Bloggfærslur mánaðarins, maí 2011

Gefum þeim frí!

Við vorum einhverjir tugir sem mættum niður á Austurvöll í dag og tókum þannig þátt í að standa með þeirri samfélagslegu meðvitundarvakningu sem á sér stað í Evrópu og víðar í heiminum um þessar mundir.

Þrír ræðumenn tóku til máls niður á Austurvelli en það voru: sú sem þetta skrifar, Þórður Björn Sigurðsson og Sólveig Jónsdóttir. Guðjón Heiðar Valgarðsson söng byltingarsöngva og Ásta Hafberg og Eyrún D. Ingadóttir söfnuðu skilaboðum mótmælenda til þingheims í svokallaðan kreppukassa.

Þórður Björn Sigurðsson
Solveig Jónsdóttir

Ræðan sem ég flutti fer hér á eftir:

Réttlætissinnaða samkoma!

Mér er það sannur heiður að vera á meðal ykkar hér í dag.

Mörg ykkar hafið staðið föstum fótum á þeirri bjargföstu trú að annar veruleiki en sá sem við horfum upp á í stjórnmálum og efnahagsmálum í dag sé mögulegur!

Ég er ein þeirra sannfærðu! og nú hefur stór hluti Evrpópu staðið upp líka og kallar eftir því sama og dró mig og marga þeirra sem risu upp þegar haustið 2008 út í viðspyrnuna.

Ég er stolt af því að tilheyra þeim fámenna en samfélagslega meðvitaða og staðfasta hópi sem hefur mótmælt arðráni, yfirhylmingu og siðspillingunni innan stjórnsýslunnar og fjármálakerfisins hér á Íslandi, nær óslitið í bráðum þrjú ár!

Við höfum náð þeim árangri að sýna fram á að viðspyrnan hefur áhrif þó enn virðist langt í land með að upphaflegar kröfur okkar um uppgjör og breytingar á bæði stjórn- og fjármálakerfinu nái fram að ganga.

Á þeim tíma sem er liðinn frá haustinu 2008 hafa mörg okkar stappað stálinu í hvert annað með því að benda á að dropinn holi steininn.

Svo sannarlega má líkja mótmælendum þessarar fámennu þjóðar við dropa og bákninu sem við höfum reynt að hafa áhrif á við steininn.

Dropinn sem við höfum myndað hefur að öllum líkindum kallað fram einhverjar ósýnilegar sprungur í steingert báknið og miðað við það sem er að gerast úti í Evrópu núna reikna ég með að þær komi fram og verði til þess að virkisveggurinn sem valdið hefur reist utan um sig muni að lokum hrynja.

Dagurinn í dag markar vonandi tímamót hvað þetta varðar þar sem samfélagslega meðvitaðir íbúar a.m.k. 26 evrópulanda kemur saman á torgum borga og bæja víðs vegar um álfuna til að mótmæla því að þeir skuli vera látnir bera uppi sérhagsmunamiðaða valda- og eignastétt þessara landa.

Mig langar til að vekja athygli á því hvaða lönd þetta eru og tel þau því upp. Löndin eru auk Íslands:  Austurríki, Belgía, Búlgaría, Danmörk, England, Finnland, Frakkland, Grikkland, Holland, Írland, Ítalía, Króatía, Kýpur, Noregur, Portúgal, Rúmenía, Rússland, Serbía, Slóvakía, Spánn, Sviss, Svíþjóð, Tékkland, Ungverjaland og Þýskaland.

Krafa þeirra, rétt eins og okkar, er raunverulegt lýðræði! en íslenskir mótmælendur leggja líka áherslu á að sá forsendubrestur sem varð á almennum lánum, vegna glæpsamlegs athæfis eigenda og stjórnenda vel flestra fjármálastofnana í landinu, verði leiðréttur!

Persónulega mæli ég með að þeir sem hafa setið hér við stjórnvölinn á undanförnum árum verði sendir í frí og hér taki við stjórn óspilltra sérfræðinga og samfélagslega meðvitaðra einstaklinga.

Persónulega vil ég að sá hópur sem leysti núverandi stjórnvöld af gerði það að forgangsverkefni að breyta núverandi fjármálakerfi, sem er í reynd hið raunverulega vald sem stendur lýðræðinu og kjörum okkar fyrir þrifum.

Ég vil meina að núverandi stjórnmálamönnum veiti ekki af fríi frá hanaslagnum og sjálfsblekkingunni um eigið mikilvægi sem þeir hafa boðið þjóðinni upp á hingað til. Mér finnst þó miklu frekar að þjóðin verðskuldi frí frá pólitík sem snýst minnst um það sem snertir beina hagsmuni okkar.

Raunverulegir hagsmunir okkar almennings hafa nefnilega ekkert með flokkspólitík að gera.

Hins vegar kæmi almenn skynsemi, heiðarleiki og réttlætiskennd sér fjarskalega vel við þá vinnu sem framundan er við að breyta þeirri forgangsröðun sem Evrópa mótmælir nú öll og við að koma á raunverulegu lýðræði!

 
Í lokin settist ég niður og skrifaði litla orðsendingu í kreppukassann þar sem ég skoraði á ríkisstjórnina að kalla eitthvað af því samfélagslega meðvitaða fólki sem hefði komið fram með hugmyndir og lausnir á undanförnum mánuðum á sinn fund. Ég benti þeim á nöfn nokkurra einstaklinga sem komu upp í hugann þar sem ég sat undir styttunni af Jóni Sigurðssyni. Ég merkti miðann hugmynd að lausn á samfélagskreppunni.

KreppukassinnÞað má benda þeim á sem vilja koma skilaboðum áleiðis til þingmanna í gegnum kreppukassann að þeir geta sent tölvupóst til Eyrúnar. „Þetta mega vera reynslusögur, vísur, lausnir á breyttri stöðu“ eða hvað sem ykkur dettur í hug að eigi erindi við þingheim.

Eyrún sér um að prenta skilaboðin út og setja í kreppukassann áður en honum verður skilað. Tölvupóstangið hennar er: eyrundogg@msn.com

Kassanum verður komið niður á Alþingi síðar í þessari viku.
mbl.is Mögulega 18 mánuðir í samning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Evrópskir vorboðar!

Samfélagslega meðvitaðir íbúar a.m.k. 26 evrópulanda munu koma saman á torgum borga og bæja víðs vegar um álfuna til að mótmæla því að þeir skuli vera látnir bera uppi sérhagsmunamiðaða valda- og eignastétt þessara landa. Krafan er raunverulegt lýðræði.

Þessi lönd eru:  Austurríki, Belgía, Búlgaría, Danmörk, England, Finnland, Frakkland, Grikkland, Holland, Írland, Ísland, Ítalíka, Króatía, Kýpur, Noregur, Portúgal, Rúmenía, Rússland, Serbía, Slóvakía, Spánn, Sviss, Svíþjóð, Tékkland, Ungverjaland og Þýskaland (sjá hér) en mótmælt verður í a.m.k. 100 borgum og bæjum í þessum löndum. Munar mestu hve víða verður mótmælt í Frakklandi, Grikklandi, Þýskalandi, Ítalíu og Englandi.


Evrópa gerir byltingu

Það kemur væntanlega engum á óvart að fjölmiðlarnir eru frekar þögulir yfir þessari vaxandi hreyfingu en á Netinu má finna upplýsingar um flest það sem lýtur að þessari mótmælaöldu sem nú gengur yfir Evrópu; þ.e. hvar þau fara fram, tilgang þeirra og svo framgang. Þannig mátti sjá myndbönd á You Tube af ofbeldisfullum yfirgangi lögreglunnar gagnvart mótmælendum í Barcelona í gær (Sjá t.d. hér)

Þar má líka sjá hvar mótmælin fara fram. Hér er krækja inn á íslenska viðburðinn. Þessi mótmæli byrja kl. 18:00. Mótmælin hérlendis fara fram á Austurvelli í Reykjavík. Ég leyfi mér að skora á þig að taka þátt í þessum heimsögulega viðburði og skapa stórfljót sem ryður mannvænlegri tilveru rúm inn í framtíðina.

Þetta myndband var sett saman í tilefni mótmælanna á morgun. Þegar þetta er skrifað hafa tæplega 600 manns horft á það inni á You Tube. Ef þér finnst það skipta máli má geta þess að það var Íslendingur sem setti það saman en ég spái því að það eigi eftir að fara um víða veröld á næsta sólarhringnum.


Evrópa krefst alvöru lýðræðis núna!

Í stað þess að hafa langt mál um það hvers vegna við mótmælum og í stað þess að telja upp einhverjar „séríslenskar“ ástæður þess að mótmæla birti ég þessa táknrænu mynd sem segir í raun allt sem segja þarf um ástæður þess að Evrópa rís upp og mótmælir:


Almenningur mótmælir valdníðslu!

Við mótmæltum með Spánverjum um síðustu helgi nú verðum við meðal tuttugu og tveggja evrópuþjóða sem mótmæla því fyrirkomulagi sem myndin hér að ofan lýsir svo vel og krefjast raunverulegs lýðræðis. Þessar þjóðir eru: Austurríki, Belgía, Búlgaría, Danmörk, England, Finnland, Frakkland, Grikkland, Holland, Írland, Ítalíka, Króatía, Kýpur, Noregur, Portúgal, Rímenía, Serbía, Spánn, Sviss, Svíþjóð og Þýskaland (sjá hér).

Á Fésbókinni hefur verið stofnaður sérstakur viðburður fyrir Ísland (sjá hér) sem byrjaði á því að þar var stofnaður viðburður sem hvatti til mótmæla í öllum borgum Evróðu með þessari orðsendingu: 

PEOPLE IN EUROPE WAKE UP,
LETS MAKE A BETTER LIFE
LETS TALK ,
LETS MEET,
LETS CHANGE EVERYTHING
LETS DO IT!

"Angelo"

WE CALL FOR REAL DEMOCRACY NOW. We blame the economic and political forces for our bad situation and demand the necessary change of course.

We call on all citizens, under the motto "Real Democracy NOW.

We are not a commodity lying in the hands of politicians and bankers." to take to the street to protest. Join us, no matter what political views you have, to make all the people heard as a single voice.

European Revolution
Community
(sjá hér)


Við erum öll Spánverjar!

Spánverjar allra landa mótmæltu í gær í yfir 600 borgum og bæjum um allan heim. Reykjavík var ein þessara borga en þar varð mótmælavettvangurinn Austurvöllur fyrir valinu. Það verður safnast þar saman aftur í dag kl. 18:00 (Sjá hér)

Spænska byltingin á Austurvelli

Kröfur Spánverja eru í meginatriðum samhljóða þeim sem komu fram í búsáhaldabyltingunni í janúar 2009 og í tunnubyltingunni sem lét fyrst á sér kræla í október 2010.

Kröfur spænsku byltingarinnar

Þeir voru tæplega 100 sem tóku sér stöðu niður á Austurvelli í gær og tóku undir þessa kröfu. Stutt ávörp voru flutt þar sem var farið ýtarlegar í hugmyndafræði mótmælanna. Victor Pajuelo, einn spænskættuðu mótmælendanna tók það sérstaklega fram að þó nokkrir meðal spænsku þjóðarinnar líta á mótmælin hér sem fyrirmynd.

Hann tekur það sérstaklega fram að mótmælendur á Spáni séu bara almennir borgarar sem vilja breytingar. „Við viljum hafa meiri áhrif á ákvarðanir sem snerta framtíð okkar. Stjórnmálamennirnir okkar eru orðnir svo fjarlægir fólkinu. Það er stór gjá þarna á milli og þeir virðast búa í öðrum heimi en við."

Mig langar líka til að undirstrika það að Victor bendir á að flokkarnir tveir á Spáni hafi farið þannig með lýðræðið að spænskur almenningur kalli eftir nýju lýðræðisformi. „Við viljum hafa meiri áhrif með þjóðaratkvæðagreiðslum, með borgarafundum. Það dugir ekki að hafa bara kosningar á fjögurra ára fresti því stjórnmálamennirnir gleyma því að þeir eru þarna vegna þess að við kusum þá. Þeir gleyma ábyrgðinni sem þeir bera." Hér vísar hann reyndar beint í ávarp sem Birgitta Jónsdóttir, þingmaður, flutti við mótmælastöðuna.

Í dag eru bæjar- og sveitarstjórnarkosningar á Spáni. Það má því búast við að mótmælin þar nái einhvers konar hámarki þegar líður á daginn. Spánverjarnir sem komu saman niður á Austurvelli í gær ætla að hittast þar aftur klukkan 18:00 í dag og hyggjast fara að fordæmi mótmælenda úti á Spáni og sturta atkvæðunum sínum niður í klósettið. Settur hafa verið upp viðburðir á Facebokk af þessu tilefni (sjá hér og hér).

Enginn bjóst við spænsku byltingunni

Ég ætla að enda þetta með því að birta ræðu sem einn Spánverjanna flutti við mótmælastöðuna í gær. Ég reikna með að þeir séu fleiri en ég sem sjá að þessi ræða gæti allt eins hafa verið flutt við einhver mótmælanna sem hafa átt sér stað hér á landi frá haustinu 2008:

We are ordinary people. We are like you: People, who get up every morning to study, work or find a job. People who have family and friends. People, who work hard every day to provide a better future for those around us.

Some of us consider ourselves progressive, others conservative. Some of us are believers, some not. Some of us have clearly defined ideologies, others are apolitical, but we are all concerned and angry about the political, economic, and social outlook which we see around us: corruption among politicians, businessmen, bankers, leaving us helpless, without a voice.

This situation has become normal, a daily suffering, without hope. But if we join forces, we can change it. It’s time to change things, time to build a better society together. Therefore, we strongly argue that:

• The priorities of any advanced society must be equality, progress, solidarity, freedom of culture, sustainability and development, welfare and people’s happiness.

• These are inalienable truths that we should abide by in our society: the right to housing, employment, culture, health, education, political participation, free personal development, and consumer rights for a healthy and happy life.

• The current status of our government and economic system does not take care of these rights, and in many ways is an obstacle to human progress.

• Democracy belongs to the people (demos = people, krátos = government) which means that government is made of every one of us. However, in Spain most of the political class does not even listen to us. Politicians should be bringing our voice to the institutions, facilitating the political participation of citizens through direct channels that provide the greatest benefit to the wider society, not to get rich and prosper at our expense, attending only to the dictatorship of major economic powers and holding them in power through a bipartidism headed by the immovable acronym PP (conservatives, built out of old fascist party) & PSOE. (the socialists)

• Lust for power and its accumulation in only a few; create inequality, tension and injustice, which leads to violence, which we reject. The obsolete and unnatural economic model fuels the social machinery in a growing spiral that consumes itself by enriching a few and sends into poverty the rest. Until the collapse.

• The will and purpose of the current system is the accumulation of money, not regarding efficiency and the welfare of society. Wasting resources, destroying the planet, creating unemployment and unhappy consumers.

Citizens are the gears of a machine designed to enrich a minority which does not regard our needs. We are anonymous, but without us none of this would exist, because we move the world.

• If as a society we learn to not trust our future to an abstract economy, which never returns benefits for the most, we can eliminate the abuse that we are all suffering.

• We need an ethical revolution. Instead of placing money above human beings, we shall put it back to our service. We are people, not products. I am not a product of what I buy, why I buy and who I buy from.

For all of the above, I am outraged.

I think I can change it.
I think I can help.
I know that together we can. I think I can help.

I know that together we can. [leturbreytingar eru mínar]

Þarf frekari vitnisburð um það að við eigum öll erindi niður á Austurvöll í dag?


mbl.is Torg á Mallorca kallast nú Íslandstorg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimssöguleg mótmæli á Austurvelli

Það verður væntanlega alltaf erfiðara og erfiðara að sitja aðgerðarlaus hjá og láta sem þeir sem mótmæla séu eitthvað að misskilja hlutina. Það verður líka erfiðara og erfiðara að telja sér trú um að þeir sem mótmæla séu skrýtna fólkið en þeir sem sitja aðgerðarlausir hjá séu „venjulega fólkið“.

Steingrímur J. Sigfússon tók af allan vafa um það hvert hið svokallaða „venjulega fólk“ er samkvæmt hans skilgreiningu og þeir sem sátu flokksráðsfundi VG í Reykjavík tóku undir með honum. Þessir „venjulegu“ er þeir sem hafa verið settir í forgang og fengið afskriftir í bönkunum eða fengið skuldir sínar felldar niður. Ég reikna ekki með að almennir borgarar séu almennt á meðal þessara. Það er löngu orðið tímabært að allt þetta fólk taki afstöðu með sjálfu sér gegn stórhættulegri sérhagsmunastefnu sem ógnar lífi þess og framtíð.

Um þessar mundir er mótmælt víða um heim. Spánverjar sem hafa mótmælt alla þessa viku. Sumum þeirra hefur verið hugsað til Íslands og jafnvel sent íslenskum vinum sínum skilaboð um að byltingin hér á síðustu árum hafi verið þeim fyrirmynd. Hvað sem því líður má sjá að tilefni mótmælanna þar og kröfur eru kjarninn í því sem þeir sem hafa mótmælt frá haustinu 2008 fram til þessa dags hafa alla tíð sett á oddinn. Þetta kemur vel fram í texta þessa myndbands:

Spánverjar hafa komist að því að þeir geta ekki treyst stjórnmála- og fjármálaelítunni fyrir kjörum sínum og framtíð. Þeir segja að þess vegna sé komið að okkur almenningi að standa upp og breyta hlutunum. Þeir undirstrika þetta með því að benda á að við höfum enga afsökun þar sem sagan horfi til okkar... Samkvæmt þeirra skilningi er það bæði eðlilegt og sjálfsagt að rísa upp og spyrna við fótum.

Ég hef aldrei sóst eftir því að teljast til „venjulegs fólks“ enda vita það allir sem hafa einhvern tímann reynt að velta merkingu þessa orðs fyrir sér að í raun fer merking þess fullkomlega eftir notenda þess. Hann kallar það venjulegt sem er næst honum og hann vill miða sig við. Við höfum sem sagt fengið það staðfest að SJS er orðinn svo firrtur að það eru sérhagsmunagæslusveitirnar sem hann hefur skipað sér með og telur til þeirra sem megi kalla „venjulega“.

Á sama tíma má segja að heimsbyggðin hafi risið upp og sett sig upp á móti því að þessi fámenni hópur setji viðmiðin. Spænsku mótmælendurnir segja m.a. að valda- og eignastéttin þar í landi endurspegli þá á engan hátt. Mótmælin þar hófust á Sólartorginu í Madrid sl. sunnudag og standa enn. Þau dreifðu sér hratt út um allan Spán og þaðan hafa þau dreifst miklu víðar. Á morgun verður mótmælt á 538 stöðum víðsvegar um jarðarkringluna. Það er hægt að sjá dreifinguna um heiminn á þessari mynd:
Mótmælin eru á heimsvísu Það er rétt að taka það fram að við Ásta Hafberg sáum til þess að Reykjavík er núna líka komið inn á kortið. (Sjá hér) Það er dapurlegt að þannig sé komið fyrir okkur að græðgin hafi lagt samfélögin undir sig en það er þó fangnaðarefni að sjá að þjóðir heimsins eru risnar upp

Það hefur verið stofnaður Fésbókarviðurður um mótmælin í Reykjavík en þau hefjast kl. 18:00. Ég hef látið mér detta í hug að mæta með brunaboða til að undirstrika hvað ég er óvenjuleg og það hvað ég skelfist afleiðingar sérhagsmunamiðaðra gjörða „venjulega fólksins“ sem SJS hefur skipað sér með.

Ég hendi öllu öðru frá mér því mér finnst það brýnt að undirstrika það að ég vil binda endi á þann heim þar sem misskipting ræður ríkjum. Ég vil ekki búa í heimi þar sem ég og mínir líkir eru úthrópaðir í þeim tilgangi að að gefa „venjulegu fólki“ eins og Steingrími J. Sigfússyni frítt svið til að vinna sín ógæfulegu óhæfuverk!


mbl.is „Ekki hjá venjulegu fólki“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af verkum þeirra skulið þið þekkja þá!

Skúrkurinn sem stýrir AlþjóðagjaldeyrissjóðinnAllir sem hafa kynnt sér sögu og verk Dominiques Strauss-Kahns gaumgæfilega eru væntanlega löngu búnir að átta sig á því að maðurinn er skúrkur. Það er þó ljóst að stærstur hluti þeirra, sem eiga eignir og fara með völd í heiminum, kýs fremur að að horfa á gráhærðu, bindisskreyttu jakkafatagrímuna og stöðuheitið.

Þeir hinir sömu hafa hingað til ekkert látið það Gamall, gráhærður, gráðugur og graðurtrufla sig að hann ber beina ábyrgð á eyði- leggingu milljóna mannslífa. Ég treysti mér ekki til að fullyrða hvað hann hefur misnotað og eyðilagt líf margra kvenna en það ætti að vera ljóst hverjum vel upplýstum og hugsandi einstaklingi að þetta er langt frá því að vera fyrsta eða eina skiptið sem ofbeldiskennd kynhneigð framkvæmdarstjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðins brýst fram.

Sennilega hefði þessi „veikleiki“ aldrei komist í hámæli nema fyrir það að hann beitti sér í sínum heimareit! Hann áreitti sem sagt samstarfskonu sína eða of hátt setta konu til að henni yrði sópað undir teppið! Hefði hann ekki gerst svo djarfur í það skiptið er vafamál að þetta tilfelli hefði nokkurn tímann orðið opinbert.

Karlar í valdastöðum hafa misnotað konur kynferðislega og farið með þær eins og sjálfhægingarhluti á öllum öldum. Á meðan þeir halda sig við lágstéttardætur og aðrar áhrifalausar konur hefur bræðrabandalagið, sem sér um ímyndunarvörslu þessara einstaklinga, sópað yfir afleiðingar kynhegðunar þeirra. Hér er gott dæmi um það hvers ímyndunargæsluliðarnir innan Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eru megnugir.

Um leið og umræddir karlar höggva í hóp kvenna sem eru af sömu stétt og þeir sjálfir, kvenna sem eiga feður, eiginmenn eða bræður, sem krefjast sama réttar til valda og eigna og hinir fyrrnefndu, verður ímyndunarvörnin erfiðari. Í nútímanum hefur einstaka konum tekist að príla upp í það að standa jafnfætis svona körlum í baráttunni um völd, eignir og virðingu.

Samstarfskonan sem
Dominique Strauss-Kahn beitti kynferðislegu ofbeldi hefur væntanlega verið búin að ávinna sér nægilega sterka stöðu og/eða virðingu til að það var ekki hægt að sópa henni undir teppið. Hann komst þó upp með að kenna um „dómgreindarleysi“ en hún fékk aðra stöðu í öðru fjármálafyrirtæki. Ímyndunarherdeildin virðist hins vegar hafa misst viljann og/eða stuðninginn sem þarf til að hylma yfir það að hann réðist á þjónustustúlkuna nú.

Græðgisskúrkar Dominique Strauss-Kahn er skúrkur! Það hvernig afbrigðileg kynhegðun hans brýst fram vitnar um ekkert nema það. Framkvæmdarstjórastaða hans í hinum alræmda Alþjóðagjaldeyrissjóði er þó ekki síður til vitnisburðar. Það dapurlegasta við þetta allt saman er það að valda- og efnahagskerfið viðrist vera meira og minna ofurselt körlum, auk einstakra kvenna, af sama kaliberi og hann.

Peningar, losti og græðgiÞað verður að segja það eins og er að karlar með enga siðferðisvitund, karlar sem hafa ekkert taumhald á fýsnum sínum og karlar sem telja að peningar, stífbónaður blæjusportbíll og ungar konur með flatan maga og ofurtúttur séu hámark lífsgæðanna, eru ekki líklegir til að stýra neinu til gæfu og hagsældar.

Við höfum dæmin allt í kringum okkur um það að þeirra forysta leiðir heilu samfélögin beina leið til helvítis! Tími gráhærðra, gráðugra og graðra karla í lykilstöðum samfélaga heimsins er liðinn og kominn tími á ungt hugsjónafólk sem er tilbúið að breyta heiminum í stað þar sem allir njóta sömu réttinda í orði sem á borði.


mbl.is Forstjóri AGS grunaður um kynferðislega árás
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sokkin siðvitund!

Í gærkvöldi var haldin hátíð. Hátíðin var haldin í húsi sem afar skiptar skoðanir eru um. Sumir vilja kalla það montkofa, aðrir minnisvarða heimskunnar og einhverjir tómthúsið niður við hafið en því var gefið heitið Harpa. Einhverjum finnst húsið fallegt en aðrir sjá þar enga fegurð. Hvað sem slíku líður þá mun þetta hús alltaf minna á fyrirhyggjuleysi græðginnar sem réði hér ríkjum og leiddi efnahagshrunið yfir þjóðina.

Mér sýnist að í byggingarstíl hússins megi líka sjá ákveðna vísun í einhvers konar hrun. Hin táknræna framsetning á óeiningunni og aðskilnaðinum, sem kemur fram í arkitektúr hússins, getur heldur ekki farið fram hjá neinum.
Hrynjandi Harpa...Hvað sem líður allri óeiningu varðandi það hvort þetta hús á rétt á sér eða hvort það er ljótt eða fallegt þá er það undarleg forgansröðun að skera niður samfélagslega þjónustu eins og menntun og heilbrigðistþjónustu til að fullklára rándýrt glerhús niður við sjó og hleypa rekstri þess af stað með enn meiri niðurskurði í velferðarkerfinu.

Aðskilnaðurinn sem þetta hús er og verður ávallt táknmynd fyrir kom vel fram við formlega opnun þess í gærkvöldi. Þangað var nefnilega boðið þeim sem völdu að blekkja þjóðina um fjárhagsstöðu Íslands m.a. til að byggja sér slíka elítuhöll. Þangað var líka boðið þeim sem völdu að rétt væri að ljúka þessu glerhýsi sjálfsupphafningarinnar þrátt fyrir að það þýddi niðurskurð á samfélagslegri þjónustu, eins og tónlistarmenntun, og forsendum þess að hafa efni á tónlistarnámi. 

Firringin sem kemur svo vel fram þegar litið er yfir byggingarsögu þessa húss er langt frá því að vera á undanhaldi. Hún kom ekki bara fram á gestalista gærkvöldsins heldur líka á myndum og í umfjöllun fjölmiðla um formlega opnun þess. Sumir tala m.a. um „fræga og fína fólkið“. Ég velti því fyrir mér hvort það er háðið eða veruleikafirringin sem ræður orðavalinu. Hér eru tvö vel valin dæmi sem ættu að skýra ástæður slíkra vangaveltna.

Óforbetranlegir en dæmdir þjófar Ég reikna a.m.k. með að það séu fleiri en ég sem geta tekið undir það að hvað sem allri frægð líður þá geta siðvilltir þjófar ekki talist til fíns fólks hverju sem þeir vilja trúa um sjálfa sig! Frægð þeirra stafar heldur tæplega af neinu sem nokkur heiðvirður einstaklingur myndi vilja hrósa sjálfum sér af!

Þó ég sé sjálf á meðal þeirra sem leist svo stórvel á Ingibjörgu Sólrúnu, þegar hún kom fyrst fram í pólitík, þá hvarf öll mín aðdáun á henni þegar hún hvæsti framan í gesti á borgarafundi í Háskólabíói að þeir væru ekki þjóðin!

Brotakonur og glæpasystur

Sumir nærast vissulega á því að tilheyra þessum hópi og enn aðrir á því að hann hafi verið búinn til. Besti vitnisburðurinn er e.t.v. sá að umfjöllun fjölmiðla um þennan hóp hefur ekkert breyst og m.a.s. Séð og heyrt, sem gerir út á hann, hefur lifað hrunið af í óbreyttri mynd!

Það er undarlegt í rúmlega þrjúhundruð þúsunda samfélagi að þessum og fleirum skuli finnast það sjálfsagt að almennir borgarar haldi uppi þrjúþúsund manna elítu þrátt fyrir allan fórnarkostnaðinn!

Það er ekki nóg með að almenningur beri skaðann af fyrirhyggjuleysi þeirra og/eða siðleysi heldur finnst sumum nærvera þeirra ómissandi við hámenningarlega viðburði eins og þann sem var boðið upp á í tónlistarhúsinu sem mörgum hefur þótt svo brýnt að þjóðin eignist. Óneitanlega veltir maður því fyrir sér hvort þessi þjóð sem þarfnaðist tónlitstarhúss sé eingöngu elítan sem telur sig og sína til þjóðarinnar en lítur á hina sem vinnudýrin sem eigi að halda þeim uppi.

Græðgisfirrt elítaSambandsleysi gestanna sem þáðu boðið á þessa svokölluðu „formlegu opnunarhátíð“ opinberaðist vel og rækilega í gærkvöldi. Það kom fram í því að gerendur hrunsins þáðu boðið.  Hinir þáðu það þrátt fyrir þessa og það að meðal þeirra var guðfaðir efnahagshrunsins!

Þeir létu það ekkert trufla sig að efnahagshrunið leiddi ekki aðeins til atvinnu- og tekjumissis fjölda Íslendinga heldur gjaldþrots og landflótta alltof stórs hluta þjóðarinnar. Það dapurlegasta er svo það að einhverjir hafa tekið sitt eigið líf vegna hörmunganna sem þeir stóðu frammi fyrir vegna hrunsins.

Við getum svo velt því fyrir okkur hver borgar kostnaðinn sem hlýst af slíkum viðburði þegar upp er staðið. Það skyldi þó ekki vera sami almenningur og stór hluti boðsgestanna hefur valdið framantöldum hörmungum. Við skulum svo minnast þess að þeim sem var boðið bera margir hverjir ekki bara ábyrgð á hruninu heldur ber stór hluti þeirra ábyrgð á þeirri kyrrstöðu sem við sitjum í enn í dag.

Það finnst kannski einhverjum að þetta sé full grimmt til orða tekið en við skulum muna að það var ekki síst aðgerða- og afskiptaleysi sem leiddi efnahagshrunið yfir þjóðina haustið 2008. Ég get ekki séð annað en öll samkundan sem mætti í Hörpuna í gærkvöldi hafi gert sig seka um alvarlegt meðvitundarleysi og dómgreindarskort! en eins og öllum ætti að vera ljóst það sem grundvallar aðgerðar- og afskiptaleysið.

Þær eru ærnar ástæðurnar fyrir því að mótmælendur mættu fyrir framan fordyri oflátungshallarinnar  í gærkvöldi. Eitt af því sem sá samfélagslega meðvitaði hópur sem þar mætti minnti á er það hvað hin svokallaða skjaldborg hefur leitt yfir þjóðina.

Hin raunverulega skjaldborg Miðað við fréttaflutning og bloggskrif um þessi mótmæli sýnist mér að fleiri geti tekið undir. Það er nefnilega athyglisvert að þrátt fyrir að þeir sem mættu teldu ekki nema 20-30 manns var mótmælanna getið í nær öllum fjölmiðlum sem fjölluðu um opnunarhátíðina á annað borð. Það sem mér finnst enn undarlegra er að ég hef ekki enn rekist á eina einustu neikvæða umfjöllun um mótmælin í sjálfu sér. Veit ekki hvort það vísi á gott eða vont...


mbl.is Harpa tekin formlega í notkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tossalistinn!

Ég ákvað að minna á eftirfarandi:

Við skulum halda því til haga að Alþingi er að langstrærstum hluta skipað einstaklingum sem er ekki treystandi!

  • Þar situr fólk sem þáði styrki/mútur til að komast inn á þing.
  • Þar sitja einstaklingar sem steinhéldu kjafti yfir því að efnahagur landsins stefndi í hrun.
  • Þar situr fólk sem tók afdrifaríkar ákvarðanir um samtryggingarplott til bjargar fjármálavaldinu á bak við tjöldin.
  • Þar situr fólk sem hylmdi yfir stöðu og staðreyndir og laug sig til kosningasigurs.
  • Þar situr fólk sem hefur logið svo oft um svo þýðingamikla hluti að ef ekki væri fyrir björgunarsveitirnar í grasrótinni þá væri landið komið á opinbera útsölu!
  • Þar situr fólk sem er orðið svo vant því að ljúga að það þekkir ekki muninn á lygum og staðreyndum; réttu og röngu, og myndi ekki hika við að selja skrattanum landið sitt ef það yrði þeim sjálfum til framdráttar.
  • Þar situr fólk sem hefur gert sig sekt um svo stóra glæpi gagnvart landi og þjóð að langstærstur hluti þjóðarinnar situr uppi lamaður af sorg.

Við skulum átta okkur á því að þetta leikrit mun halda áfram uns allt hefur verið selt nema himininn yfir landinu. 


Grasrótin er ógn við úrelta hugmyndafræði!

Margir þeirra sem risu upp og sameinuðust í háværum mótmælum haustið 2008 eru enn að. Sumir hafa helst úr lestinni en aðrir hafa bæst við. Þessi hópur hefur gjarnan verið kenndur við grasrót en þar hefur farið fram öflugt og hugmyndaríkt starf sem miðar að gæfuríkum lausnum. Þetta starf hafa fjölmiðlar valdsins kosið að leiða hjá sér og stuðla þannig að því að viðhalda kyrrstöðunni.

Það er ekki þar með sagt að fjölmiðlar fjalli ekkert um þennan hóp. Öðru nær því allt frá hruni hafa þeir apað upp vafasamar staðhæfingar fulltrúa valdsins um tilgang og eða tengsl einstaklinganna í þessum hópi við einhvern úr „óvinaliðinu“ eða dregið fram einhverjar gróusögur um viðkomandi.

Hvoru tveggja er gert í þeim tilgangi að draga úr trúverðugleika baráttuaflanna og skapa sundrungu. Það hentar nefnilega valdinu að viðhaldið tortryggninni og draga þannig úr ógninni sem valdinu stafar af þeim öfluga hópi sem hefur starfað í grasrót nýrrar og byltingarkenndrar hugmyndafræði frá haustinu 2008.

Gamla kerfið er dautt!

Það sem grasrótin þarf að gera er að hætta að láta fjölmiðlastýra sér af álitsgjöfum valdsins. Ef grasrótin hættir að láta hræra í sér með óvönduðum fréttaflutningi um aðgerðir hennar og einbeitir sér að því markmiði að bylta við sjúku hugarfari og spilltu fjármála- og stjórnmálakerfi þá mun henni farnast vel og ná árangri.

Grasrótin er nefnilega til og ótrúlega öflugt afl sem þar býr þrátt fyrir að hópurinn sem hún er mynduð af telji ekki nema rétt rúmlega 300.000 manna þjóð. Það er líka með ólíkindum hverju hún hefur áorkað! Nægir þar að nefna tvær þjóðaratkvæðagreiðslur um Icesave.

Ef þeir sem halda grasrótinni uppi skilja að þöggunin og afbökunin sem hún býr undir snýst um það að hún er „hættuleg“ valdinu sem ætlar sér að halda hlutunum nákvæmlega eins og þeir eru. Ef þessir skilja aflið sem í grasrótinni býr og ógnina sem styrkur þeirra og kraftur eru fyrir fámenna eigna- og valdastétt þá gengi þessum e.t.v. betur að skilja að hvert og eitt okkar skiptir máli. Við þurfum heldur ekki alltaf að vinna í saman í stórum hópum ef markmið okkar er það sama.

Þ.e. að bylta núverandi hugarfari, sem grundvallast á mismunun, og bylta fjármála- og stjórnmálakerfinu sem hefur verið byggt upp til að verja þessa mismunun. Við viljum réttlæti og lýðræði, heiðarleika og sanngirni sem ætti að vera auðvelt að byggja upp í svo fámennu samfélagi og okkar.

Hættum að láta áróðurinn um okkur hafa áhrif á það hvernig við metum okkur sjálf og skiljum að þessi áróður er grundvallaður á óttanum við kraftinn sem í okkur býr!


Mannsæmandi kjör fyrir alla!

Tilefni þessara skrifa eru þau að mig langar til að vekja athygli á hópi kjarnakvenna sem boðuðu til samstöðu við málstaðnum „Mannsæmandi kjör fyrir alla“. Ég reikna með að hvatinn að því að kalla fólk saman í 1. maí-gönguna undir þessu merki hafi m.a. verið krafan um aðgerðir eða mótmæli sem hafa nánast algjörlega legið niðri frá því ráðandi öfl þögguðu niður í Tunnunum 17. janúar sl.

Allnokkur hópur mætti og setti sinn svip á gönguna með kröfuspjöldum og fíflafánum.

Mannsæmandi kjör fyrir alla

Þegar niður á Austurvöll kom hófust bitlausar ræður verkalýðsforystunnar en hápunktur dagsins var utan auglýstrar dagskrár. Ein kvennanna sem stóðu að því að kalla saman fólk til að ganga undir kröfunni um mannsæmandi kjör tók þá til máls og flutti ræðu.

Ræðumaðurinn heitir Berglind Nanna Ólínudóttir og flutti hún ræðu sína af þeirri einlægni og krafti sem ekki hafði heyrst í ræðum annarra ræðumanna dagsins. Ég tek það fram að leturbreytingar eru mínar þó þær kunni að fylgja áherslum Berglindar í flutningi hennar.

Berglind Nanna 1. maí 2011

Ég valdi mér ekki það hlutverk í lífinu að verða öryrki. Því var þröngvað upp á mig. Ég valdi mér heldur ekki að vera málsvari eða fulltrúi þessa hóps, en það æxlaðist nú samt þannig. Kannski vegna þess að ég er kjaftfor og óhrædd við að segja mínar skoðanir. Og ég fæ ekki milljón á mánuði fyrir það! Ég dreg fram lífið á sultartekjum öryrkja á Íslandi í dag.

Og í mjög langan tíma er ég búin að bíða vongóð eftir því að þessir fulltrúar ALLRAR þjóðarinnar hér á Alþingi sjái að það er ekki hægt að bjóða fólki upp á þessa ekki-tilveru. Og með hverjum deginum dofnar vonin. Því miður.

Nú er svo komið að mér blöskrar við að hlusta á fréttir á hverjum einasta degi. Fátækt er að verða ríkjandi ástand í þjóðfélaginu. Nú stöndum við frammi fyrir yfirvofandi allsherjarverkfalli. Ég vildi að ég gæti farið í verkfall líka. Sýnt velferðarráðherra og öðrum háum herrum að kjörin mín eru ekki í lagi. Að ég sætti mig ekki við að þurfa sífellt að herða sultarólina. En hvernig fer ég í verkfall? Legg ég niður þessa vinnu sem var þröngvað upp á mig? Get ég hætt að vera geðsjúklingur í einn dag? NEI. Ekki boðið upp á það, ekki frekar en lágmarks tilveru.

Það sem hryggir mig þó mest, er að ég skuli vera í hópi fólks, sem er ávallt útmálað sem óhreinu börnin hennar Evu. Útmáluð fyrir að vera afætur á kerfinu, og kjósa okkur þetta hlutverk. Að við höfum það svo gott, að það sé kominn tími til að skera upp þetta kerfi og koma þessu í lag. Það er alveg rétt að það er löngu kominn tími til að skera upp bótakerfið og laga það, en ekki vegna þess að við séum öll meira og minna svindlarar og svikahrappar. Heldur vegna þess að þetta kerfi er hannað til að halda okkur í viðjum fátæktar.

Ég borða ekki fögur fyrirheit ríkisstjórnarinnar. Ég tek á mig aukna skattbyrði, auknar álögur og skerðingu á bótum án þess að æmta. Allt í von um að NÚ fari ástandið að lagast, og menn átti sig á því að það er ekki hægt að lifa á þessum smánartekjum. En allt kemur fyrir ekki.

John F. Kennedy sagði eitt sinn: Ekki spyrja hvað landið þitt getur gert fyrir þig, spyrðu heldur hvað getur þú gert fyrir landið þitt! Nú er kominn sá tími, virðulega samkoma, að við tökum okkur saman og sýnum ráðamönnum að skömmin er þeirra, ekki okkar. Verum sýnileg. Látum heyra í okkur, hvar og hvenær sem færi gefst. Sýnum þeim að við sættum okkur ekki við þetta ástand lengur.

Krefjumst mannsæmandi kjara fyrir alla, ekki bara fáa útvalda. Ég sit ekki lengur heima og bíð eftir að einhverjir aðrir mótmæli fyrir mína hönd, eða hafi skoðanir fyrir mig og haldi þeim á lofti. Ef ég vil að ástandið breytist verð ÉG að gera eitthvað í því! Það gildir um okkur öll. Sitjum ekki lengur heima og hengjum höfuð í skömm sem við eigum ekkert í. Höfum hátt, látum okkur sjást, og heyrast, og beinum skömminni að þeim sem eiga hana.

Berglind Nanna Ólínudóttir.
mbl.is Hæstu laun verði þreföld lægstu laun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband