Látum þá ekki spilla fyrir heldur skrifum undir

Nýtt lýðveldi á ÍslandiÉg leyfi mér að birta nær orðrétt ákall til þjóðarinnar sem hefur gengið á Facebook og ýmsum póstlistum í dag:

Ástæða er til að óttast að bakslag sé komið í áform stjórnarflokkanna um að efna til stjórnlagaþings um nýja stjórnarskrá. Þjóðin má ekki við því að glata þessu tækifæri! Það liggur alltof mikið undir. Lífsafkoma okkar og framtíðarheill! Verði ekki boðað til stjórnlagaþings nú eru líkur til þess að tækifærið til þess glatist og komi ekki aftur fyrr en manngerðar hamfarir hafi á ný dunið á þjóðinni.

Verið er að safna undirskriftum á vefnum Nýtt lýðveldi þar sem farið er fram á eftirfarandi:

Við, undirritaðir Íslendingar, skorum á Alþingi að samþykkja stjórnskipunarlög um boðun til stjórnlagaþings – nýs þjóðfundar. Forseti Íslands boði til þingsins fulltrúa sem kosnir verði ásamt varafulltrúa fyrir hvern þeirra í almennum kosningum sem haldnar skulu innan tveggja mánaða frá síðari samþykkt frumvarps til stjórnarskipunarlaga. Kjörgengi til stjórnlagaþings hafi allir sem uppfylla kjörgengisskilyrði 34. gr. stjórnarskrárinnar nema forseti Íslands, alþingismenn og ráðherrar. Í kosningum til stjórnlagaþings verði allt landið eitt kjördæmi.

Stjórnlagaþing semji nýja stjórnarskrá þar sem lagður verði grunnur að  nýju lýðveldi
með virku og endurnýjuðu lýðræði. Í því felst m.a:

  • endurskoðun á kosningareglum til Alþingis og kjördæmaskipan.
  • skýr aðgreining milli framkvæmdavalds, löggjafavalds og dómstóla.
Að lokinni þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarskrána verði þing rofið og efnt til nýrra alþingiskosninga á grundvelli hennar.
Íslenski fáninn
Undirskriftirnar verða afhentar fulltrúum stjórnvalda í byrjun mars næstkomandi. Þá hefur Alþingi enn tíma til að samþykkja frumvarp um stjórnlagaþing.


Við getum ekki látið þetta tækifærið okkur renna úr greipum! Núna er það samstaðan sem gildir!
Nýtum tímann sem við höfum til að tryggja að stjórnlagaþing verði að veruleika! En hvað getum við gert til þess?

1. Safnað fleiri undirskriftum. Sendu póst á alla sem þú þekkir með hvatningu um að skrifa undir á slóðinni: http://www.nyttlydveldi.is/index.php?option=com_wrapper&view=wrapper&Itemid=5

2. Hafðu samband við þingmenn og spurðu hvort þeir muni styðja eða beita sér fyrir lagasetningu um stjórnlagaþing. Hér er listi yfir þingmenn, netföng og símanúmer.

3. Hengdu upp eða settu hvatningu á vinnustað, skóla, blogg eða annars staðar. Þar má t.d. nota það sem kemur fram á forsíðu Nýs lýðveldis.

4. Ef þig langar til að taka þátt í baráttunni eða hefur hugmyndir hafðu þá samband.


Tökum höndum saman því samstaða er afl sem ekkert fær staðist!


mbl.is Sjálfstæðismenn gagnrýna stjórnlagaþing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég er löngu búin að skrá mig.  Oft var þörf nú er nauðsyn.  

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 18.2.2009 kl. 02:16

2 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Flott! Vona að fleiri, og já bara allir, fylgi fordæmi þínu þar sem samstaðan er okkkar sterkasta afl!

Rakel Sigurgeirsdóttir, 18.2.2009 kl. 07:50

3 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Sama hér.

Arinbjörn Kúld, 18.2.2009 kl. 09:50

4 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Sæl Rakel. Gott að sjá þig í baráttunni. Við þurfum að berjast fyrir:

  1. Lýðræði
  2. Réttlátu samfélagi
  3. Almennum skilningi fólks á ástandinu
  4. Lausnum sem virka til betri framtíðar

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 18.2.2009 kl. 17:40

5 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Það er alltaf jafndásamlegt að sjá hvað þú hefur skýra sýn á hlutina Jakobína!

Rakel Sigurgeirsdóttir, 19.2.2009 kl. 01:37

6 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Ókey

Rakel Sigurgeirsdóttir, 19.2.2009 kl. 23:08

7 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Má ég líka stela þessari færslu og setja hana hjá mér? 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 20.2.2009 kl. 01:36

8 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Að sjálfsögðu! Ég gef hér með öllum sem áhuga hafa á því að kópera þennan texta inn á sína síðu eða vísa á mína. Ég á nefnilega minnst í þessum texta sjálf. Lagaði hann bara oggolítið til

Rakel Sigurgeirsdóttir, 20.2.2009 kl. 01:43

9 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Takk

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 20.2.2009 kl. 01:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband