá Háskólanum í East Anglia, Englandi, 1983.

stjórnmálaþátttaka
utan þings

Formaður stúdentaráðs HÍ 1976-1977.

Í miðstjórn Alþýðubandalagsins 1985-1987.
Í framkvæmdastjórn Alþýðubandalagsins 1985 og 1986.
Í flokksstjórn Alþýðuflokksins 1991-1993.
Formaður Samfylkingarinnar 2000-2005.

Í stjórnarskrárnefnd 2005-2007.

Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA 1991-1993 og 1999-2004.
Íslandsdeild VES-þingsins 1995-1999.
Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins 2004-2005.
Íslandsdeild NATO-þingsins 2005-2007 (formaður) og 2013-.

starfsaldur á þingi
Hefur setið í 23 ár á þingi. 2 ár áður en hann varð ráðherra í fyrsta skipti.

Gegndi áður eftirtöldum ráðherraembættum:
umhverfisráðherra 1993-1995
iðnaðarráðherra 2007-2009
samstarfsráðherra Norðurlanda 2007-2008

viðkomandi þingnefndir
sjávarútvegsnefnd 1991-1993,
allsherjarnefnd 1991-1992,
iðnaðarnefnd 1991-1993 (formaður),
landbúnaðarnefnd 1992-1993,
utanríkismálanefnd 1995-1999, 2005-2007 og 2013-,
heilbrigðis- og trygginganefnd 1995-1999 (formaður),
umhverfisnefnd 1999-2000,
fjárlaganefnd 1999-2001,
kjörbréfanefnd 1999-2003 og 2013,
efnahags- og viðskiptanefnd 2001-2005.

starfsreynsla
utan þings
Ritstjóri Þjóðviljans 1984-1987.
Lektor við Háskóla Íslands 1987-1988.
Aðstoðarforstjóri Reykvískrar endurtryggingar 1989-1991.
Ritstjóri Alþýðublaðsins 1996-1997
Ritstjóri DV 1997-1998.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kjartan Eggertsson

Athyglisverð fyrirsögn "Menntunar- og hæfniskröfur". Menntun er ekki skólaganga eða prófskýrteini, eins hér eru upp talnn, - og hæfni til að vera "góður" ráðherra er fjarri því að hafa eitthvað með setu á skólabekk að gera, - hvað þá prófskýrteini. Færa má rök fyrir því að íslenskt skólakerfi eyðileggi sjálfstæða hugsun, en hún er nauðsynleg öllum þeim sem árangri vilja ná í stjórnunarstörfum.

Kjartan Eggertsson, 20.4.2014 kl. 18:58

2 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Miðað við innleggið þitt ert þú að gefa þér eitthvað sem þú telur að liggi í fyrirsögninni. Titillinn vísar til atvinnuauglýsinga þar sem iðulega eru taldir upp hvaða menntun og hæfileikar eru æskilegir til að uppfylla þau skilyrði að teljast hæfur til þess starfs sem til stendur að fylla með hæfasta umsækjandanum. Að öðru leyti kemur það mér töluvert á óvart að maður sem titlar sig aðstoðarskólastjóri Tónskóla Hörpunnar skuli láta hafa annað eins eftir sér: &#132;Færa má rök fyrir því að íslenskt skólakerfi eyðileggi sjálfstæða hugsun&#147;.

Ef skólinn er þess umkominn að eyðileggja sjálfstæða hugsun einhverra er hætt við því að hver sem er geti brotið niður sjálfstæði hugsunar þeirra sem þú hefur í huga. Það er nokkuð víst að þeir sem eru svo veikir fyrir áhrifum annarra eigi sísta erindið í hvers konar stjórnunarstörf hvað þá þeirra embætta sem eru í brennidepli hér.

Rakel Sigurgeirsdóttir, 20.4.2014 kl. 22:50

3 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Einhverntímann var sagt "Guð blessi landið þegar menntamennirnir fá að ráða"

Hve satt það er dæmist af því sem maður les um menntun þeirra sem setið hafa á ráðherrastóli...

Ef eitthvað er þá eiga þeir sem ráða landinu að vera með skynsemina í lagi og hugsa um fólkið en ekki rassgatið á sjálfum sér og nokkrum einkavinum...

Með kveðju

Ólafur Björn Ólafsson, 21.4.2014 kl. 09:30

4 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Eins og segir einhvers staðar þá er menntun ekki allt. Einstaklingar geta aflað sér dýrmætrar þekkingar víðar en í skólum. Reynsla hlýtur líka að vera afar dýrmæt. Þó nokkrir ofantaldra eru með töluverða reynslu af almennum atvinnumarkaði en enn þá fleiri af ýmis konar stjórnmálastörfum.

Þegar horft er til þeirra sem áttu sæti í síðustu ríkisstjórn er samanlögð þingreynsla þeirra meiri en þeirra sem sitja í sambærilegum sætum nú en það er líka áberandi hve margir þeirra, sem eru ráðherrar í núverandi ríkisstjórn, hafa aflað sér stjórnmálareynslu í borgar-, bæjar- eða sveitarstjórnum.

Ég treysti því að þeir sem sátu í síðustu ríkisstjórn og þeir sem sitja nú séu með skynsemina í ágætu lagi en að mínum dómi er það ekki skynsamlegt að standa þannig að ráðherraskipun eins og hefur orðið að hefð hér á landi. Það er þó ekkert víst að það sé svo auðvelt að finna aðra aðferð sem virkar eitthvað betur.

Það liggur væntanlega í augum uppi, að þeir sem eru skipaðir ráðherrar, eru reistar verulega erfiðar skorður í því að sinna starfi sínu með sóma þar sem þeir eru líka þingmenn og gjarnan í umfangsmiklum trúnaðarstörfum fyrir sína stjórnmálaflokka á sama tíma. Að öllu samanlögðu þá er ég á því að það sé langt frá því að vera öfundsvert starf að vera ráðherra á Íslandi í dag.

Þær aðstæður sem þeim sem gegna ráðherraembætum eru búnar eru hins vegar langt frá því að vera eingöngu á þeirra eigin ábyrgð þó það sé líklegt að frumkvæði af þeirra hálfu til að breyta þeim yrðu meðal þess marktækasta í þeirri umræðu ef almenn samstaða er um breytingar.

Svo ég víki aðeins betur að því sem þú settir fram í innleggi þínu þá er það e.t.v. álagið sem býður upp á það að einhverjir þeirra sem hafa gegnt ráðherraembættum hingað til hafa freistast til að umbuna sjálfum sér með sérhagsmunamiðuðum aðgerðum. Ég er ekki viss um að menntun myndi breyta neinu þar um en vissulega er ég á því að æskilegast er að þeir sem eru skipaðir ráðherrar hafi þekkingu og reynslu af þeim málaflokkum þeirra ráðuneyta sem þeir eru skipaðir yfir.

Hins vegar gæti það reynst þrautinni þyngri að setja því nákvæman ramma ekki síst fyrir það að málefni ráðuneytanna eru afar víðtæk og þar af leiðandi hæpið að gera ráð fyrir að einhver búi yfir þekkingu og reynslu á öllum sviðum þess ráðuneytis sem aðrir þættir hjá viðkomandi mæla með að hann taki að sér.

M.ö.o. þá hljóta fleiri þættir að koma til álita en menntun viðkomandi þegar störf eru skipuð; þ.e. þekking, reynsla og svo persónulegir þættir eins og skipulags- og stjórnunarhæfileikar og færni í persónulegum samskiptum. Þegar um er að ræða skipun í þær stöður sem eru meðal æðstu embætta landsins sem fara með málaflokka sem varða sameiginleg hagsmunamál alls samfélagsins þá er þó ekki óeðlilegt að gera kröfu um að viðkomandi búi yfir haldgóðri þekkingu og reynslu í helstu málaflokkum viðkomandi ráðuneytis. 

Rakel Sigurgeirsdóttir, 21.4.2014 kl. 16:09

5 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Grunar að best væri að fá konu sem hefur lifað við fátækt til að stjórna, það er ef hún hefur náð að spila vel úr því litla sem hún hafði af fjármunum. Það er allavega einhver með reynslu af að forgangsraða og nýta eins og best verður á kosið þá litlu fjármuni sem heimilið hafði úr að moða þá og þá stundina.

Að fá einhverja "hagfræðinga" væri stór mistök enda flestir tekið lærdóminn öfugt inn sem sást best hvernig fór í hruninu með alla þessa "hagfræðinga" hér og þar til að stjórna og leiðbeina.

Hér þurfum við fólk sem hefur hæfilega menntun, aðallega skynsemi og útsjónarsemi, skipulagshæfileika og þor til að framkvæma það sem þarf hverju sinni. Klíkustjórnmál eiga að hverfa...

Niðurstaðan mín er sú að menntun (langskólaganga) sé aukaatriði en reynslan er betri. Vona svo að þessir rynsluboltar sem hafa dýft hendi í kallt vatn hér áður og eru ráðherrar í dag verði til góðs.

Kveðja

Ólafur Björn Ólafsson, 23.4.2014 kl. 19:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband