Alvarlega vegið að lýðræðinu

Opið bréf frá forystu SAMSTÖÐU

Í samfélagi sem vill kenna sig við upplýsingu og lýðræði ætti ekki að vera erfiðleikum bundið að stofna stjórnmálaflokk og koma honum á framfæri við kjósendur. Ekki síst þegar um er að ræða samfélag þar sem ríkið rekur bæði útvarps- og sjónvarpsmiðil af skattfé almennings.

Eins og kunnugt er stofnaði Lilja Mósesdóttir stjórnmálaflokkinn SAMSTÖÐU flokk lýðræðis og velferðar fyrr á þessu ári ásamt hópi einstaklinga sem höfðu unnið að því með henni að setja flokknum grundvallargildi og stefnuskrá. Frá upphafi hafa fjölmiðlar sýnt þessu nýja framboði daufar undirtektir og stefnumál hans því lítið komið fyrir sjónir eða eyru almennings. Skylt er þó að taka fram að nokkur landsmálablaðanna hafa staðið sig vel í að koma mismunandi sjónarmiðum á framfæri við lesendur sínar og birt greinar frá flokksfélögum SAMSTÖÐU.

Nú þegar líður að næstu alþingiskosningum hafa ný framboð fengið aukið rými í öllum stærri fjölmiðlum landsins með viðtölum við forystuaðila og aðra fulltrúa þessara flokka. Öll nema SAMSTAÐA. Þrátt fyrir ítrekaðar athugasemdir við bæði dagskrárgerðarmenn og þáttastjórnendur einkum hjá RÚV hefur fulltrúum flokksins ekki verið gefinn kostur á að koma sjónarmiðum og stefnu flokksins á framfæri í þeim málaflokkum sem hafa verið til umræðu hverju sinni.

Það að fulltrúar SAMSTÖÐU hafa ekki fengið tækifæri til að koma stefnumálum flokksins á framfæri í útbreiddasta fjölmiðli landsins er mjög líklega ein þeirra skýringa að fylgi flokkins hefur fallið mjög hratt. Fleira kemur þó til en líkur benda til að Capacent beri þar ábyrgð líka. Staðfestar heimildir hafa nefnilega komið fram um það að nafn SAMSTÖÐU var ekki með á lista yfir aðra stjórnmálaflokka í viðhorfskönnun Capacent sem gerð var nú í nóvember en könnuninni var ætlað að mæla viðhorf fólks til stjórn- og þjóðmála.

Merki capacentAf framantöldu þykir fulltrúum stjórnar og framkvæmdaráðs SAMSTÖÐU ástæða til að koma eftirfarandi á framfæri: Hvað Capacent varðar þá verða stofnanir og fyrirtæki sem gefa sig út fyrir það að vera hlutlausir aðilar við framkvæmd skoðanakannana að viðhafa vinnubrögð sem viðhalda trúverðugleika með gangsæi þannig að hægt sé að staðreyna niðurstöður sem birtar eru m.a. varðandi fylgi stjórnmálaflokka. Forráðamenn Capacent hljóta að taka þetta til alvarlegrar athugunar vilji þeir halda stöðu sinni sem leiðandi fyrirtæki á sviði rannsókna á viðhorfum fólks til stjórn- og þjóðmála.

Merki RÚVÁstæða er til að hvetja fréttamenn RÚV til að taka upp fréttaflutning sem styrkir gagnrýna og lýðræðislega umræðu og framfylgja þannig lögum um ríkisútvarpið þar sem segir um hlutverk þess og skyldur: Að veita víðtæka, áreiðanlega, almenna og hlutlæga fréttaþjónustu um innlend [...] málefni líðandi stundar og vera vettvangur fyrir mismunandi skoðanir á málum sem efst eru á baugi hverju sinni eða almenning varða.“ (sjá 7. lið 3. gr. laga nr. 6/2007)

Dagskrárgerðarmenn og þáttastjórnendur RÚV eru líka hvattir til að leggja sig fram um það við val á viðmælendum að raddir ólíkra sjónarmiða fái að heyrast í þeirri pólitísku umræðu sem þeir stýra og gæta þannig fyllstu óhlutdrægni í frásögn, túlkun og dagskrárgerð (sbr. 5. lið 3. gr. laga nr. 6/2007).

Í aðdraganda alþingiskosninga ætti vantraust almennings, sem óneitanlega hefur verið mjög áberandi á undanförnum fjórum árum, að vera merki um ný vinnubrögð allra helstu stofnana samfélagsins. Miðað við skyldur fjölmiðla er ekki óeðlilegt að ætla þeim sem hafa atvinnu að fjölmiðlun að gera það að kappsmáli sínu að „halda í heiðri lýðræðislegar grundvallarreglur og standa vörð um tjáningarfrelsi“ auk þess að „gæta þess að mismunandi sjónarmið komi fram“. (26 gr. laga nr. 38/2011)

Fjölmiðlar sem fjalla um nýjar hugmyndir og lausnir á þeim vandamálum sem grundvalla óánægjuna í samfélaginu munu að öllum líkindum laða að sér fleiri hlustendur og/eða lesendur auk þess að ávinna sér traust fyrir að uppfylla þær skyldur sínar að endurspegla ólík sjónarmið.

Fyrir hönd stjórnar og framkvæmdaráðs
SAMSTÖÐU flokks lýðræðis og velferðar,
Rakel Sigurgeirsdóttir, kynningar- og tengslafulltrúi flokksins


mbl.is Segja vegið að lýðræðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband