Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2008

Ég átti mér draum...

Þegar ég var ung leigði ég með vinkonu minni. Íbúðin sem við leigðum var þriggja herbergja en samt ákváðum við að deila saman herbergi. Þetta fyrirkomulag gerði það að verkum að við töluðum gjarnan saman í rúmunum okkar áður en við gáfum okkur svefninum á vald.

Í þessum samræðum okkar deildum við lífsreynslu, skoðunum, framtíðarplönum og ýmsu fleiru. Eitt kvöldið langaði mig að vita hvort vinkona mín ætti sér draum um framtíðina og hvernig hann hljóðaði. Við körpuðum eitthvað um það hvor ætti að segja frá á undan og reyndar man ég ekki hvor okkar byrjaði en eitt er víst að draumar okkar um framtíðina voru afar ólíkir.  Svo mjög að það er sennilega þess vegna sem ég man þá.

Vinkonu mína dreymdi um að eignast góðan mann, einbýlishús með garði, bíl og börn. Ég man hvað ég draumahusidvar gáttuð! Það má kannski segja að afstaða mín til drauma vinkonu minnar um framtíðina hafi verið svolítið barnaleg og kannski yfirlætisfull líka. Mér fannst nefnilega að hana dreymdi um eitthvað sem væri svona eins og óhjákvæmileg framtíð. Eitthvað sem maður þyrfti frekar að hafa fyrir að komast undan að yrði en láta sig dreyma umShocking

Draumur minn snerist sem sagt um allt aðra hluti. Mig dreymdi kannski fyrst og fremst um fullkomið frelsi. Vinkonu minni fannst minn draumur ábyggileg jafnfáránlegur og mér fannst hennar. Sennilega hefur hún bara verið enn hneykslaðri á mínum en ég á hennar ef eitthvað var. Minn draumur var kannski líka óraunsærri.

 Mig dreymdi um að verða mótorhjólatöffari sem ferðaðist ein um á hjólinu mínu um afskekta vegi heimsins. Mig dreymdi um að eiga ekki meira af veraldlegum hlutum en svo að ég kæmi þeim fyrir á motorbikehjólinu mínu. Nokkrir hlutir voru nauðsynlegir eins og sápa, hnífur og önnur mataráhöld og einhver nærfatnaður til skiptana. Svo þurfti ég auðvitað lítið tjald, góðan svefnpoka og prímus þannig að ég gæti búið mér þægilegan næturstað þegar kvöldaði.

Ég ætlaði nefnilega að nota kvöldin til að skrifa dagbók um ferðalagið mitt. Ég man að ég bætti því við að mig langaði til að ferðast nógu lengi í óbyggðunum, í hvert sinn, til að ég yrði orðin svo haugdrullug að þegar ég kæmist í bað jafnaðist það á við hreinustu sælustundW00t

Draumur þessarar gömlu vinkonu minnar hefur vonandi orðið að veruleika fyrir henni en minn verður það aldrei. A.m.k. ekki í því formi sem ég setti hann fram á sínum tíma...

Ég átti reyndar skellinöðru þegar ég var 17 ára og sótti um æfingarleyfi fyrir stórt mótorhjól þegar ég hafði aldur til (minnir að það hafi verið 18 ára þáWoundering en ég var sögð of létt til að ráða við þung og stór hjól. Auðvitað trúði ég löggjafavaldinu sem hafnaði umsókn minni með þessum rökum. 

Fyrir 10-15 árum fór ég að tala um það að þegar ég verði fimmtug muni ég taka prófið og eignast hjól. Ég hrekkti dætur mínar líka oft á því að ég myndi kaupa mér hjól með hliðarvagni svo ég gæti boðið ömmubörnunum á rúntinn með mér. Þeim leist aldrei á hugmyndina.Pouty

Núna er ég aftur á móti búin að leggja alla drauma um að taka mótorhjólapróf á gamalsaldri á hilluna. Ástæðan er ósköp einföld. Þetta virðist nefnilega vera orðin einhvers konar bylgja!oldie90_yr_old_biker

 

 

 

 

 

 

 

 Þegar maður mætir einhverjum á mótorhjóli núorðið er miklu líklegra að knapinn sé rígfullorðinn; afi eða amma. Einhver sem er búinn að uppfylla drauminn um maka, íbúð og börn en er kominn á mótorhjól í leit að einhverju meiru. Mig langar einfaldlega ekki til að vera með...

 


Ekki alveg óttalausar:-/

Ég kynntist Ósk fyrir einhverjum áratugum síðanWoundering og í dag erum við frekar sérstakar vinkonur. Þegar við erum saman gerum við oftast það sem venjulegir vinir gera saman eins og fara t.d. í ferðalög saman. Hér er mynd sem var tekin af okkur í Ást í FlókalundiFlókalundi sl. sumar.

En stundum högum við okkur ekki alveg eins og aðrir. Það er kannski vegna þess að við erum álíka bilaðar báðarLoL Það hefur t.d. sannað sig að við erum báðar alveg ótrúlega huglausar eða m.ö.o. þá er ekki mikið mál að hræða okkur þannig að við verðum alveg glórulausar af hræðslu.

Ég vissi ekki að ég væri svona mikil skræfa og er reyndar ekki alveg tilbúin til að viðurkenna að ég sé það, þrátt fyrir allt. En með Ósk er ég allt annað en óttalaus. Sennilega er það bara hún sem kallar gunguna fram í mérWhistling

Ósk útskrifaðist sem ljósmóðir vorið 2005. Ég var ekki í útskriftarveislunni hennar en vildi endilega halda upp á það með henni á einhvern eftirminnilegan hátt. Við skipulögðum smáferðalag austur fyrir fjall (miðað við ReykjavíkWink með nokkrum athyglisverðum viðkomustöðum sem við völdum saman. Viðkomustaðirnir voru að sjálfsögðu valdir með tilliti til þess að þessi dagur yrði sem ánægjulegastur fyrir Ósk...

Einn af þeim viðkomustöðum sem Ósk langaði afskaplega mikið að skoða var Draugasetrið á logo DraugasetursinsStokkseyri. Ég samþykkti hann gjörsamlega grunlaus út í hvað við vorum að faraErrm Þessi ferð varð ein sú eftirminnilegasta sem ég hef farið í. Ég tel mig reyndar  mjög heppna að hafa fengið tækifæri til að minnast einhvers eftir að við fórum inn í þetta draugabæli! 

Þetta byrjaði allt með svona yfirdrifinni þolinmæði af minni hálfu yfir áhuga Óskar á þessum stað. Ég ætlaði mér sko aldeilis að vera töffarinn í þessu dúói sem hræðist ekki neitt Cool Ég reiknaði engan vegin með því að þessi yfirgengilega skelfing sem náði strax tökum á Ósk myndi hreyfa við mér...

Ég byrjaði á því að lenda í einhverjum átökum við tæknina. Það var hreinlega eins og einhver draugur hefði hlaupið í vasaleiðsögumanninn sem ég fékk úthlutað í afgreiðslunni. Ég var þess vegna uppteknari af því að koma honum í lag en horfa í kringum mig. Ósk fór á undan en var alveg að fara yfir um af ótta við það að hún mætti draugumGetLost

Þegar ég elti hana inn í annað - eða þriðja rýmið, baukandi við að koma vasaleiðsögumanninum til að virka rétt, þá rekur Ósk upp svona skerandi vein... Ég leit upp staðráðin í því að horfa óttalaus á það sem hafði hrætt hana og reyna svo að lækna hana af þessar hræðslugirni... en þegar ég kom auga á það sem hafði hrætt hana gargaði ég eins og glórulaus hálfvitiBlush

Það fór ekki á milli mála að viðbrögð af þessu tagi virka einkar vel á draugana þarna. Við lentum í þvílíkri ásókn enda görguðum við og góluðum, grenjuðum og báðumst vægðar. Auðvitað flissuðum við líka yfir því hvað við værum vitlausar en DRAUGARNIR VORU ÓTRÚLEGA RAUNVERULEGIR!!Crying

Það er alltof langt mál að rekja allar hremmingarnar sem við lentum í á þessum rökkvaða, villugjarna stað. En í lok þessa ógnvænlega ferðalags beið okkar enn einn ásóknin þannig að við stukkum undan henni gólandi og í faðmlögum fram í afgreiðsluna. Við þóttumst eiga fótum okkar fjörið að launa en mættum engum skilningi í þeim augnaráðum sem við mættum þangað komnar enda vissi þetta fólk ekkert um það hvað við vorum búnar að ganga í gegnumShocking

Ég trúi ekki öðru en að draugunum hafi þótt við ákaflega skemmtileg fórnarlömb en ég veit ekki hvað gæti orðið til þess að ég skemmti þeim aftur með nærveru minniWoundering Hins vegar mæli ég með því að allir aðrir skoði þessa sýninguSmile 

Sennilega ættum við Ósk alls ekki að fara saman á svona skelfilegar sýningar en... þegar ég var í heimsókn hjá henni núna í byrjun júlí. Ákváðum við að skreppa enn einu sinni yfir Hellisheiðina og kíkja við á Selfossi. Svo var Ósk voðalega áhugasöm gagnvart álfa- og tröllasetrinu sem er nýbúið að opna á Stokkseyri.

IW_top2

Það hljómar kannski ótrúlega en ég var alveg búin að gleyma meðferðinni sem við fengum á DraugasetrinuBlush Álfar eru heldur ekkert skelfilegir og hvað getur svo sem verið skelfilegt við tröll... Við fórum sem sagt en fengum eitthvert veður af því í afgreiðslunni að einhver lítilsháttar skelfing gæti beðið okkar í lokin.

Þetta byrjaði líka allt voðalega vel hjá okkur nema Ósk var eitthvað kvíðin yfir framhaldinu og... tja, það er kannski best að ég segi ekkert of mikið vegna þeirra sem eiga eftir að fara og skoða þetta en ég hef sannast sagna aldrei verið styttri tíma inni á neinni sýninguPinch Ástæðan er ekki sú að sýningin hafi ekki verið áhugaverð en tröllin eru skelfilegri en ég hafði ímyndað mérCrying

Eftir þessa ferð er ég hreinleg ekki viss um hvort mér þykja draugar eða tröll ógnvænlegri fyrirbæri. Ég velti því reyndar líka fyrir mér hvort við Ósk ættum ekki að láta það vera að fara saman á svona sýningar en eins og ég sagði í byrjun þá erum við svolítið sérstakarW00t Það er þess vegna alveg spurning hvort við lærum það sem liggur í augum uppi af þessum uppákomumGrin 

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband