Loksins, loksins!!

Ég ætla að hafa þetta óskaplega stutt að þessu sinni því ég ætla að láta aðra um að segja það sem mér liggur á hjarta. Maríanna Friðjónsdóttir segir nefnilega allt sem segja þarf í bloggfærslu dagsins. Þar segir m.a: Í sama blaði og Davíð Oddsson, kemur fram með hótun sína um að taka stjórnmálavöldin, verði fjármálavöldin af honum tekin, er fjallað um psykopatana á valdastóli.

Eftir lestur greinarinnar hennar Maríönnu ætti öllum að vera ljóst hversu aðkallandi það er að þjóðin standi saman og krefjist þess að geðveikinni linni! Við ættum e.t.v. að hrópa burt með sjúklingana næsta laugardag því það eru þeir sem hafa ekki dómgreind til að halda um stjórnartaumana þannig að það verði þjóðinni til farsældar.


mbl.is Davíð: „Þá mun ég snúa aftur"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Já það þarf að koma þessu fólki fyrir þar sem það er undir eftirliti og getur ekki valsað með velferð annarra.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 4.12.2008 kl. 16:12

2 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Góður punktur

Rakel Sigurgeirsdóttir, 4.12.2008 kl. 16:49

3 Smámynd: Jóhann G. Frímann

Mér var nú uppálagt það í æsku að maður á að vera góður við veikt fólk og gamalmenni.

Jóhann G. Frímann, 4.12.2008 kl. 20:51

4 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

... og kannski leyfa þeim hvað sem er

Rakel Sigurgeirsdóttir, 4.12.2008 kl. 21:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband