Grasrótin er ógn við úrelta hugmyndafræði!

Margir þeirra sem risu upp og sameinuðust í háværum mótmælum haustið 2008 eru enn að. Sumir hafa helst úr lestinni en aðrir hafa bæst við. Þessi hópur hefur gjarnan verið kenndur við grasrót en þar hefur farið fram öflugt og hugmyndaríkt starf sem miðar að gæfuríkum lausnum. Þetta starf hafa fjölmiðlar valdsins kosið að leiða hjá sér og stuðla þannig að því að viðhalda kyrrstöðunni.

Það er ekki þar með sagt að fjölmiðlar fjalli ekkert um þennan hóp. Öðru nær því allt frá hruni hafa þeir apað upp vafasamar staðhæfingar fulltrúa valdsins um tilgang og eða tengsl einstaklinganna í þessum hópi við einhvern úr „óvinaliðinu“ eða dregið fram einhverjar gróusögur um viðkomandi.

Hvoru tveggja er gert í þeim tilgangi að draga úr trúverðugleika baráttuaflanna og skapa sundrungu. Það hentar nefnilega valdinu að viðhaldið tortryggninni og draga þannig úr ógninni sem valdinu stafar af þeim öfluga hópi sem hefur starfað í grasrót nýrrar og byltingarkenndrar hugmyndafræði frá haustinu 2008.

Gamla kerfið er dautt!

Það sem grasrótin þarf að gera er að hætta að láta fjölmiðlastýra sér af álitsgjöfum valdsins. Ef grasrótin hættir að láta hræra í sér með óvönduðum fréttaflutningi um aðgerðir hennar og einbeitir sér að því markmiði að bylta við sjúku hugarfari og spilltu fjármála- og stjórnmálakerfi þá mun henni farnast vel og ná árangri.

Grasrótin er nefnilega til og ótrúlega öflugt afl sem þar býr þrátt fyrir að hópurinn sem hún er mynduð af telji ekki nema rétt rúmlega 300.000 manna þjóð. Það er líka með ólíkindum hverju hún hefur áorkað! Nægir þar að nefna tvær þjóðaratkvæðagreiðslur um Icesave.

Ef þeir sem halda grasrótinni uppi skilja að þöggunin og afbökunin sem hún býr undir snýst um það að hún er „hættuleg“ valdinu sem ætlar sér að halda hlutunum nákvæmlega eins og þeir eru. Ef þessir skilja aflið sem í grasrótinni býr og ógnina sem styrkur þeirra og kraftur eru fyrir fámenna eigna- og valdastétt þá gengi þessum e.t.v. betur að skilja að hvert og eitt okkar skiptir máli. Við þurfum heldur ekki alltaf að vinna í saman í stórum hópum ef markmið okkar er það sama.

Þ.e. að bylta núverandi hugarfari, sem grundvallast á mismunun, og bylta fjármála- og stjórnmálakerfinu sem hefur verið byggt upp til að verja þessa mismunun. Við viljum réttlæti og lýðræði, heiðarleika og sanngirni sem ætti að vera auðvelt að byggja upp í svo fámennu samfélagi og okkar.

Hættum að láta áróðurinn um okkur hafa áhrif á það hvernig við metum okkur sjálf og skiljum að þessi áróður er grundvallaður á óttanum við kraftinn sem í okkur býr!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Flott færsla og svo sönn!

Marinó G. Njálsson, 4.5.2011 kl. 21:52

2 Smámynd: Agný

Eruð þið virkilega ekki búin að fatta það að þaað er fasisminn sem er við völd en allar aðrar mögulegar "ism" grýlur eru notaðar til að kom þannig stjórnarfari á!?..Við erum sko þokkalega á veg komin með það hér á landi..og fyrir x tugum ára.....Number one og heimsmet það er málið hjá okkur íslendingum en ekki málið í hverju...

Agný, 5.5.2011 kl. 03:55

3 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Takk fyrir innlit og innlegg Marinó

Agný, því miður næ ég ekki alveg hver kjarninn er í innleggi þínu þannig að ég treysti mér ekki til að leggja nokkuð til þess.

Rakel Sigurgeirsdóttir, 8.5.2011 kl. 02:48

4 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Góð færsla og skyr þetta er alveg rétt hjá þér Rakel og það verður að halda áfram dropin holar steininn og fjöll er hægt að flytja með því að taka einn stein í einu. Það þarf að gera þetta með þolinmæði minnir mig oft á uppeldi maður má aldrei missa sjónar á takmarkinu og ekki missastjórn á skapi sínu og láta undan þeirri löngun að fara auðveldul leiðina.

Jón Aðalsteinn Jónsson, 8.5.2011 kl. 12:51

5 identicon

Heiðvirð skrif eins og þín er von og vísa !

Ég hef verið svo lánsöm að kynnast gagnmerku hugsjónafólki, þvert á flokka, ættar- og hagsmunatengsl, í röðum Austvellinga. - Mér kom á óvart hvað til væri mikið af leiftrandi vel gefnu og lifandi fólki á Íslandi, á öllum aldursstigum. - Ég hef lært margt og mikið og er enn að.

Ég sé breytingar í sjónmáli. - Hugarfarsbreytingu andans. - Mörgu hefur verið áorkað.

Höldum staðfastri sýn að bættu og betra Íslandi.

 Rakel. - Takk fyrir djörfung og góða framgöngu - til móts við uppsprettu feggura mannlífs á Íslandi.

Helga Björk Magnúsd. Grétudóttir (IP-tala skráð) 8.5.2011 kl. 13:03

6 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Þakka ykkur báðum fyrir bæði viskufull og falleg innlegg.

Rakel Sigurgeirsdóttir, 9.5.2011 kl. 00:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband