Ofurlítið fréttayfirlit

Það hefur litlum fréttum farið af því hvort einhverjir hafi sagt upp viðskiptum sínum við hrunbankanna þrjá í tilefni alþjóðlega bankaáhlaupsins sem var í gær. Ég veit þó um nokkra sem hafa flutt viðskipti sín úr þessum bönkum yfir í annan af tveimur sparisjóðum sem hafa enga ríkisstyrki þegið. En eins og allir ættu að vera farnir að átta sig á þá er eins og það sé sameiginlegt þöggunarátak hjá þeim sem vilja verja gamla kerfið sem leiddu okkur í hrunið.

Það er ekki ætlun mín að fara ýtarlega ofan í þessa sálma heldur að setja hér inn sýnishorn af viðburðum gærdagsins og dagsins í dag. Fyrst er það dæmi um eitt þeirra jólalaga sem var tekið við Landsbankann á alþjóðlegum bankadegi.

Hér er textinn:

Sjö lítil hús voru boðin upp
er bankakerfið fjandans til fór.
Ætlið'ið ekki að hjálpa undrandi ég spurði
en þingið allt svaraði í kór:

Allir saman nú: Einn, tveir, þrír!
Nei, við ætlum að vera svo ósköp þæg og góð,
fyrir okkar alþjóðagjaldeyrissjóð.
Jólunum á þurfið þið að flytja
og við vitum alls ekki hvert!

Kórinn og tónborðsleikarinn eiga eftir að koma saman aftur síðar í mánuðinum og skemmta gestum og gangandi fyrir framan útibú Arion- og Íslandsbanka. Þess má geta að þó við fengjum ekki leyfi til að fara inn í Landsbankann og halda tónleikana þar þá sníktu nokkrir öryggisvarðanna af okkur textablað.

Í dag eru svo tvö ár liðin frá því að hópur fólks heimsótti Alþingi með það fyrir augum að halda upp á þingpalla og lesa yfirlýsingu fyrir þingheim. Þau komust aldrei þangað þar sem þau voru stöðvuð. Níu þeirra hafa mátt sæta pólitískum ofsóknum síðan sem hafa verið rækilega studdar af íslenska dómskerfinu. Það hefur verið gripið til margháttaðra mótmælaaðgerða fyrir það svívirðilega einelti sem þessi hópur sætir en allt hefur komið fyrir ekki. (Sjá nánar hér)

Í dag hittumst við nokkur uppi á þingpöllum til að minna á þetta mál og sýna þessum níu samstöðu. Það dró til tíðinda:

Í framhaldinu voru þingpallar rýmdir og þegar þingfundur hófst að nýju hafði Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir ákveðið að honum skyldi framhaldið fyrir luktum dyrum. (Sjá hér)


mbl.is Segja að Landsbankinn hafi staðið mun verr en bókhald sagði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Ágústsson

þar sem ég er ekki á landinu hef ég verið að leita af fréttum um 7 des en þöggunin er algjör

hvað voru margir Íslendingar sem hættu viðskiptum við glæpabankana?

 ég er farinn að skammast mín fyrir okkur sem þjóð

það er sama hvað mikill viðbjíður kemur frá þessum bönkum allir halda áfram að skipta við þá????????

ég flutti langtíma sparnaðinn í Auði

er að vinna í því að fra frá landsbankanum en það tekur tíma þar sem ég er ekki á landinu 

KOMA SVO ÍSLENDINGAR VAKNIР

Magnús Ágústsson, 9.12.2010 kl. 02:51

2 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Á meðan við búum við samtryggingu valda- og eignastéttarinnar er ekki mikil von um fréttir af því sem ógnar stöðu þessa hóps. Eins og ég sagði hér að ofan veit ég um nokkra sem eru annaðhvort búnir að flytja viðskipti sín eða búnir að því en ég þekki líka miklu fleiri sem eru í þeim sporum að þeim finnst þægilegra að trúa því sem sagt er í hefðbundnum fjölmiðlum. Ég veit svei mér þá ekki hvort eða hvenær það breytist Það tekur a.m.k. ótrúlegan tíma að vakna fyrir alltof stóran hóp!

Rakel Sigurgeirsdóttir, 9.12.2010 kl. 03:02

3 Smámynd: Magnús Ágústsson

Ég dáist af dugnði þínum við að reyna að vekja hina sofandi þjóð

en því miður hef ég ekki heilsu til að vera í kuldanum til að leggja mitt af mörkum

Yakk Rakel fyrir þína baráttu

Magnús Ágústsson, 9.12.2010 kl. 03:08

4 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Ég er bara ein af mörgum en það er auðvitað gott að vita að það séu einhverjir sem sjái einhverja vitglóru í því sem maður er að reyna að gera. Vonandi mun það skila einhverju.

Rakel Sigurgeirsdóttir, 9.12.2010 kl. 03:22

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Svo sannarlega er auðvelt að sjá vitglóruna í því sem þú og fleiri eru að gera.  Ég stend heilshugar með ykkur.  Ég tók líka eftir því að það voru engir öryggishjálmar, kylfur eða gas hjá lögreglunni.  Það er greinilegt að það hefur verið skipt um taktik sem er vel.  Heldur engar girðingar fyrir utan alþingishúsið.  Ráðamenn hafa áttað sig á því að það gerir ill verra, og setur hörku í málin.  Enda hafa þau verið harðlega gagnrýnd fyrir hörku og ofbeldi við almenning á mótmælum.

Ég hef hálfgert samviskubit fyrir að bara tala um þetta og koma ánægju minni á framfæri, en vera ekki í aðstöðu til að standa með ykkur í verki.    En ég stend 100% með mótmælendum. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.12.2010 kl. 10:44

6 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Einhverjir voru með gas við alþingishúsið í gær en það vakti athygli mína hvað taktíkin var önnur inni á pöllunum en ég var búin að búa mig undir. Svo þarft þú ekki að hafa samviskubit Ásthildur mína! Síður en svo

Rakel Sigurgeirsdóttir, 9.12.2010 kl. 12:48

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gott að vita  

Löggan er sem sagt vopnuð, en meira í leyni en áður. Það var og. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.12.2010 kl. 13:33

8 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Það má líka orða það þannig að þeir hafi tekið með sér gasið til vonar og vara en ekki  í þeim eina tilgangi að beita því eða þannig fannst mér þetta stundum koma út í búsáhaldabyltingunni.

Rakel Sigurgeirsdóttir, 9.12.2010 kl. 17:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband