Rúmlega þriggja mánaða frestur

Meirihluti stjórnar aðildarfélags SAMSTÖÐU flokks lýðræðis og velferðar í Reykjavík samþykkti eftirfarandi ályktun varðandi aðildarviðræðurnar við Evrópusambandið sl. mánudagskvöld. Ályktunin hefur verið send á forsætisráðherra og alla helstu fjölmiðla. Ályktun stjórnar SAMSTÖÐU-Reykjavík er svohljóðandi:

Stjórn SAMSTÖÐU-Reykjavík fer fram á að ríkisstjórnin ljúki viðræðum um aðild Íslands að Evrópusamabandinu fyrir 1. ágúst 2012. Verði samningaferlinu ekki lokið fyrir þann tíma krefst stjórn SAMSTÖÐU-Reykjavík að þjóðaratkvæðagreiðsla um það hvort halda eigi samningaferlinu áfram fari fram eigi síðar en í nóvember 2012. Afar brýnt er að viðræðunum verði lokið á þessu ári til að þær skyggi ekki á brýn kosningamál í næstu alþingiskosningum. Þessi kosningamál eru, að mati stjórnar SAMSTÖÐU-Reykjavík: lausn á óásættanlegri skuldastöðu heimila og smáfyrirtækja og leið til að afnema gjaldeyrishöftin sem tryggir almenna velferð og sjálfbærni efnahagslífsins.

Greinargerð:

Stjórn SAMSTÖÐU-Reykjavík er þeirrar skoðunar „að við núverandi aðstæður sé hagsmunum Íslands best borgið utan ESB“ og telur ennfremur að ríkisstjórninni beri skylda til að efna loforð sín um að samningaviðræðurnar myndu ekki taka lengri tíma en eitt og hálft ár.

Eftirfarandi atburðir hafa grafið undan upphaflegum forsendum aðildarviðræðnanna:
  • Evrópusambandið hefur nú í hótunum um að beita Ísland viðskiptaþvingunum til að stöðva lögmætar og ábyrgar makrílveiðar Íslands innan eigin efnahagslögsögu.
  • Evrópusambandið hefur einnig tekið formlega stöðu gegn sjónarmiðum og hagsmunum Íslands í Icesave deilunni.
  • Aðildarferlið átti að taka eitt og hálft ár en hefur nú dregist í tvöfalt lengri tíma og endirinn ekki í sjónmáli.
  • Aðildarumsóknin hefur verið umdeild frá upphafi. Viðhorfskannanir sýna mikla og vaxandi andstöðu við aðild.
  • Aðlögunarferlið dregur dýrmætan tíma, fjármuni og orku stjórnvalda frá brýnni verkefnum.
  • Evrópusambandið glímir sjálft við gjaldmiðils- og skuldakreppu sem ekki er séð fyrir endann á.
  • Aðgerðir og viðbrögð Evrópusambandsins við eigin vandamálum boða ekki gott að mati Samstöðu-Reykjavík þar sem almenningur hefur verið látinn axla tap illa rekinna fjármálafyrirtækja.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gott mál hjá Samstöðu.  Kominn tími til að þeir sem vilja skynsemi í þessum málum láti til sín taka og skeri endanlega á þann hnút sem þetta mál er komið í vegna svika, undirferlis og óheiðarleika utanríkisráðherra og ríkisstjórnarinnar allrar.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.4.2012 kl. 11:04

2 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Nákvæmlega Ásthildur!

Rakel Sigurgeirsdóttir, 19.4.2012 kl. 17:22

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sýnist að þessi ESB umsókn sé að detta um sjálfa sig loksins.  Lifir ekki til ágústs hef ég trú á.  Sem betur fer.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.4.2012 kl. 18:44

4 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Vonandi reynist þú sannspá

Rakel Sigurgeirsdóttir, 19.4.2012 kl. 21:19

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já Rakel mín vonandi þá geta framboðin einbeitt sér að því sem skiptir þjóðina máli sem sagt almannahagur og leiðrétting heimilanna.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.4.2012 kl. 21:23

6 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Heyr, heyr.....

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 20.4.2012 kl. 02:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband